15.04.1930
Neðri deild: 83. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í D-deild Alþingistíðinda. (3663)

404. mál, rýmkun landhelginnar

Fyrirspyrjandi (Pétur Ottesen):

Ég skal ekki vera margorður, en læt mér nægja að mestu leyti að vísa til grg. fyrir þáltill. um þetta efni, sem flutt var á síðasta þingi. Þar voru færð fram rök fyrir því, að gera þyrfti ítarlegar tilraunir til þess að rýmka landhelgina. Áskoranir um þetta efni hafa verið bornar fram að heita má á hverju þingi nú um nokkurt árabil, og því er eigi ástæða til að rifja þessi rök upp nú.

Það, sem ég vildi fá fram nú, er aðeins það, hvað stj. hefir gert í þessu máli síðan í fyrra. Og ég vil bæta því við, hvort ekki sé einmitt rétt að taka málið til alvarlegrar athugunar á þessu ári, þegar hingað er von margra valda- og trúnaðarmanna nágrannaþjóðanna, og nota þá sérstöku aðstöðu, sem alþingishátíðin í sumar gefur okkur, til þess að vinna málinu gagn — nota til þess persónulega viðkynningu við þingmenn nágrannalandanna og aðra trúnaðarmenn, er hátíðina sækja.

Nú mun ákveðið að gera einhverja þá samþykkt á Alþingi í sumar, sem miði landi og þjóð til verulegra heilla. Nú vil ég benda á, hvort ekki myndi einmitt vera vel til fallið að gera ályktun um þetta mál. Tæplega mun hægt að finna annað mál, sem hefir meiri þýðingu fyrir afkomu þjóðarinnar en þetta. Nú hefir verið kosin n. til að athuga, um hvaða mál ályktun skuli tekin á Þingvöllum. Vil ég því beina þeim tilmælum til þeirrar n., að hún taki þetta til athugunar.

Við erum ekki samningum bundnir um landhelgina við neina þjóð nema Englendinga. Þeir samningar eru frá því laust eftir aldamót. Þessum samningum má segja upp með tveggja ára fyrirvara. Málið horfir því þannig við, að sú ályktun, sem kynni að verða gerð í sumar, yrði að miðast við þessa samninga, því að vitanlega kemur mér ekki til hugar, að farið verði að ganga á gerða samninga. En þótt ekki verði hægt að koma málinu í fulla framkvæmd á þessu ári, þá álít ég einmitt tímabært að taka það fyrir nú og nota þá sérstöku aðstöðu, sem verður fyrir hendi í sumar, til að vinna að framgangi málsins. Ég tel vafasamt, að jafngott tækifæri gefist síðar til að koma þessu nauðsynjamáli á framfæri. Þessu tækifæri megum við ekki sleppa.