24.03.1930
Neðri deild: 61. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 489 í B-deild Alþingistíðinda. (3696)

1. mál, fjárlög 1931

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Ég ætla fyrst að svara hv. 2. þm. Reykv. og síðan hv. 1. þm. Reykv. nokkru, sem ég geymdi frá í dag, og síðast hv. þm. Borgf.

Hv. 2. þm. Reykv. kvað sér þykja það miður fara, að áfengisverzlun ríkisins, sem hefði yfirleitt losnað við útlenda milliliði og að ýmsu leyti bætt rekstur sinn, skyldi fá eitthvað af vinum sínum fyrir tilstilli innlendra kaupmanna.

Ég er ekki svo kunnugur þessum hlutum, að ég geti fyllilega upplýst um þetta, en ég hygg, að það muni að minnsta kosti þykja bót í máli, ef útlendir milliliðir eru nokkurn veginn horfnir, þó að eitthvað kunni að vera af innlendum sem stendur.

En ég ætla að nota tækifærið, sem mér er gefið af hv. 2. þm. Reykv., til þess að minna hv. þm. Borgf. á það, að á undanförnum árum hefi ég fengið harða gagnrýni frá íhaldsmönnum fyrir breytingarnar á áfengisverzluninni. Frá hv. 1. þm. Reykv. hefi ég líka fengið andóf um annað málefni út af embættaveitingu, nefnilega að fara ekki eftir starfsaldri, heldur mest eftir hæfileikum og líkum fyrir því, að menn stæðu vel í embætti og væru vel liðnir af beim, sem eiga að njóta starfs embættismannanna.

Ég vil þá minna hv. þm. Borgf. á það, að hann, sem er reglumaður sjálfur og vill hafa reglu, hefði átt að stilla sig um að kasta hnútum að þeim manni, sem stýrt hefir áfengisverzluninni nú í 2 ár. Því að hann tók við verzluninni í mestu eymd og vesaldómi og hefir rétt hana við svo að ekki verður um það deilt.

Ég ætla að lesa upp fáeinar tölur um mismunandi afkomu áfengisverzlunarinnar í tíð fyrrv. og núv. stjórnar.

Fyrstu sex árin, sem Íhaldið hafði yfirstjórn áfengismálanna, var salan að meðaltali millj. kr., en síðustu tvö árin var hún 2 milljónir.

Nú veit ég, að hv. þm. Borgf. mun gleðjast lítið yfir því, að salan er meiri. En sala löglegra vína er meiri sökum þess, að minna er smyglað; það er meira tolleftirlit og meiri gæzla.

Nei, við erum sammála um það, að vínið er böl. En við getum sem þingmenn og borgarar glaðzt yfir því, að vínið sé þó frekar selt eftir löglegum leiðum en ólöglegum. Fyrstu sex árin, sem verzlunin var rekin, nemur gróðinn af rekstrinum 233 þús. króna fyrir utan toll; en tvö síðustu árin nemur hann að meðaltali 777 þús. króna. Á tímum íhaldsins eru útistandandi skuldir áfengisverzlunarinnar hjá innlendum viðskiptamönnum um áramót að meðaltali 372 þús. kr. Nú voru skuldir — að meðtöldum gömlu leifunum — 95 þús. kr. um síðustu áramót. Af þeim er talið tapað um 50 þús. kr., syndir frá íhaldstímanum. Nýjar skuldir hafa engar safnazt hjá áfengisverzluninni á þessum tíma, nema kannske hjá einstöku héraðslækni nokkur hundruð krónur fyrir meðul, og það þó aðeins part úr ári. En yfirleitt hefir þess verið stranglega gætt, að lána ekki áfengi.

Þá er rekstrarkostnaðurinn. Hann var á íhaldsárunum sex 9–11% af veltunni. Í fyrra var hann 8,25% og á síðasta ári 5,9%.

Ég held að þessar tölur tali. Niðurstaðan af aðgerðum stjórnarinnar í áfengismálinu er þessi: Það hefir tekizt að stórminnka smyglun, en við það hefir lögleg sala aukizt. Tekjur ríkissjóðs af verzluninni hafa aukizt að sama skapi, þannig að á síðasta ári var verzlunarágóðinn yfir 1 millj. króna. Því hefir nú verið haldið fram, að það væri óhóflegt mannahald og eyðsla við að stýra verzluninni, en reyndin er þessi, að kostnaðurinn hefir minnkað um allt að helming frá því sem áður var.

Ég ætla að benda hv. þdm. á það, að ég tek þetta dæmi um áfengisverzlunina af handahófi. Ég tek það aðeins til að sýna muninn á því, hvað er ráð og hvað óráð, hvað er stjórn og hvað er óstjórn, hvað er íhald og hvað er framsókn. Umskiptin í áfengismálunum eru umskipti í þjóðlífinu.

Hv. þm. Borgf. vill ekki sjá, að með aukinni ráðdeild og aðhaldi græðir ríkissjóður á víneinkasölunni mörg hundruð þús. kr. fram yfir það, sem gerðist í tíð íhaldsins. En á hinn bóginn man sami hv. þm. vel eftir því, ef einhver fræðimaður fær nokkur hundruð króna styrk til að fara utan á alþjóðafundi. Jafnvel flokksbræður hv. þm., eins og dr. Guðm. Finnbogason og dr. Ólafur Dan Daníelsson, fá enga miskunn hjá þessari höfuðaurasál Alþingis. Ég ætla þá ennfremur að gleðja hv. þm. Borgf. og aðra samskonar sparnaðarmenn með því að játa það, að ég eyddi á þennan hátt í hitteðfyrra eitthvað 2 þús. kr. handa ungum lögfræðingi til þess að dvelja yfir sumarið í Þýzkalandi og víðar til þess að kynna sér stjórn lögreglumála. Síðan er hann orðinn lögreglustjóri hér í Reykjavík. Það embætti var tekið út úr öðru embætti þvert á móti vilja hv. þm. Borgf., enda þótt sparazt hafi tugir þúsunda með því. Nýlega hefir sannazt opinberlega, að aukatekjur, sem áður runnu í vasa hins fyrra lögreglustjóra af einni einustu skattheimtugrein, voru um 30 þús. kr. eitt árið. Nú renna þessar aukatekjur í ríkissjóð. Hv. þm. Borgf. mun auðvitað telja mig hafa eytt þessum utanfararstyrk landinu til skaða. En hvað gerist? Þessi maður, Hermann Jónasson, hefir komið alveg nýju skipulagi á lögregluna. á einu ári. Bæjarstjórnin, með íhalds-meirihluta, viðurkenndi Hermann Jónasson og hans stjórn og fjölgaði lögreglumönnum nálega um helming, og nú eigum við loks lögreglu, sem er valin og stjórnað og búið að eins og í menningarlandi. Varla hefir svo gerzt smáþjófnaður hér í bænum nú upp á síðkastið, að lögreglan hafi ekki komizt fyrir hann. En þegar Guðjónsmálið alkunna var á döfinni hjá hv. þm. Seyðf., var röggsemin býsna lítil. Í vetur, þegar hið ískyggilega morðmál kom fyrir, tók það ekki nema einn sólarhring að hafa upp á morðingjanum. Tökin voru nú orðin önnur.

