16.04.1930
Efri deild: 81. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 325 í D-deild Alþingistíðinda. (3672)
231. mál, húsrúm fyrir listaverk landsins
Halldór Steinsson:
Úr því að rætt er um listaverk, vil ég leyfa mér að beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að hann hlutist til um, að skrípamyndir þær, sem hanga í hliðarherbergi þessarar deildar, og jafnvel fleiri myndir, sem húsið er talið prýtt með, verði teknar niður fyrir hátíðahöldin í sumar, því að þær mundu gefa útlendingum miður góða hugmynd um listasmekk Íslendinga.