15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 329 í D-deild Alþingistíðinda. (3679)

278. mál, landsspítalinn

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Ég hygg, að hv. fyrirspyrjandi þurfi ekki að vera neitt hissa á því, þótt fyrirspurn hennar sé ekki svarað fyrr en nú. Í tíð þeirrar stj., sem hv. fyrirspyrjandi studdi, var það alsíða að svara fyrirspurnum ekki. Annars skoða ég það sem sérstaka aukakurteisi við hv. 2. landsk. þm. að svara þessari fyrirspurn, því að hún er þess eðlis, að óþarft var að spyrja, vegna þess að verkin tala sjálf.

Ég vil byrja á því að spyrja hv. 2. landsk. þm. einnar spurningar: Þeirrar spurningar, hver aðstaða hennar hafi verið til söfnunarsjóðs landsspítalans, hversu mikið fé sé nú í sjóðnum og hversu miklu hafi verið eytt. Ég vil ennfremur leyfa mér að spyrja hv. 2. landsk. þm., hvaðan henni og þeim öðrum konum, sem tóku við þessu fé í ákveðnum tilgangi, hafi komið réttur til að koma fram sem samningsaðili gagnvart Alþingi. Þetta var gert í heimildarleysi, og því er þessi samningur skoðaður sem nokkurskonar fjölskyldumál innan flokks hv. þm. Það var vitanlega ekkert annað en skrípaleikur að vera að láta Alþingi gera samninga við ómyndugan aðila, og ég vil taka burt allar tálvonir hjá hv. 2. landsk. þm. um það, að svo hafi verið litið á af öðrum en flokksbræðrum hennar, að hér væri um samninga að ræða. Það væri meira að segja ástæða til að fresta landsspítalamálinu, til þess að hv. 2. landsk. þm. gæfist tækifæri til að fara í skaðabótamál út af þessum familíusamningi.

Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að undanfarið hefir verið unnið við landsspítalann af mikilli elju, enda er honum nú svo langt komið, að búizt er við, að Vestur-Íslendingar geti notað hann sem dvalarstað þann mánaðartíma, sem þeir dvelja hér. Það er þegar búið að koma fyrir raflýsingu og miðstöð í húsinu, olíubera gólfin, setja tilheyrandi tæki í eldhúsið, koma fyrir kæliklefum og þrífa til í kringum húsið, að vísu ekki eins og endanlega verður, en þó svo, að landið er nú afgirt og að mestu grænt og gróið.

Eins og ég áðan sagði, er búizt við, að Vestur-Íslendingar búi í spítalanum, þegar þeir koma hingað í sumar, 200–250 talsins, og þegar þeir fara heim aftur, verður ekki hægt að komast hjá því að gera eitthvað við húsið, hvað vel sem þeir ganga um það. Verður þá lokið við að setja röntgenáhöld í kjallarann og fá rúm, borð og allan annan útbúnað í spítalann. Hversu langan tíma þetta allt saman tekur, er ekki gott að segja. Það dragast oft lengi síðustu aðgerðir við hús, þó að minni séu en landsspítalinn. Og getu ríkissjóðs til að fullnægja hinum ýmsu þörfum landsmanna eru takmörk sett. Hinsvegar verður ekkert tímatakmark um það sett, hvenær spítalinn tekur til starfa. Ef vel gengur, verður það sennilega í haust, en getur þó dregizt til nýárs, ef einhverjar ófyrirsjáanlegar tafir verða í vegi, og ef til vill lengur, þó að unnið verði af kappi að þessu, vegna hinna almennu þarfa, sem á því eru, að spítalinn taki til starfa sem fyrst.

Eins og ég tók fram við 3. umr. fjárl. hér í þessari hv. deild, hafa þeir þrír læknar, sem búizt er við, að aðallega starfi við spítalann, þeir Guðmundur Thoroddsen, Jón H. Sigurðsson og Gunnlaugur Claessen, allir verið utanlands síðustu missiri, til þess að safna síðustu áhrifum, áður en gengið verður frá deildum þeirra hvers um sig. (IHB: Það er heldur fróðleikur í þessu!). Ef ekki er fróðlegt að hlusta á þetta, sýnist sem lítil ástæða hafi verið til að spyrja um það. Það er öllum kunnugt, að unnið hefir verið jafnt og þétt að þessu máli, og það verður ekkert frekar gert í því, hvort sem verið er að reka á eftir eða draga úr, heldur verður fylgt eðlilegri þróun. (IHB: Laugarvatnsskóla-þróuninni?). Þar gengur það nú seinna en með landsspítalann, eins og hv. þm. gæti sannfærzt um með því að koma þangað austur.

