17.04.1930
Neðri deild: 85. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í D-deild Alþingistíðinda. (3554)
386. mál, áfengisveitingar í sambandi við alþingishátíðina
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Aðeins nokkur orð út af ummælum hv. 1. þm. Reykv., er hann kallaði þessa till. kosningabeitu fyrir landskjörið í sumar. Ég er mjög ánægður með þessa yfirlýsingu hv. þm. Hún sýnir, að hv. þm. veit og samþykkir, að allur þorri landsmanna heimtar ráðstafanir svipaðar þeim, sem felast í till. Því ef gert er ráð fyrir, að þetta mundi mælast illa fyrir, þá væri það vitlaus maður, sem fleygði út slíkri beitu. Mörgum mun segja þungt hugur um, ef vinsala verður fyrir og á hátíðinni sem aðra daga árs, og hið opinbera gengur á undan með vínveitingar. Enginn getur gengið þess dulinn, hvað af slíku hlýtur að leiða: Skömm og skaða.