Hv. þm. Borgf. kallar það sparnað að láta embættismenn fá 40–100 þús. í árstekjur, eins og hér átti sér stað um bæjarfógeta og lögreglustjóra. Hann barðist fyrir að halda þessum embættum óbreyttum. En honum ógnar almennt talað útgjöld, ef þau nema 1–2 þús., við að koma skipulagi á stórfellda embættisumbót, sem sparar tugi þúsunda af landsfé og er til gagns fyrir tugi þúsunda af landsmönnum.

Það eru einstöku aurasálir, sem hafa miklar mætur á þessum sparðatíning, eins og hv. þm. Borgf. En það verður aldrei gert neitt, sem gagn er að, með blindum smásálarskap. Hv. þm. Borgf. var ánægður með það, að Jón heitinn Magnússon samdi um eitt einasta embætti fyrir 40 þús. kr. á ári. En hann áfellist mjög, ef Páll Eggert kann að fá eitthvað yfir 12 þús. kr. En þótt einn bókari í Íslandsbanka hefði 15 þús. og næstu undirmenn 12 þús. kr., það er gott og blessað. (PO: Var það tekið af ríkisfé?) Hvernig var það, þegar hv. þm. kom og bað ríkið að taka ábyrgð á öllu sukkinu, sem þessi stofnun var komin í? Mér sýnast góðar horfur á, að ríkið borgi eitthvað af þessu. Og þetta dæmi sýnir, ásamt þeim endurbótum, sem framsóknarmenn hafa gert á lögreglunni og áfengisverzluninni, muninn á hugsunarhætti í flokkunum og starfsaðferðum. Ég læt þessi tvö dæmi nægja til að sýna muninn á vinnubrögðum íhaldsmanna og framsóknarmanna. Það mætti taka mörg dæmi til að sýna hið sama, en ég læt þetta nægja að sinni. Og ávöxturinn er auðsær hjá báðum.

Þá skal ég víkja aftur að hv. 1. þm. Reykv., og þá fyrst og fremst að flokksskoðun hans viðvíkjandi Þingvöllum. Ég tala þá ekki við hann sem þingmann, heldur sem flokksmann, því að hv. þm. er mér í raun og veru sammála viðvíkjandi Þingvöllum. Hann skrifaði allgóða grein fyrir fáeinum árum um að flytja Alþingi til Þingvalla, en síðan hefir hann unnið það til samkomulags við sinn flokk og sína kjósendur að vera á móti þessu. Vegna hátíðahaldanna hefir verið byggður laglegur steinbær með torfþaki á Þingvöllum, og Valhöll og konungshúsið flutt úr þinghelginni, þar sem þessir timburkofar voru til mestu lýta, á stað, þar sem lítið ber á þeim, og er þinghelgin þar með búin að fá sitt upprunalega útlit.

Þetta er nú það, sem flokksbræður hans áfellast. Nú vil ég gefa glögga lýsingu á, hvað fyrir mér vakir, og fyrir hv. 1. þm. Reykv. að því leyti, sem hann myndar sér sjálfur skoðun um málið. Það er, að Þingvellir eigi að vera fagur staður og vel við haldið; sléttir og grösugir vellir, skógar báðu megin við hinar grænu grundir, fossinn óvirkjaður, smekklegur vegur heim að bænum, hús reisuleg og vel við haldið, og kirkjan endurbyggð. Skógurinn á, eins og í fornöld, að vaxa um allt Þingvallahraun.

Þetta er hugsjón okkar, sem viljum vernda Þingvelli. Ég hygg, að hv. þm. Dal. sé skoðanabróðir minn um þetta yfirleitt, enda á hann sinn þátt í umbótum þessum, sem Mbl. hefir svo mjög hallmælt fyrir hönd flokks síns. Og við höfum gjarnan viljað nota tækifærið til að prýða staðinn einmitt fyrir þúsund ára hátíðina. Þessi skoðunarháttur hefir líka orðið ofan á í nefndinni. Það er þessi skoðunarháttur, sem þjóðin er með. En svo eru það einstaka leiðinlegar aurasálir, sem vilja vinna það til að hafa sauðbeit á tveim smábýlum í Þingvallahrauni, þó að það kosti að eyðileggja allan skóginn. Þeir vilja sýna okkar útlendu gestum þann, aumasta bæ á öllu Suðurlandi, óreglulegan sem mest má vera, með mörgum skúrum og lítið smekklegum viðbyggingum og flestu, sem óprýða má sveitabæ fátæklinga í regnhéruðum. En svona bæ vilja íhaldsmenn sýna 20 þús. gestum nú í vor á Þingvöllum.

Þetta vilja þeir þjóðræknu menn ekki gera. Og við hv. 1. þm. Reykv. vil ég segja það, að hann á að þora að fylgja sannfæringu sinni um það, að Þingvellir eigi að verða virðulegur staður og fagur. Það er heldur alls ekki víst, að hann myndi tapa fylgi kjósenda við það. Mitt fylgi hefir einmitt aukizt við það, að ég þori að hætta á að fylgja góðum málefnum. Og ég hygg, að bæði hv. þm. Borgf. og hv. 1. þm. Reykv. myndu vaxa af því, ef þeir hættu að spyrja allra óþroskaðasta hluta kjósenda sinna um ráð í vandasömustu málum og fylgja hleypidómum slíkra ráðgjafa í blindni.

Þá kem ég að embættaveitingum. Fyrst er það rektorsembættið, sem gefur mér tilefni til að minnast nokkru ítarlegar á Menntaskólann og mismunandi skoðanir um hann. En af því að margir hlusta nú á mitt mál, sem ekki heyrðu ræðu hv. þm., ætla ég að gera nokkra grein fyrir helztu atriðum, sem hann byggði á.

Hv. þm. sagði, að það hefði verið höfuðsynd að setja sem rektor í Menntaskólanum ungan náttúrufræðing, sem ekki hafði verið nema nokkur ár kennari við Akureyrarskólann. Hann sagði, að langtum framar Pálma Hannessyni hefði átt að velja einhvern af hinum fimm gömlu kennurum, sem sóttu. Ef ráðherrann tók ekki þann elzta, þá gat hann tekið einhvern; hann gat látið draga á milli þeirra eða varpað hlutkesti! Yfirleitt gert allt, sem tryggði það, að ekki kæmi að skólanum tiltölulega ungur og hraustur maður, sem hefði menntazt í þróunarvísindum náttúrufræðinnar. En aðalskoðun hv. þm. er sú, sem kom fram í umræðum um skipstjórastöður á varðskipum og læknaveitingar, að yfirleitt eigi aldurinn að ráða embættisveitingum. Sá elzti er beztur. Sá yngsti lakastur. Annars voru skoðanir um þetta á reiki í hans flokki, sem sést á því, að annan daginn mælti „Morgunblaðið“ í nafni flokksins með Þorleifi Bjarnasyni sem elzta manni skólans, en hinn daginn með Jóni Ófeigssyni, sem þeim helzta, en alls ekki þeim elzta. Þarna sást glöggt baráttan milli holdsins og andans; og ekkert samræmi varð í skoðunum blaðsins. Aðeins fá einhvern, sem skólinn var sjálfur búinn að móta, svo að ekki þyrfti að óttast verulegar umbætur á skólalífinu.