Hv. 2. landsk. þm. spurði um margt: Starfsmannahúsið, þvottahúsið, líkskurðarhúsið o. s. frv. Stafar það sennilega af misskilningi, að hv. þm. hélt, að þvottahúsið ætti að vera í kjallaranum. Slíkt hefir ekki komið til mála. Læknunum, sem við spítalann eiga að vinna, þykir það jafnvel galli, ef eldhúsið verður haft í kjallaranum, vegna þess, að erfitt verður að hindra, að matarlyktina leggi um húsið. Er þetta einn af þeim göllum, sem þeir bera ábyrgð á, er réðu gerð spítalans upprunalega, og ef til vill einn af meiri háttar göllunum.

Það er gert ráð fyrir, að þvottahúsið verði byggt í sumar ofan til við spítalabygginguna sjálfa, og þar verði einnig þvegið fyrir Kleppsspítalann og Vífilsstaðahælið. Kom til mála, að Laugarnesspítali yrði tekinn með, en við það var hætt. Það reyndist óhentugt að hafa vélasalinn undir íbúð starfsfólksins, en í sambandi við þvottahúsið er gert ráð fyrir líkhúsi og líkskurðarstofum. Hvort starfsfólkið verður látið búa yfir vélasalnum, er talið óhentugt, eins og ég sagði, þó að skiptar skoðanir séu um það. Verður því íbúð þess, ef til vill, komið fyrir með öðrum hætti.

Það er ein ástæða fyrir því, að ég hefi ekki talið rétt að þrýsta þessari byggingu áfram meira en gert hefir verið, og hún er sú, að það er meira en nóg fyrir ríkið að byggja fyrir nokkur hundruð þúsunda árlega, auk þess sem gætt hefir svo mikillar óframsýni og svo mikillar eyðslu í heilbrigðismálum okkar, að eigi er ástæða til að vera of örlátur, þegar um þau er að ræða. Ég vil minna á þá fásinnu, þegar hv. 2. landsk. þm. reyndi á þinginu 1923 að knýja fram þrefalt stærri teikningu en byggt var loks eftir. Hefði byggingin með því móti orðið okkur alveg ofviða, en þetta sýnir vel óframsýni og gáleysi þeirra, sem að þessum málum stóðu. (IHB: Var það ekki húsameistari, sem bjó til teikninguna?). Jú, að vísu, en hann hafði engin afskipti af því, hvað byggingin yrði höfð stór, heldur réðu nokkrir læknar því, en einkum þó Guðm. Hannesson. Næst honum átti hv. 2. landsk. þm. sinn þátt í því, að bygging landsspítalans varð að bíða á sínum tíma, vegna þess, hversu upphaflega var flanað að því máli.

Alþingi fékk nokkra reynslu í því 1921, hversu hollt það er að gefa sig á vald læknanna í heilbrigðismálunum, þegar þrír hinir „ágætustu“ læknar landsins lögðu með samþykkt berklavarnarl. og héldu því fram, að með þeim yrði berklaveikinni útrýmt úr landinu á tiltölulega skömmum tíma og með tiltölulega litlum kostnaði. Alþingi var svo barnalegt að fara að ráðum læknanna og samþ. lögin, og stj. svo barnaleg líka að ganga inn á þetta, og því fór sem fór. Það er því með ráðnum huga, að ég hvorki tek tillit til þess, sem hv. 2. landsk. þm. né heldur frekjufullir vinir þm. í læknastétt segja í þessu máli. Mér dettur ekki í hug að vera ginningarfífl ábyrgðarlausra persóna, sem ekkert hugsa um fjárhag landsins, heldur einungis um það, að eyða og spenna jafnt og þétt. Hv. 2. landsk. þm. getur verið róleg með það, á meðan ég er í stj., að unnið verður hægt og hægt að landsspítalanum, a. m. k. svo lengi sem Alþingi skipar ekki öðruvísi fyrir. En ótilkvaddur mun ég ekki verða um of greiðvikinn við það fólk, sem stóð að þriggja milljóna-planinu. Á fyrsta þinginu, sem ég sat, var það plan stöðvað og málinu komið inn á þá braut, sem það hefir verið síðan.

