17.04.1930
Neðri deild: 85. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í D-deild Alþingistíðinda. (3573)

440. mál, styrkur samkvæmt jarðræktarlögunum

Jóhann Jósefsson:

* Ég hafði ekki hugsað mér að taka þátt í umr. um þetta mál, ekki þó fyrir það, að ég hefði ekki gert mér hugmynd um réttmæti þessarar till., sem hér liggur fyrir, og eftir allan fyrirlestur hv. þm. Mýr., sem sjálfsagt að hans eigin áliti er sérfræðilegur, stendur mín skoðun algerlega óhögguð.

Það hefir stundum verið haft orð á því hér á þingi, og verið beint til minna flokksbræðra, að við beittum málþófi, en ég hélt, að hæstv. stj. og flokksmenn hennar hefðu nú álitið, að búið væri að sitja hér nóg í nótt, svo að það hefði ekki þurft að verða slíkt málþóf frá þeirra hendi um þetta mál, aðeins til þess að flæma okkur burt héðan, svo að d. yrði ekki ályktunarfær; en þeim hefir þó ekki orðið kápan úr því klæðinu. Annars sýnist óþarfi að halda þm. yfir þessu með málþófi fram á skírdagsmorgun, enda er þá réttast, að við förum að tala líka.

En það, sem kom mér til að kveðja mér hljóðs, var hin fáránlega getsök, sem kom frá hæstv. forsrh. í garð okkar sjálfstæðismanna. Hæstv. ráðh. sagði, að það hefði enginn sýnt bændastétt landsins annan eins fjandskap og Sjálfstæðisflokkurinn hefði gert. Ég varð mér til raunar að hlusta á þessi orð, en það hafa aðrir mótmælt þessu með rökum, eins og t. d. hv. þm. Borgf., svo að ekki er ástæða til að orðlengja meira um þetta, en ég vil alls ekki hlusta á slíkan auraustur á minn flokk án þess að mótmæla kröftuglega. Ég veit heldur ekki betur en að sjálfstæðismennirnir sumir, þótt við eigum okkar meira undir sjónum, höfum staðið fast saman með þeim flokksmönnum okkar, sem margir eru bændur, til styrktar málefnum landbúnaðarins, og ótilkvaddir skattlagt okkur sjálfa til hagsmuna fyrir landbúnaðinn.

Það má minna á árið 1924, þegar hæstv. forsrh. var búinn að stofna tollmálum okkar við Norðmenn í hið versta horf, og á samtök sjávarútvegsmanna þá til að bjóða sjálfa sig fram undir skatt til þess að létta vandræðum af bændum. Ég segi ekki, að það hafi verið nein sérstök dyggð, en við gerðum það þó, og þarna koma þakkirnar frá hæstv. forsrh., þessi kveðjuorð, sem við fengum á þessum hátíðisdegi, eftir að hafa setið lengi á þingi og vakað nótt eftir nótt, og nú síðast fyrir aðgerðir hans auðmjúkustu þjóna. (HJ: Neitaði ekki Sjálfstæðisflokkurinn um afbrigði?). En hæstv. forsrh. þarf ekki að búast við, að þessu sé tekið þegjandi, vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn á þingi hefir hreinan skjöld gagnvart málefnum landbúnaðarins og hefir lagt eins holl ráð á um hagsmunamál hans, enda eru innan stjórnarflokksins menn alveg eins háskasamlegir málefnum sveitanna.

Það eru vissar skyldur, sem hvíla á mönnum í háum og veglegum stöðum, og ég held jafnvel, að þeirra æðsta skylda sé sú, að þeir kunni að haga svo orðum sínum, að það sé ekki hreint og beint ósæmilegt að heyra til þeirra. En ég hygg að þegar hæstv. forsrh. athugar það frumhlaup, sem hann hefir hlaupið í gegn þeim stjórnmálaflokki, sem hefir langmesta kjósendatölu á bak við sig, þá muni hann sjá, að hér var algerlega rangt af stað farið hjá honum.

Það hefir nú verið gert svo mikið að því í þessu landi að ala á stéttaríg milli sjávar- og sveitamanna, að það sýndist nóg komið af slíku, þótt ekki væri kórónan sett á allt saman á þinginu 1930 með þessu hnefahöggi framan í þann stjórnmálaflokk landsins, sem aldrei hefir lagt stein í götu landbúnaðarins, heldur fylgt honum fram til þeirrar giftu, sem síðustu ár hafa sýnt, því að þau hafa borið giftu hin sameiginlegu átök sjálfstæðismanna, framsóknarmanna og ég vil segja líka jafnaðarmanna, sem hafa lagt sitt til að hjálpa bændastétt landsins áfram á sinni þroskabraut. Og þegar litið er á sögu síðustu ára, hvað þingið hefir gert til þess að styðja þennan mjög svo nauðsynlega atvinnuveg í landinu, verður það ennþá raunalegra að heyra aðra eins ódæma yfirlýsingu úr ráðherrastóli eins og við hlutum að þola að heyra á þessum fundardegi.