Þessi skoðun, sem hv. 1. þm. Reykv. heldur fram, er skoðun allra kyrrstæðra og þröngsýnna manna. Það er skoðun allra, sem álíta, að embætti séu til vegna embættismanna, sem gegna þeim. En gagnstætt þessu er sá skoðunarháttur, sem allir sómasamlegir menn fylgja, að opinberu störfin séu til fyrir þjóðfélagið, og að í hverju starfi eigi á hverjum tíma að vera sá bezti maður, sem er fáanlegur. Þarna er heil gjá á milli. Og þessi breiða og djúpa gjá er meira og meira að skilja framsóknarstefnuna og íhaldsstefnuna. Og sá maður, sem er búinn að komast að fastri niðurstöðu, á auðvelt með að leysa hvert einstakt embættisveitingamál. Mitt val er algerlega byggt á þessu, að það eigi að leita uppi hæfasta manninn á hverjum tíma. (ÓTh: Var það gert í Keflavík?). Hver af umsækjendum var betri en sá, sem starfið hlaut? Við skulum taka til dæmis, að ég hefði t. d. veitt lögreglustjóraembættið í Reykjavík elzta sýslumanni landsins. Mundi bæjarstjórn þá hafa fjölgað lögreglunni um helming? Mundi þá vera nýr svipur yfir lögreglunni? Ég segi nei. En hinir skynsamari íhaldsmenn, eins og Knútur Zimsen, fundu, að nú var þess vert að bæta kjör lögreglunnar, af því að ungur, röskur og vel hæfur maður stýrði henni. Eitt sinn var annar af aðalritstjórum Mbl. einskonar lögreglustjóri hér. En hann komst lifandi á flótta heim úr fyrstu orustunni, sem hann háði, og varð það Mbl. til góðs með andríkið og ritsnilldina.

Við skulum taka dæmi úr sögunni úr hinum stóru löndum. Frakkar völdu hershöfðingja sína nálega alla 18. öldina, fram að byltingunni miklu, úr aðalsstéttinni og eftir reglu hv. þm. Reykv. Hver varð árangurinn? Sífelldar hrakfarir, stríð eftir stríð, og aldrei meiri en í sjö ára stríðinu, þar sem við var að eiga Friðrik II. Prússakonung, sem hélt í heiðri þeirri reglu að velja menn til trúnaðarstarfa eingöngu eftir hæfileikum, en hvorki eftir ætterni, aldri eða vináttu. Frakkar völdu gömlu mennina eða stundum vini konungsvinanna í París. En allt gekk út á þetta, að láta embættishagsmunina ráða, eins og íhaldið vill vera láta um okkar litla þjóðfélag.

Ósigrar Frakka héldu áfram meðan þeir fylgdu hinni gullvægu reglu hv. 1. þm. Reykv., enda voru þeir alltaf að tapa þangað til stjórnarbyltingin reið yfir og hið gamla fyrirkomulag var þurrkað burt, þannig að aldrei hefir í veraldarsögunni verið vendilegar brotin stefna um embættaveitingar í hernum, og raunar alstaðar. Synir rakara og skósmiða urðu hershöfðingjar og stýrðu hersveitum þeim, sem á síðustu tíu árum 18. aldar fluttu sigri hrósandi frelsisboðskap hins nýja tíma yfir flest lönd á meginlandi álfunnar. Með þessari meginreglu flutti sigurgyðjan sig til Frakka, og leyndardómurinn í sögu þessarar þjóðar þá um stund er sá, að þá voru beztu hæfileikar gáfaðrar þjóðar leystir úr læðingi. Þá var ekki spurt um embættisaldur, heldur um hugkvæmd, þrek og karlmannshjarta.

Ég tek þessi stóru, þekktu dæmi úr sögu stórþjóðanna af því, að staðreyndirnar eru þar svo kunnar og viðurkenndar og um þær verður ekki lengur deilt. En um leið sést, hve veik stefna hv. þm. er, því að þau lögmál, sem ráða lífi og örlögum manna í stóru löndunum, eru í sama gildi meðal hinna fámennustu og minnstu þjóða eins og okkar íslendinga.

Nú vík ég aftur að setningu rektorsembættisins. Þetta er eiginlega gamalt deilumál, líka hér í okkar litla og afskekkta landi, hvort fremur beri að velja elzta manninn eða yngsta og þróttmesta manninn.

Þegar Sveinbjörn Egilsson var við Bessastaðaskóla, vildi hann fá Jón Sigurðsson að skólanum sem rektor, en Jón var þá kornungur maður. Eftir að Sveinbjörn lét af skólastjórn, var maður sóttur til Danmerkur til að fá nýtt blóð og þrek í skólastjórnina. Björn Ólsen var sannarlega ekki elzti kennarinn. Og þegar Ólsen fór frá, vildi Hannes Hafstein reyna að fá mann að til að bæta skólann, og valdi til þess Jóhannes Sigfússon frá Flensborg og gerði hann þegar í stað að yfirkennara og ætlaði á þann hátt að búa hann undir skólameistarastarfið. Úr því varð að vísu ekki, því að Hannesi hafði yfirsézt um valið og stjórnarhæfileika vantaði. Steingrímur Thorsteinsson var þá orðinn fjörlítið gamalmenni. Hann var elztur við skólann og Hannes Hafstein fylgdi reglu hv. 1. þm. Reykv. og gerði hann að skólameistara. Sömu reglu var fylgt við lát hans, er Geir Zoëga tók við. Báðir voru menn þessir miklir sómamenn og höfðu unnið mörgu þjóðnýt verk á yngri árum. En báðir voru þeir sökum aldurs og þreytu mjög lítt færir til að stjórna stórum skóla, með erfiða sambúðarsögu að baki. Þegar Steingrímur Thorsteinsson lét af embætti, var dr. Guðm. Finnbogason á léttasta skeiði og hafði farnazt vel erlendis. Vildi hann mjög gjarnan verða rektor, þótt aldrei hefði hann stundað kennslu sjálfur. Voru og ýmsir merkir menn allfúsir, að honum yrði þá veitt embættið. Það má kallast kýmni örlaganna, að nú í haust stýrði dr. Guðm. Finnbogason mótmælafundi nokkurra embættismanna, sem haldinn var í lestrarsal Landsbókasafnsins, þar sem fundurinn lýsti vanþóknun sinni á setningu Pálma Hannessonar, af því að hann væri ekki elzti starfsmaður við skólann. Sannaðist hér á þessum mæta heimspekingi, að enginn veit sína æfina fyrr en öll er.

