27.02.1930
Neðri deild: 38. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 290 í D-deild Alþingistíðinda. (3623)
156. mál, fullnaðarskil við Pál J. Torfason
Héðinn Valdimarsson:
Mér finnst þetta mál ekki eins upplýst og skyldi, enda var það ekki mikið skýrt í framsögu. Ég vil því láta vísa því til fjhn. Það væri þó æskilegt, að annaðhvort nú þegar eða þegar málið kemur úr nefnd fylgi því umsögn frá þáverandi ráðh., hv. 1. þm. Skagf., um hvað af öllum þessum peningum varð og hvers vegna þessi maður, sem mest átti við lántökuna, varð svo afskiptur. Mér finnst þetta vera nokkurt rannsóknarefni.