28.06.1930
Neðri deild: 86. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2477 í B-deild Alþingistíðinda. (3694)
Starfslok neðri deildar
Forseti (BSv):
Það liggur ekki annað fyrir en að slíta hinum hinnsta fundi þeirrar þingsetu, er vér höfum átt á þessu fyrsta ári hins nýja tímabils þúsund ára, sem hefst með setu þessa Alþingis, er kallað var saman hinn 17. janúar í vetur.
Hér verður ekki skýrt frá störfum þessarar deildar, sökum þess, að hæstv. forseti sameinaðs þings hefir skýrt frá gerðum þingsins áður, á síðasta fundi, er haldinn var í Reykjavík í vor. Liggur því ekki annað fyrir heldur en segja upp þessum síðasta fundi vorum.
Það er á mjög hátíðlegri stundu og hátíðlegum stað, er oss gefst nú kostur að slíta þessum hinnsta fundi þessarar þingsetu vorrar. Síðan endurreisn Alþingis hófst, höfum vér aldrei átt þess kost að slita þingfundi vorum á þessum fornhelga stað, Lögbergi Íslendinga. Vér stöndum hér á þeim stað, sem var grundvöllur hins fyrsta Alþingis, þar sem Úlfljótur stóð, er hann setti hið fyrsta þing vort. Hér stóðu allir lögsögumenn Íslendinga og sögðu fram þingsköp hvert ár og öll lög landsins á hverjum þremur sumrum.
Vér höfum og aldrei haft svo marga og göfga áheyrendur, þá er vér höfum lokið þingstörfum, sem nú. Er þetta hvorttveggja oss hinn mesti fögnuður og sómi.
Ég vil þakka öllum hv. þingdeildarmönnum fyrir ágæta samvinnu á þessu liðna þingi, árna þeim öllum farsællar og góðrar ferðar brott frá þingstörfunum og óska þeim allra heilla.
Vil ég svo, um leið og ég læt þess getið, að lokið sé störfum þessarar hv. deildar, óska þess, að oss megi framvegis hlotnast hylli allra verndarvætta þessa lands, þeirra er land vort hafa varið um þúsund ár. Hjálpi oss svo Freyr og Njörður og Áss hinn almáttki.
Segi ég svo þessum hinsta fundi þessarar samkomu slitið.