En um það leyti, sem hugir margra manna, er vildu Menntaskólanum vel, beindust að dr. Guðm. Finnbogasyni sem líklegu rektorsefni við brottför Steingríms skálds, var í Nýju Kirkjublaði, sem Þórhallur biskup gaf út, ritað um þetta vandasama mál. Þá var einnig spurt: Hvort á að velja til skólaforstöðu elzta manninn eða bezta manninn. Auk Þórhalls biskups lagði einn af róttækustu afturhaldsmönnum landsins, prófessor Guðm. Hannesson, töluvert til málsins, og með því að hann er nú í elli sinni einhver blindasti Morgunblaðsmaður í landinu, þykir við eiga að láta samherja hans fá nokkra skeinu af vopnum hans. Er það því fremur viðeigandi, þar sem hann í þessu máli átti því fremur sjaldgæfa láni að fagna, að hafa í einu góðan málstað og sækja hann með drengskap og mannlund. Í Nýju Kirkjublaði 1913 gefur prófessor þessi lýsingu á Menntaskólanum á þeim árum, sem hann stundaði þar nám, milli 1880–90. Grein þessi birtist í Nýju Kirkjublaði 1913 (bls. 266–67) á þessa leið, og skal ég með leyfi hæstv. forseta lesa kafla úr henni :

„Ég þekki bezt til skólans á skólaárum mínum. Ég minnist þeirra enn með gremju og skelfingu, og það eftir svo mörg ár. Stjórn skólans var fráleit, enda mátti heita, að skólastjóri gengi í barndómi.

Stiftsyfirvöldunum (M. Stephensen) átti ég það eingöngu að þakka, að ég varð ekki að flæmast úr skólanum; þau létu mig njóta réttar míns, sem skólastjóri meinaði mér. Þessu líkt var flest annað. Kennarar voru sumir góðir t. d. Björn Ólsen, en ærið misjafnir. Flest, sem ég lærði, lærði ég sjálfur af bókum, þrátt fyrir alla kennara.

Sumir kennarar reyndust mér einskonar illir andar, sem sátu á svikráðum við pilta, reyndu að njósna, ef einhverjar yfirsjónir væri að finna, sem varðaði „nótu“. Og stundum tókst þetta svo, að piltar voru „nóteraðir“ alvarlega fyrir tóm ósannindi kennarans, og jafnvel ekkert tillit tekið til þess, þó pilturinn gæti fært óyggjandi vitni og sannanir fyrir sínum málstað. Það mátti og svo heita, að fullur fjandskapur væri yfirleitt milli pilta og kennara. Allt þetta ástand hafði siðspillandi áhrif á pilta og eflaust líka á kennarana sjálfa. Vekjandi áhrif frá kennurum, sem styrkt gætu vilja og siðferðisþrek, vakið fagrar hugsjónir og gert pilta að betri og meiri mönnum, varð ég aldrei var við, það ég get talið, en oft hið gagnstæða.

Áhrif skólans í heild sinni voru ill og gerðu piltana að verri mönnum.

Ég kom í skólann sem einfaldur, og að ég held, óspilltur sveitadrengur. Ég kom úr honum hálflamaður vesalingur, „kalinn á hjarta þaðan slapp ég“.

Prófessorinn bendir á tvenn úrræði; þau, að skólinn fái keppinaut og ungan skólameistara. Skólinn hefir fengið hvorttveggja fyrir forgöngu framsóknarmanna, en þrátt fyrir mótgang íhaldsins, sem umræddur háskólakennari fylgir nú fast að málum.

Sem sagt, 1913 var mikið deilt um það, hvort betra væri að fá gamalmenni eða ungan rektor að skólanum. Guðm. Hannesson og Þórhallur biskup Bjarnarson héldu því fram í Nýju kirkjublaði, að ungur maður ætti að koma að skólanum. Og prófessorinn, sem skrifaði grein þessa, segir um Þórhall biskup út af því máli: „Ég dáist að dirfsku yðar og góðum vilja“. — Þeir gera sér vonir um, að ungur, hraustur og velviljaður skólastjóri gæti bætt andann í skólanum.

Árið 1905 hafði Þórhalli Bjarnarsyni verið boðið rektorsembættið við Menntaskólann, en hann neitaði því, kvaðst vera of gamall.

Þetta er ekki skemmtileg lýsing á heimilisbrag í skóla. En það er af meiru að taka; og ég býst við, að hv. 1. þm. Reykv. kannist m. a. við lýsingar þeirra Einars H. Kvarans og Gests Pálssonar á skólalífinu, frá námsárum þeirra. Þær eru mjög svipaðar lýsingu Guðm. Hannessonar. Hv. þm. hafa tekið eftir því, að prófessorinn segist hafa komið sem óspilltur og ráðvandur sveitapiltur í skólann, en farið þaðan sem hálflamaður vesalingur, fullur af gremjulegum endurminningum um dvöl sína þar og sársauka yfir því ofurmagni heimsku og ranglætis, er hann hafði þar orðið að reyna.

Ég ætla nú að leyfa mér að lesa hér upp úr vitnisburðabók skólans, sem hefir að geyma margar merkilegar sögulegar heimildir frá fyrri og síðari tímum um skólalífið og sambúð kennara og nemenda. Ég ætla að grípa fyrst niður á vitnisburði kennara um þann pilt, sem nú er einn af færustu og þekktustu skólamönnum á landinu, Sigurð Guðmundsson skólameistara á Akureyri. Það lá nærri, að hann væri rekinn úr skóla og yrði að hætta námi fyrir ofbeldi og rangsleitni kennaranna. Í kennarafundarbók Latínuskólans árið 1900 stendur þetta um Sigurð Guðmundsson (með leyfi hæstv. forseta):

„Ennfremur lagði rektor fram bréf frá dócent Eiríki Briem, dags. 1. þ. m., þar sem hann sækir um inntöku í skólann fyrir Sigurð Guðmundsson frá Mjóadal. Rektor hafði á kennarafundinum 28. f. m. lýst því yfir, að hann fyrir sitt leyti gæti ekki verið því meðmæltur, að piltur þessi yrði tekinn í skólann, bæði af því, að það væri sannfæring sín, að piltur þessi hefði staðið framarlega í óspektum þeim, sem framdar voru skólaárið 1898 –99 í bekk piltsins, . . . . og skaut rektor þessu áliti sínu til kennarafundarins, og var hann því samþykkur. Samkvæmt þessu hafði rektor lýst því yfir við piltinn, þegar hann fór þess á leit við hann, að hann yrði tekinn í 5. bekk, að hvorki rektor sjálfur né kennararnir mundu því meðmæltir, að hann yrði tekinn í skólann. Kennarafundurinn var enn sem fyrr í einu hljóði á því, að það væri óhollt fyrir skólann að veita þessum pilti inntöku, og leggur til, að það verði ekki gert“.

Gefum nú gaum að ástandinu í skólanum, þegar rektor og allir kennararnir gera þá fundarályktun, að sá maður, sem nú er einn af færustu og beztu skólamönnum á landinu; skuli ekki fá að ganga í gegnum skólann, af því að það sé „óhollt“ fyrir skólalífið, að hann sé þar einn vetur til að ljúka námi. Það átti að skera sundur lífsþráð þessa manns, vegna þess að kennararnir höfðu ekki vit á að fara með greindan og tilfinninganæman nemanda. Hvað sýnist hv. þdm. um óskeikulleik þessara gömlu kennara skólans?

