13.02.1930
Neðri deild: 23. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1156 í B-deild Alþingistíðinda. (367)
12. mál, lántaka fyrir ríkissjóð
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Það var mjög vel til fallið af hæstv. forseta að minna á þetta, þar sem hv. þm. N.-Ísf. var að beina að mér landráðasök fyrir að lesa upp kafla úr samningi, sem hans stj. hafði gert við erlendan lánardrottin. En ef það er landráðasök hjá mér að lesa þetta, — hvað á þá að segja um þann mann, sem gert hefir þennan samning? Mér skildist á orðum hv. þm. N.-Ísf., að þó að þetta hefði átt sér stað — að samningurinn hefði tekizt svona, eins og ég las upp —, þá mætti ekki tala um það.
En ég er á annari skoðun. Það, sem hv. 1. þm. Skagf., þáverandi fjmrh. þjóðarinar, gerði 1921, ætti að standa ritað blóðugum stöfum í hjarta þjóðarinnar. Það á að komast út svo vítt, sem íslenzk tunga er töluð; til þess að enginn íslenzkur stjórnmálamaður leyfi sér að fremja slíkt hermdarverk aftur.
Hv. 2. þm. G.-K. talaði um þennan 50 punda seðil, nefnil. þetta skuldabréf fyrir enska láninu, sem ég er með hér í hendinni, og þótti ekki mikið til hans koma. En þessi seðill talar sínu máli. Hann sýnir, hvernig þessum skuldabréfum var vendilega dreift út um England, svo að sem flestum mætti vera ljóst, hvað þáverandi fjmrh. Íslands hefði gert til þess að koma landinu undir okið.
Hv. 1. þm. Skagf. sagði, og ætlaðist víst til, að það yrði sér til afbötunar, að hann hefði aldrei séð þetta skuldabréf. Hann, sem lét Svein Björnsson gera samninginn fyrir sína hönd, stendur upp á Alþingi 10 árum síðar og segist ekki vita, hvað standi í samningnum. Hvílíkur fjármálaráðherra, sem ekki veit, hvernig hann fjötrar land sitt! En það kom þó fyrir eftir þessa ræðu sína, að hv. 1. þm. Skagf. fór og skoðaði plaggið.
Hv. 1. þm. Skagf. var að kvarta undan því, að samningurinn um enska lánið hefði dregizt inn í umr. En hann má sjálfum sér um kenna; hann kallaði á það. Hann greip fram í ræðu hv. þm. Mýr. og neitaði því, að tolltekjurnar væru veðsettar fyrir enska láninu. Ég leiðrétti hann þá úr sæti mínu og sagði, að tolltekjurnar væru veðsettar. En hann neitaði aftur. Ég fór þá að vörmu spori og gerði ráðstöfun til þess að ná í þessi skjöl, sem ég las upp úr og sumir hv. þdm. hafa nú athugað með sínum eigin augum.
Hv. þm. sagði, að mér hefði verið falið sérstaklega að sjá um hag Íslandsbanka og bæri því ábyrgð á því, hvernig komið væri fyrir bankanum: Ég er á gagnstæðri skoðun, að mín fyrsta skylda væri að sjá um Íslandsbanka, þó að ég samkv. embætti mínu sé formaður bankaráðsins. Ég álít, að ég hafi fyrst og fremst átt að sjá um hagsmuni Íslands og þjóðarinnar í heild. Það er náttúrlega gott á meðan hagsmunir Íslands og Íslb. fara saman. En þegar leiðir skilur, þá tel ég það skyldu mína að taka Ísland fram yfir.
Við hv. 2. þm. G.-K. hefi ég lítið að segja. Hann játaði, að eftir skuldabréfinu mætti líta svo á, að tolltekjurnar væru veðsettar. Og það eru einmitt skuldabréfin, sem allur fjöldinn sér. Þess vegna er það voðalegt fyrir lánstraust landsins að auglýsa það í 50 punda nóttum, sem dreift er út um enska ríkið, að einu sinni hafi verið fjármálaráðherra á Íslandi, sem veðsett hafi tolltekjur landsins.