Ég geri ráð fyrir, að síðar verði byggt yfir starfsfólk spítalans. Það fer eftir því, hvernig spítalinn fer af stað og hversu miklar þarfir hans verða. En það er undarlegur hugsunarháttur þeirra manna, sem virðast vera ánægðir með Landakotsspítala, eins og er um marga lækna hér í Reykjavík, en eru svo ekkert nema eyðsla og stórhugur, þegar landið á að fara að byggja spítala. Ég hefi áður drepið á þriggja-milljóna-planið. Ég viðurkenni það fúslega, að það er þjóðar- og bæjarsmán að hafa ekki annan spítala en Landakotsspítala, og því hefi ég unnið að því að leysa þetta mál á hóflegum grundvelli. En þetta verður allt að hafa sinn rólega gang eftir þörfum og getu þjóðarinnar. Það þýðir ekkert að ætla sér að stökkva úr baðstofunni í Landakoti inn í einhverja konungshöll, eins og óneitanlega virðist vaka fyrir æðimörgum í þessu máli.

Hv. 2. landsk. spurði um það, hvernig séð yrði fyrir námi yfirsetukvenna og stúdenta í sambandi við landsspítalann. Það fer eftir því, sem kaupin gerast á eyrinni. Það verður unnið að því að þoka þessu sem öðru áfram, eftir því sem geta og peningar leyfa.

Hv. 2. landsk. þm. spurði ennfremur um það, hvers vegna ekki væri áætlað fé í fjárl. til rekstrar spítalanum. Hér er því til að svara, að ef orðið hefði erfitt ár nú, gat það vel dregizt eitt ár enn, að spítalinn tæki til starfa, og þar sem allt var í óvissu um það, var engin ástæða til að gera ráð fyrir þessu í fjárl., enda hefir Alþingi samþ. að byggja spítalann og verður því að sjálfsögðu að sjá fyrir hóflegum útgjöldum í sambandi við hann. Annars verð ég að segja það sem mína skoðun, að ég álít, að spítalinn eigi að mestu leyti að bera sig sjálfur. Hv. 2. landsk. þm. er það ef til vill kunnugt, að ég hefi reynt að vinna að því, að nýi spítalinn á Kleppi yrði ekki eins mikill baggi á ríkinu og sá gamli, og orðið nokkuð ágengt í því efni. Gamli spítalinn tekur 1.50 kr. fyrir sjúklinginn á dag, og er þó kostnaðurinn við hann 4 kr. Í nýja spítalanum borga sjúklingarnir aftur á móti 3 kr. á dag, svo margir sem það geta. Það má vel vera, að Alþingi sjái ástæðu til að breyta þessu, en ég lít svo á, að það hafi verið svo mikill velgerningur að koma upp þessum spítala, að vel sé að verið, þótt allur rekstrarkostnaðurinn sé ekki um leið tekinn á landið, eins og sumir vilja.

Ég sé ekkert því til fyrirstöðu, að landsspítalinn geti verið sjálfstæð stofnun. Aðallæknar hans eru jafnframt starfsmenn landsins, þar sem þeir eru prófessorar við háskólann. Verður ef til vill að greiða þeim einhverja aukaþóknun fyrir skurði o. fl. læknisaðgerðir, en það hefir verið planlagt, að sú starfsemi geti borið sig og spítalinn geti sjálfur staðið straum af þeim kostnaði, sem af henni leiðir, með því að selja þó alla læknishjálp við mjög hóflegu verði. Það er ekki gert ráð fyrir, að reiknaðir verði vextir af húsbyggingunni, og er þá ekki annað eftir en hiti og fæði, ljós og hjúkrun, og sé ég ekkert því til fyrirstöðu, að sjúklingarnir borgi það.

Ég veit, að það vakir fyrir mörgum, að landsspítalinn eigi að verða einhver undirballansstofnun að erlendri fyrirmynd. Og ég skil hv. 2. landsk. þm. svo sem hún sé inni á þeim vegum, því að ella hefði hún ekki farið að bera fram þessa fyrirspurn. En ég vil sjá það fyrst, hvort spítalinn geti ekki borið sig sjálfur, og þegar fengin er reynsla í því efni, getur verið, að Alþingi samþ. l. um það, að enginn sjúklingur skuli greiða meira en 3 kr. á dag, enda þótt þannig verði mikill tekjuhalli á spítalanum. En slíkt kemur ekki til greina, nema Alþingi fyrirskipi það.

Ég vil aftur beina þeirri spurningu til hv. 2. landsk. þm., hversu mikið fjársöfnunarnefndin hafi handa á milli af því fé, sem safnað hefir verið til spítalans, og hvort það verði ekki afhent til afnota í þágu hans, en ef svo verður ekki gert, með hvaða rétti n. hafi lagt hendur á þetta fé.