Hv. 1. þm. Reykv. talaði um skrópvottorðin, sem svo mikil spilling hefir af hlotizt, og byrjað var á að gefa í skólanum 1903. Ef til vill sýnir fátt betur vanmátt kennara og þáverandi yfirvalda til að ráða bót á göllum skólans. Eftir sprengingarnar finna þeir upp skrópvottorðin til að lækna öll mein. Kennarafundarályktun um þetta hljóðar svo:

[Í útdrætti gerðabókarinnar, sem vantaði í handrit þingskrifarans, er kveðið á um það, að hver nemandi, sem eigi mætir í kennslustund, skuli leggja fram sjúkleikavottorð frá húsráðanda, þar sem nemandinn á heima, en að öðrum kosti sæta vitum fyrir fjarvistina].

Athugum nú, hvað í vottorðinu stendur; pilturinn á sjálfur, eða húsráðandi hans, að semja vottorðið um, að pilturinn sé veikur og senda það, ekki til kennara eða rektors skólans, heldur til umsjónarmannsins. Skólastjórinn er ekkert að hugsa um það eða vita, hvernig sjúkum piltum líður, aðeins ef einhver vottorð eru send í skólann. Og skrópvottorðin verkuðu þannig, að sífellt var beitt fölsun gagnvart skólanum. Allmargir piltar segjast hafa falsað nafn húsbónda síns eða húsmóður, öðruhvoru, undir þessi vottorð; stundum voru þau búin til á „lager“ úti í bæ og sótt þangað. Ekki verður séð annað en þetta fyrirkomulag hafi verið beinlínis skóli í skjalafalsi. Allir vissu, að misbrúkun átti sér stað, og að lokum var svo komið, að jafnvel dugandi kennarar við skólann voru orðnir svo kærulausir út af þessari spillingu, að þeir sögðust aldrei heimta, að vottorðin kæmu, ef pilturinn kæmi ekki. Hvort vottorðin voru sönn eða fölsuð, kom þeim ekki við. Gamalt máltæki segir: „Á mjóum þvengjum læra hundarnir að stela“. Ef til vill á einn eða fleiri af gömlum nemendum þessa skóla, sem nú hafa fengið sorglega frægð um öll Norðurlönd fyrir fölsun, æfilangt ólán sitt og varanlega svívirðingu að þakka siðleysi því, sem innleitt var með skrópvottorðum Menntaskólans.

En núverandi rektor hefir afnumið vottorðin, hlutast til um eftirlitið sjálfur, lítur eftir nemendum, sendir stundum lækni heim til þeirra, ef þeir hafa verið veikir eða sagzt vera veikir. Fyrir þetta hefir hann verið skammaður í Morgunblaðinu.

Þá er ég kominn að því, hvernig Þorgrímur Kristjánsson var flæmdur úr skólanum 1903. Það er fróðlegt fyrir þá, sem alltaf heyra talað um þá gömlu og góðu tíma í sögu skólans, að vita hvernig sú athöfn fór fram, og skal ég því lesa kafla um það úr kennarabók skólans, með leyfi hæstv. forseta:

„Rektor skýrir frá því, að Þorgrímur Kristjánsson hefði nú síðustu dagana sýnt sér ýmsa ósvífni. Þegar rektor áminnti hann nýlega og minnti hann á, að hann hefði í fyrra fengið aðvörun um, „að honum mundi tafarlaust vísað burt úr skólanum, undir eins og hann aftur gæfi rektor eða kennurum tilefni til umkvörtunar“ (bréf dags. 17. nóv. 1902), þá svaraði hann með þjósti: „Já, rekið þér mig bara“, og bætti við hótun um, að þá myndu fleiri fara úr skólanum. Rektor hafði um nokkurn tíma haft hann grunaðan um, að hann væri valdur að eldspýtnadreifingum í skólanum, og í dag, rétt áður en tímar byrjuðu, þóttist rektor fá staðfestan þennan grun sinn, er hann sá Þorgrím inni í bænasalnum ásamt nokkrum öðrum piltum, er engin ástæða þótti til að gruna, og tók eftir að eldspýtum hafði verið dreift á gólfið. Rektor skipaði þá Þorgrími að koma með sér niður á kennarastofu til viðtals, og kom hann tregðulítið fram að tröppunum, en neitaði þá að fara lengra, svo að rektor varð að taka hann og ýta honum með hægð niður stigann og að kennarastofudyrunum, en þar sá rektor, að hann tók upp úr vasa sínum eldspýtnastokk og kastaði honum á gólfið. Rektor spurði, hví hann kastaði stokknum, en hann kvaðst ekki hafa gert það. Síðan tók rektor hann inn á kennarastofu og rannsakaði í viðurvist Pálma Pálssonar vasa hans, hvort þar fyndust eldspýtur, en þær fundust ekki. Þá var hringt til bæna, og af því að rektor var hræddur um, að hann hefði ef til vill haft piltinn fyrir rangri sök, afsakaði hann það með fáum orðum, ef svo kynni að hafa verið, eftir bænir.

En þegar rektor eftir það fór að rannsaka eldspýtnastokkinn, sem Þorgr. hafði kastað á gólfið, sást, að hann var að vísu tómur, en myndi hafa innihaldið eldspýtur af sömu tegund og þær, er piltar höfðu notað til eldspýtnadreifinga. Talaði rektor um þetta allt athæfi Þorgríms við föður hans og skýrði honum líka frá því, sem komið hafði fyrir fyrr í vetur, að Þorgrímur hafði í kennslustund Knud Zimsens haft flösku í vasa, og reyndist whisky-lykt af því, sem í flöskunni var. Réð rektor föðurnum til að segja piltinn úr skóla. Nokkru eftir þetta, e. kl. 3, kom Þorgrímur upp í skóla og var mjög ósvífinn við rektor, sagði á þá leið, að rektor myndi ekki geta stjórnað skólanum með „þesskonar óforskömmugheitum, sem hann hefði beitt við sig“, og þegar rektor sagðist hafa séð með eigin augum, að hann hefði kastað eldspýtnastokknum á gólfið, sagði hann með þjósti: „Það er ósatt“.

Rektor leggur enga áherzlu á eldspýtnamálið, þó að það sé að vísu grunsamt, að pilturinn ber þar á móti sannleikanum, heldur á hitt, að hann hefir sýnt rektor ósvífni.

Allir kennararnir voru á því, að Þorgrímur Kristjánsson hefði unnið til burtrekstrar úr skólanum . . . .“

Við skulum nú athuga nokkru nánar þetta fyrirmyndarástand í Menntaskólanum, sem hv. 1. þm. Reykv. talaði um, að hefði ríkt þar þangað til Pálmi Hannesson varð rektor; og kennararnir voru með nefin niðri í öllum athöfnum pilta.

