15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í D-deild Alþingistíðinda. (3686)

278. mál, landsspítalinn

Halldór Steinsson:

Ég er alveg hissa á því moldviðri, sem hæstv. dómsmrh. þyrlar hér upp til að hylja það sanna í málinu. Hæstv. ráðh. segir, að gjafir þær, sem kvenþjóðin hefir safnað til landsspítalans, hafi verið skilyrðislaust gefnar. En það nær ekki nokkurri átt, að aðili, sem leggur fram 1/3 hluta kostnaðar til fyrirtækis, áskilji sér engan rétt til íhlutunar um fyrirkomulag þess. Og þó gefendurnir hafi ekki sett nein skilyrði í fyrstu, þá hafa nú stjórnarvöldin samið við fulltrúa kvennanna og þar með viðurkennt samningsrétt þeirra og umboð nefndarinnar. Það er því ekki hægt að segja eftir á, að þessi samningur sé ógildur. Engin stj. hefir leyfi til að ógilda samninga, sem fyrrv. stjórnir hafa gert fyrir ríkisins hönd. Enda var nú hæstv. ráðh. heldur farinn að lækka seglin og segja, að það yrði nú kannske fullnægt skilyrðum samningsins.

Það er enginn vafi á því, að samningurinn er gildur. Vil ég í því sambandi minna á annan samning, samninginn, sem stj. gerði, er hún tók við Staðarfellsgjöfinni. Það komu seinna fram raddir um það á Alþ., að ónýta ætti þann samning, af. því hann kæmi í bága við gjafabréfið. En þingið hefir ekki séð sér fært að hrófla við þeim samningi, og var þó óneitanlega frekar ástæða til þess heldur en að ónýta þann samning, sem hér er um að ræða.

Annars fannst mér hæstv. ráðh. sjálfum sér ósamkvæmur í ræðum sínum.

Annað veifið var hann að tala um, að það gæti dregizt talsvert, að landsspítalinn yrði fullgerður, en í hinu veifinu kvaðst hann hafa mikinn áhuga á, að hann gæti tekið til starfa sem fyrst. Í því sambandi kvaðst hann vera mjög óánægður með Landakotsbaðstofuna svokölluðu, en vildi halda fram, að læknarnir væru mjög ánægðir með hana.

En ég fullyrði, að þeir eru það ekki, og þess vegna vilja þeir, að hert sé á byggingu landsspítalans. Sé hæstv. ráðh. eins óánægður með Landakotsspítalann og hann lætur, ætti það að vera honum mikil hvöt til að láta landsspítalann taka til starfa sem allra fyrst.

Þá minntist hæstv. ráðh. á kostnaðarhlið þessa máls. Hann sagðist vilja haga spítalarekstrinum þannig, að spítalarnir bæru sig að sem mestu leyti sjálfir. Vildi hann hæla sér af því, að hafa komið þannig fyrirkomulagi á á Kleppi, að spítalinn væri nú ríkinu minna til byrði en áður. Spítalarnir verða auðvitað ódýrir ríkinu, ef sjúklingunum er íþyngt með gjöldum, og það er mjög einfalt að lækka rekstrarkostnaðinn á þann hátt. En ég held það borgi sig illa að hafa sjúkrahúsvistina svo dýra, að menn geti e. t. v. ekki notið hennar fyrir það. Hjúkrunar þarfnast jafnt ríkir sem fátækir, en ef hún er of dýr, verða hinir fátækari útundan. Allir borga jafnt í ríkissjóð, eða þeir fátækari a. m. k. ekki tiltölulega minna en hinir ríkari, og þess vegna eiga allir að geta notið þeirra stofnana, sem ríkið heldur uppi. Því er það misráðið að hafa legukostnað í sjúkrahúsunum háan. Ég álít það sé eins með sjúkrahúsin og skólana og fleiri slíkar stofnanir, að heppilegast sé að reka þau sem mest á kostnað ríkisins.

Ég ætla svo ekki að fara frekar út í ræðu hæstv. ráðh.; læt aðra um að svara því, sem ekkert kemur þessu máli við, ef þeir sjá ástæðu til þess.