22.02.1930
Neðri deild: 34. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 262 í D-deild Alþingistíðinda. (3593)
145. mál, samkomustaður Alþingis
Magnús Guðmundsson:
Mér þykir mjög undarlegt, að hv. 1. þm. S.-M. skuli setja sig upp á móti því, að till. fari til n. Hann viðurkennir þó sjálfur, að flutningurinn mundi kosta 500–600 þús. kr., með því að þinghús verði að byggja þar, og það er sannarlega þess vert, að slíkt mál sé athugað í nefnd. Og þó að vitaskuld yrði einhver töf á því fyrir bragðið, skil ég ekki, að hún yrði svo mikil, að málið geti ekki verið afgr. á þessu þingi, ef einhver áhugi er fyrir því.
Annars fannst mér hv. 1. þm. S.-M. verjast sem mest allra frétta um kostnaðinn. Vísaði hann til þess, að rætt hefði verið um hann áður, en ég minnist þess ekki, að nokkurntíma hafi verið gerð nákvæm kostnaðaráætlun um þetta mál. Það er með öllu óforsvaranlegt að heimta af mönnum úti um land, að þeir geri sér fulla grein fyrir, hvað þetta mundi kosta. Hver og einn getur sagt sér sjálfur, að þótt fjöldi manna vildi láta flytja þingið í raun og veru, þá gæti kostnaðarhliðin gert það að verkum, að menn sjái sér það ekki fært. Þess vegna er óverjandi að leggja málið óundirbúið undir þjóðaratkvæði, og þótt ekkert væri annað, ætti að sjálfsögðu að skoða það í nefnd.
Ég heyrði t. d. ekki, að hv. 1. þm. S.-M. nefndi neitt, að það þarf þó prentsmiðju á Þingvöllum. Það er náttúrlega möguleiki á því að flytja handrit og skjöl á milli Þingvalla og Reykjavíkur að sumri til, en það mundi ganga seint og vafalaust seinka störfum þingsins.
Enn er eitt atriði þessa máls, sem hv. 1. þm. S.-M. upplýsti og ég legg mikla áherzlu á. Það er gengið út frá, að þingið verði háð að sumri til. Ég er viss um, að það þýðir sama og að segja við fjöldamarga bændur, að þeir geti alls ekki setið á þingi. (SvÓ: Því fer fjarri!). Því fer ekki fjarri. Það eru fjölmargir bændur, sem því aðeins geta sótt þing, að það sé að vetri til. Ég er ósamþykkur hv. 1. þm. S.-M. um, að betra sé að vinna að þingstörfum á sumrin, því að öll innivinna er hentugri á veturna. Og þó að mig skipti það í raun og veru litlu máli, hvort þingið er háð að sumri eða vetri til, vil ég miklu heldur sinna þingstörfunum á veturna. Það er óviðkunnanlegt að þurfa að húka inni mestan hluta dags að sumarlagi. Það er miklu eðlilegra og heilsusamlegra að nota sumarið til að vera dálítið úti.
Það hefir enginn haldið því fram, að kostnaðurinn væri teljandi við að fá atkvgr. um þetta mál. En það er, eins og ég tók fram, skylda þingsins að gefa leiðbeiningar um, hvað er verið að greiða atkv. um stórt kostnaðaratriði, og þess vegna legg ég eins mikla áherzlu á kostnaðarhliðina og ég hefi gert. Og ég get alls ekki vikið frá því, að aðalstarf þeirrar n., sem með málið kann að fara, verður að búa til eins ábyggilega kostnaðaráætlun um það og unnt er.