Eldspýtnadreifingin var talinn stór glæpur; piltar brutu hausana af eldspýtunum og dreifðu þeim um ganginn og gólf í kennslustofum og létu braka og bresta í þeim undir fótum kennaranna og þeirra, sem gengu um gólfið. Kennararnir urðu reiðir út af þessu og espir við pilta. Eldspýtunum var líka dreift uppi á bænasal, og þar var inni fjöldi pilta, sem ekkert voru grunaðir, af því að þeir höfðu minna strítt kennurunum. En Þorgrímur Kristjánsson var grunaður, og farið með hann upp á sal og leiddur með valdi niður stigann og leitað í vösum hans eins og glæpamanns af rektor og yfirkennara inni á kennarastofu. En þar fannst ekki annað en tómur eldspýtnastokkur; og það ber vott um glöggskyggni og manndóm yfirstjórnar skólans að hefja svo hrottalega árás á einn nemanda, og biðja hann svo á eftir fyrirgefningar, en reka hann þó að lokum. Afleiðing af þessari hörmulegu stjórn skólans verður vitanlega sú, að piltar gera gys að kennurunum. Allur skólinn er kominn í uppnám, af því að rektor og kennararnir kunna ekki að stjórna ungum mönnum, vantar til þess alla hærri eiginleika. — En þetta ástand dáir hv. 1. þm. Reykv. og flokkur hans. Á fáum hvílir þó þyngri ábyrgð en honum fyrir þessa sögufölsun, því að hann var sjónarvottur að mestu óeirðunum og óstjórn skólans.

Til þess að sannfæra hv. 1. þm. Reykv. um það, að ástandið hafi sízt verið betra í skólanum þá en nú, þegar hann var að geta um það, að piltur úr skólanum hafi nú í vetur verið að hjálpa sveitamanni við erindarekstur hér í bænum, og skrópað til þess, þá ætla ég að lesa hér upp tvö vottorð úr bókum skólans, sem snertir tvo núverandi hv. þm. þessarar deildar, og er annar þeirra íhaldsmaður en hinn jafnaðarmaður. Þessi vottorð lýsa því vel, hvernig þeir hv. þm. syndguðu á sínum yngri árum, sérstaklega íhaldsmaðurinn. Þetta gerðist á því herrans ári 1906. Og er vottorðið í kærubók hins almenna Menntaskóla á þessa leið:

„Ég leyfi mér hérmeð að tilkynna yður, herra rektor, að ég í dag hefi áminnt skólapilt Ólaf Tryggvason Jensen“ (nú nefnir hann sig Ólaf Thors) „fyrir hávaða í bekknum í kennslustundum mínum; hefi ég þráfaldlega talað um það við hann, að hann truflaði ekki kennsluna með hávaða og samtali, en það virðist ekki hafa dugað; auk þess hefir hann oft nokkuð sýnt mér ókurteisi á ýmsan hátt og óhlýðni, þrjózkast við að fara út í 10 mínútunum, stolizt inn í bekkina og upp á loft, þótt ég hafi bannað honum það, o. fl. þessháttar.

Reykjavík 8. des. 1906“.

Undirskrift kennara.

Þetta er vitnisburður um íhaldsmanninn og hans framferði. En tilvonandi socialisti fékk líka sína vinarkveðju frá sama kennaranum:

„15. apríl. Þeir Héðinn Valdimarsson og Ól. Jensen“ (nú Thors) „komu ekki í næsta tíma eftir morgunverð; Héðinn bar fyrir sig, að hann hefði snögglega verið kallaður til viðtals við Norðurland upp á símastöð, og það hefði dregizt lengur en hann hafði búizt við. Ól. hafði enga ástæðu fyrir sig að bera. Þeir Kjartan Jensen og Einar Hjörleifsson hurfu úr skólanum á sama tíma og komu alls ekki í skólann þann dag. Daginn eftir báru þeir það fyrir sig, að Kjartan hefði fengið blóðnasir og hefði Einar orðið að fylgja honum heim. Þeir voru allir áminntir af kennara“.

Ég vonast eftir, að þetta geti haft þau áhrif á hv. 1. þm. Reykv., að hann sannfærist um, að þó að veröldin sé ekki góð nú, þá hefir hún ekki verið betri áður, úr því að þessir úrvalsdánumenn fengu ekki betri vitnisburð í skólanum, og má segja, að lýsingin á lundarfari hv. 2. þm. G.-K. sé mjög í samræmi við það, sem síður hefir reynzt. Og þegar þessu er bætt við þann ribbaldablæ, sem var á skólanum um 1880, 1890, 1900, 1903 og 1916, eins og ég hefi áður lýst, þá gæti ég hugsað, að hv. þm. sýndist, að skólinn ætti ekki alveg flekklausa fortíð.

Eitt dæmi get ég enn nefnt frá síðastliðnu vori, til þess að sýna, að umhyggja kennaranna fyrir piltum er ekki nægilega góð eða mikil og að sá blær, sem prófin gefa skólanum, er óheppilegur, og prófkröfurnar óréttlátar gagnvart nemendum.

Þetta síðasta dæmi er gott sýnishorn þess, hversu skólinn hefir fram á síðustu ár verið viðskila við þróunina í þjóðfélaginu, og alltaf á eftir þeim kröfum, sem sérhver skóli verður að gera til sín og kennaranna, að skólinn og kennarar gangi nemendum að svo miklu leyti sem unnt er í stað heimilis og vandamanna. Það sýnir, að skólastjórnin hefir í raun og veru lítið breytzt til hins betra, þó að minna beri á uppreistum og sprengingum. — Þetta dæmi, sem ég ætla að skýra frá, á sér nokkra forsögu. Fyrir nokkrum árum var ég á ferð austur í Skaftafellssýslu til að herja á Íhaldið eins og endranær. Þá vildi það til, að ég var samferða drenghnokka dálítinn spól úr Skaftafellssýslu, sem mér leizt vel á. Faðir hans var smábóndi fyrir austan Mýrdalssand. Hann hafði misst konu sína fyrir nokkrum árum frá tveimur stálpuðum drengjum. Annar þeirra var sérstaklega námfús, og til þess að koma honum til menntunar, seldi faðirinn jörð sína og flutti til Reykjavíkur til þess að eiga auðveldara með að koma drengnum gegnum Menntaskólann. Pilturinn tók próf inn í fyrsta bekk og reyndist mjög vel í gagnfræðadeildinni, að gáfum og hegðun, var alltaf með þeim efstu í sínum bekk. Síðastliðið vor lauk hann gagnfræðaprófi við skólann, en varð afturreka úr menntadeild, hlaut ekki nógu háa einkunn til þess að fá inngöngu í menntadeildina (4. bekk). Þetta voru afskapleg vonbrigði fyrir piltinn. Stærðfræðin varð honum að fótakefli, og hafði hann þó alls ekki ætlað í stærðfræðideildina, heldur máladeild skólans; þetta var því síðasta glíma hans við stærðfræðina. Pilturinn virðist vera ágætum námshæfileikum gæddur og hlaut beztu einkunn í öllum greinum nema stærðfræði, en þar hlaut hann nálega lægstu einkunn. — Prófeinkunn Sigurbjarnar Einarssonar vorið 1929, er hann féll frá að komast inn í lærdómsdeild, var sem hér segir:

