15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 350 í D-deild Alþingistíðinda. (3683)
278. mál, landsspítalinn
Jón Þorláksson:
Hæstv. dómsmrh. hefir nú algerlega horfið frá þeim ummælum í fyrri ræðu sinni, að fyrrv. stj. hafi brostið heimild til þess að gera samning um byggingu landsspítalans frá 24. apríl 1925. En nú reyndi hann aftur að hengja sig á það hálmstrá, samningnum til ógildingar, að landsspítalasjóðsstjórnina hefði brostið heimild til að setja viss skilyrði fyrir þeim framlögum, sem hún hafði með höndum.
Ég get ekki skilið, að slíkum manni sem hæstv. dómsmrh. skuli geta oltið slík fjarstæða út úr munni, því það er öllum ljóst, að það er höfuðskilyrði, sem spítalasjóðsstjórninni var ekki aðeins rétt, heldur skylt að setja, að spítalanum verði komið upp og hann tekinn til rekstrar gegn framlagi þess gjafafjár, sem sjóðsstjórnin hafði veitt viðtöku. Ef landsspítalasjóðsstjórnin hefði ekki gert þetta, var hún ábyrg fyrir það að misnota það traust, sem henni var sýnt, þegar henni var fengið féð í hendur. Ég veit, að hæstv. ráðh. skilur þetta, ef hann getur fest athygli við það eitt augnablik. Og landsspítalasjóðsstjórnin hefði getað sett fleiri skilyrði, t. d. um stærð spítalans, því einhverjar takmarkanir verða að vera fyrir því, með hverjum hætti óskum gefendanna sé fullnægt. Ég held líka, að að því leyti, er snertir sérstök skilyrði um gerð byggingarinnar, hafi stjórn landsspítalasjóðsins haft ótvíræðan vilja meiri hluta gefendanna á bak við sig. Það er því ekki óeðlilegt, að það hafi komið krafa um sérstaka fæðingardeild við spítalann, þar sem það er aðallega kvenfólk, sem hefir safnað fénu. Mér finnst a. m. k. sjálfsagt, að sjóðsstjórninni sé heimilt að bera fram óskir um þessi efni, og ég álít ríkisstj. heimilt að taka þær óskir til greina, og eru þær þá á löglegan hátt komnar fram sem samningsatriði. Og hæstv. dómsmrh. þarf ekki að segja neinum skynbærum manni, að núv. stj. sé ekki bundin við þennan samning. Hann skuldbindur hverja einustu stjórn, þar til honum er fullnægt.
Að öðru leyti tók hæstv. ráðh. upp sinn venjulega hátt og fór að tala um önnur mál. Hæstv. ráðh. sagði, að fjársöfnunarnefnd Íslandsbanka hefði komið upp í stjórnarráð og látið þar dólgslega. Ég verð að segja hæstv. ráðh., að það var einhver annar en fjársöfnunarnefndin, sem lét þar dólgslega í meira en klst. og vék svo burt, og var þá fyrst hægt að fara að tala um málið.
Þá sýndi hæstv. ráðh. þessari hv. þd. þann heiður að fara að tala hér um þýzkt hjónaband. Ég sé, að það þarf ekki að vanta á þessu 1000 ára afmæli Alþingis, sem nokkuð mikið var notað á 1. öld okkar sjálfstjórnar, og það er að hafa það, sem kallað er fífl, til þess að skemmta mönnum á hátíðlegum samkomum. Hæstv. ráðh. hefir nú vakið þetta hlutverk upp með tali sínu, svo sem með frásögninni um þetta þýzka hjónabandsmál og sem ég vona að verði vandlega skráð í Alþingistíðindunum sem vottur um niðurlægingu þeirrar stj., sem hér var við völd þegar Alþingi hélt 1000 ára afmæli sitt.