Ísl. munnleg

7,2

7,0

7,1

Ísl. skrifleg

7,1

7,1

7,1

Danska munnleg

7,1

7,1

7,2

Danska skrifleg

5,0

5,2

6,1

Enska

7,0

7,0

7,0

Saga

7,1

7,1

7,1

Landafræði

7,2

7,1

7,1

Náttúrufræði

5,2

6,1

6,1

Eðlisfræði

6,1

5,2

5,2

Stærðfræði

3,0

÷17,2

÷12,1

Teiknun

5,2

5,0

5,0

Ritleikni

7,0

7,0

6,2

Eins og þessar einkunnir sýna, þá mundi þessi piltur hafa verið með þeim efstu við hvert venjulegt próf. Hann fær yfir 7 í aðaleinkunn í mörgum greinum, og hvergi undir 5 í nokkurri grein nema stærðfræði. En sú eina grein dregur frá honum 12, eða jafnmikið og hann fékk í tveimur námsgreinum þar sem hann hafði staðið sig mjög vel. Niðurstaðan verður því sú, að þessum unga manni er kastað út úr skólanum, þrátt fyrir miklar námsgáfur, mikla reglusemi, mikla ástundun og mikla löngun hans og föður hans til að geta haldið því námi áfram, sem hann og vandamenn hans höfðu stefnt að fyrir hans hönd með svo mikilli fórnfýsi.

Ég ætla að segja það til lofs einum af yngri málakennurunum við Menntaskólann, að hann kom því til leiðar, að pilti þessum var bjargað út úr hinni heimskulegu og ranglátu prófvél Menntaskólans. En munur er á kynslóðunum, að þar sem þeir af kennurum skólans, sem Mbl. taldi sjálfsagða til skólaforustunnar, munu lítt hafa fundið til af örlögum þessa fátæka pilts, þá var ýmsum af hinum yngri kennurum raun að því, vegna skólans, að Sigurbjörn var felldur.

Niðurstaðan varð sú, að með aðstoð eins af kennurum skólans, tókst að hafa upp á piltinum. Höfðu þeir feðgar þá hrökklast burt úr bænum, austur í sveitir, sennilega gefið upp með öllu það áframhald á námi, sem verið hafði áhugamál þeirra í mörg ár. Piltinum var gefin von um, að hann myndi fá að taka upp aftur prófið í stærðfræði. Það varð. Hann hlaut betri stærðfræðieinkunn en síðastl. vor; komst inn í skólann og er þar nú í heimavist. Lífið brosir nú aftur við honum. Af tilviljun var lífsþráður hans ekki skorinn sundur í hinni sálarlausu prófvél skólans.

— Þegar ég hafði unnið nokkra daga í stjórnarráðinu haustið 1927, heimsótti ég fyrrverandi rektor skólans, Geir Zoëga. Hann var alveg hissa á komu minni og sagði, að enginn ráðherra hefði áður heimsótt skólann. Ég hafði aldrei komið þangað fyrr og var því á engan hátt samdauna vanhirðunni á skólanum, og hafði enga tilhneigingu til að láta hana liggja í láginni eða afskiptalausa, eins og því miður virðist loða við flesta af þeim, sem þar hafa stundað nám. Ég gerði samanburð á Menntaskólanum og samskonar skólum hjá nágrannaþjóðunum, og hefi sniðið umbætur á skólanum í samræmi við það. Aftur munu allir fyrirrennarar mínir, kennslumálaráðherrarnir íslenzku, hafa vanrækt skólann af tveim ástæðum. Þeir hafa vanizt ólaginu, sem var þar í námstíð þeirra, og þeir hafa aldrei reynt að kynna sér erlendar fyrirmyndir í þessu efni og þar af leiðandi ekkert haft til samanburðar. Þessi skýring ein getur að nokkru leyti afsakað hið gegndarlausa hirðuleysi undangenginna landsstjórna um allt, er snertir hag skólans, ekki sízt mannbætandi uppeldisáhrif.

Ég hefi nú nefnt ýms dæmi um hina miklu niðurlægingu Menntaskólans. Skólinn hefir að vísu haft á að skipa kennurum, sem hafa verið viðunanlega til þess fallnir að troða ýmiskonar fróðleik í piltana og útskrifað stúdenta, sem reynzt hafa hlutgengir samhliða stúdentum frá öðrum skólum með betri aðbúnað. En Menntaskólann hefir alltaf skort það, sem hverjum skóla er nauðsynlegast að hafa, en það er góð sambúð á milli nemenda og kennara, og frjósamt samstarf beggja aðilja til að gera skólann að hressandi og styrkjandi heimili fyrir æskumenn. Allt of marga af nemendum skólans hefir kalið þar á hjarta, eins og íhaldsprófessorinn nafntogaði segir um æskuáhrifin þar, þegar hann var í skólanum.

Hv. 1. þm. Reykv. veit það mætavel, að ég hefi barizt við að útvega peninga til þess að bæta skólann og ég hefi látið gera á honum hið innra og ytra margskonar umbætur, sem nauðsynlegar voru, þótt íhaldsstjórnin hefði trassað það meðan hún sat við völd.

Ég byrjaði á því að játa dæla nýju lofti inn í skólann, og var það strax til stórmikilla bóta frá því, sem áður var, en íhaldinu var meinilla við að fá óloftið út úr skólanum. Svo voru kvistirnir teknir af húsinu, sem áður höfðu verið látnir óhreyfðir, þótt þeir væru skólanum til stórra lýta, og húsin sjálf máluð eins, en það hafði ekki verið gert þá um langa hríð. Dúkur hefir verið lagður á hólf í flestum kennslustofunum, veggir víðast fóðraðir og málaðir, tekið sérstakt herbergi fyrir vosklæði nemenda, í stað þess að þau voru áður hengd upp í yfirfylltum kennslustofum. Náttúrugripasafninu hefir verið komið fyrir í nýviðgerðum sal, sem nú er um leið kennslustofa. Skuggamynda- og kvikmyndavélar hafa verið keyptar til skólans, en í tíð íhaldsins, einmitt þegar tekjur ríkissjóðs urðu 16 milljónir, neitaði formaður Íhaldsflokksins að láta nokkur hundruð krónur til kaupa á kvikmyndavél handa skólanum. Fé var ekki til, sagði hann.

Ég get sagt hv. 1. þm. Reykv. það, að ég kem stundum í skólann og fylgist með hverju, er fram fer um meðferð hússins. Mér var sagt af gömlum nemendum, að það þýddi ekkert að láta gera við stofurnar, því að piltar myndu strax eyðileggja það aftur. Ég lét sami sem áður gera við stofurnar, og einn bekkinn lét ég þilja með fáguðum krossviði. En í skólanum eru enn til 2–3 stofur, sem eru eins óvistlegar og frekast er unnt. Hvað kemur svo á daginn? Sú stofan, sem þiljuð er með krossviðinum, lítur prýðilega út og er með öllu óskemmd og umgengnin með mestu sæmd og prýði af nemendum. En sama verður ills eigi sagt um umgengni pilta í gömlu stofunum, sem enn eru eins og íhaldið skildi við þær.

Mín skoðun er sú um skóla yfirleitt, að því vandaðri sem allur útbúnaður er, því betur ganga nemendur um og því vænna þykir þeim um skólann og því betra hafa þeir af að dvelja þar.

Aðalmálgagn Íhaldsins hefir dylgjað um, að ég hafi stolið 30 þús. kr. í peningum frá hátíðarnefnd, vegghellum frá landsspítalanum og sementi frá manni þeim, sem byggði Arnarhvál, til að styðja með þessu þýfi héraðsskólabyggingu Sunnlendinga. Þetta hefði að vísu verið fremur óeigingjarn þjófnaður, þar sem verið var að vinna fyrir almanna heill, en ekki að stinga fé almennings í einstaklingsvasa. Það versta fyrir íhaldið við þessi þjófnaðarmál var samt það, að dylgjurnar voru staðlausir stafir og vísvitandi ósannindi frá hálfu þeirra, sem dreifðu þeim út. En nú skal ég játa annað, sem gæti kallazt bráðabirgðahnupl til hagsbóta fyrir Menntaskólann.

Þegar ráðsmannaskiptin urðu á Kleppi, voru þar tveir bílar til, sem notaðir voru til flutninga, en ég tók annan þeirra og fékk Menntaskólanum hann til afnota. Þetta hneykslar auðvitað hv. þm. Borgf., en ég get huggað hann með því, að hann skal fá að heyra meira af slíku allt hvað líður. Svo keypti ég tvo báta handa skólanum og hefi von um, að borgarstjórinn leyfi mér uppsátur suður í Fossvogi. Á þessum bíl eiga piltarnir svo að fara suður í Fossvog og æfa þar róður, en þess á milli fer leikfimikennarinn með þeim í sundlaugar, og þannig fá þeir kost á að æfa íþróttir og þjálfa líkama sinn. Vel má vera, að piltunum kunni að finnast bíllinn fátæklegur, en þá er því til að svara, að væntanlega fá þeir nýjan og betri bíl með nýrri stjórn.

Menntaskólinn var eini skóli landsins, sem leiðtogum Íhaldsins var hlýtt til. Margir þeirra höfðu verið nemendur þar, þótt æfin slæm meðan þeir voru þar, en eftir á orðið drembnir af skólavistinni. En þessi velvild til skólans útilokaði ekki, að þeir sýndu honum gegndarlaust hirðuleysi. Þannig hafði bókasafn skólans, sem ríkur Englendingur gaf, verið harðlokað, óupphitað og nálega þýðingarlaust, nema sem pakkhús fyrir ólesnar bækur, þar til í vetur, að ég lét gera við það, hita það, lýsa, setja þar borð og stóla og gera úr þessu pakkhúsi góðan sal, þar sem 50 nemendur geta lesið undir beztu kringumstæðum, en háðir eftirliti kennara. Á lofti uppi yfir, sem engin dauðleg vera hafði komið á í 70 ár, hefir nú verið gerð heimavistarstofa fyrir 8–10 pilta. Íhaldið sárskammast sín fyrir að hafa týnt þessu húsi, og segir, að einhver maður hafi einhverntíma í tíð Íhaldsins gert tillögur um að gera húsið nothæft. En gallinn var sá, að enginn hlustaði á þær tillögur, ef þær hafa annars verið gerðar, og engum datt í hug að framkvæma neitt í þessu efni, fyrr en núverandi stjórn leysti málið.

Annars get ég glatt hv. þm. með því, að þegar þeim umbótum. er lokið, sem ég er nú að láta gera á Menntaskólanum, þá mun ég bjóða þeim að koma þangað upp eftir til að líta yfir verkin, en það er dálítið einkennilegt, að það er eins og hv. 1. þm. Reykv. og aðrir andstæðingar mínir vilji ógjarnan koma þangað upp eftir síðan skólinn var endurbættur og Íþaka opnuð fyrir piltum, — þessi Ameríka, sem fannst á eyðimörku Íhaldsins.

Íhaldið, hið raunverulega steinsofandi íhald, hefir haft yfirumsjón Menntaskólans síðan hann fluttist til Reykjavíkur frá Bessastöðum. Ávextirnir af stjórn þess koma fram í framangreindri sambúð pilta og kennara. En ef Menntaskólinn fær að njóta þeirra umbóta, sem starfað hefir verið að undangengin missiri, þó ekki væri nema í tíu ár, þá þætti mér gaman að vita, hvort nemendur bera skólanum sömu söguna og Héðinn Valdimarsson eða Þorgrímur Kristjánsson, Sigurður skólameistari Guðmundsson og fleiri gamlir stúdentar, eftir því sem skilríki skólans herma.

Það er hálfbroslegt, að þegar hinn nýi rektor, Pálmi Hannesson, kom að skólanum, þá átti svo sem að gera mikið til að eyðileggja starf hans. Íhaldsbroddarnir, ekki hvað sízt hv. 2. þm. G.-K. og menn honum nákomnir, reyndu að koma af stað uppþoti, og ég hefi heyrt eftir einum þeirra, að hann hafi sagt við son sinn, að það gerði ekkert til, þótt hann yrði rekinn úr skóla, því að hann teldi það miklu frekar heiður fyrir hann, úr því ekki væri viðurkenndur íhaldsmaður rektor við skólann. En hvað skeður! Eftir allan þennan undirróður við pilta og eftir að Morgunbl. er búið að hamast í viku með stórskömmum um rektor og landsstjórnina, þá er allur þessi íhaldsvindur um garð genginn og málið klappað og klárt. Þetta má telja til lofs Reykvíkingum þeim, sem næst standa skólanum, og ekki sízt nemendum. Eftir fáa daga var öllum óhlutdrægum mönnum orðið ljóst, að breyting á forstöðumanni við hina vanræktu stofnun var a. m. k. jafnnauðsynleg eins og umbót á húsnæði og fatageymslu. Í stuttu máli: Aðstandendur skólans viðurkenndu með þögninni, að Framsókn væri á réttri leið um meðferð og aðbúð við skólann, en íhaldið á rangri leið. Ósigur Mbl. varð enn meira áberandi við það, að allir þrír íhaldsritstjórarnir — Jón Kjartansson, Árni Jónsson og Valtýr Stefánsson — tóku aftur uppi í hegningarhúsi öll digurbarkaummæli sín um hinn nýja rektor, báðu velvirðingar á athæfi sínu og borguðu stórsekt til skólans, heldur en að hætta á, að dómur þeirra um Pálma Hannesson yrði ómerktur af dómstólunum.

Mér dettur ekki í hug, að það hafi snögga breytingu í för með sér, þótt skólinn sé bættur á ýmsan hátt. Piltar finna nú samt, að það er hlýrri blær, sem andar um þá, og að kennarar sitja ekki á eilífum svikráðum við þá eða leitast við að fella þá með ranglátum prófum. Skólinn á fyrst og fremst að vera uppeldisstofnun, sem hefir góð áhrif á nemendurna, um leið og hann uppfræðir þá í þeim greinum, sem að gagni mega koma í lífinu.

Þá var því haldið fram, að einn kennarinn hefði gefizt upp við að kenna einum bekknum, og hefði þá annar kennari verið fenginn í hans stað. Þetta er að vísu hálfsatt, og skal mál það skýrt, því að það bregður ljósi yfir erfðagalla skólans. Þessi kennari, Guðmundur Bárðarson, er mjög áhugasamur vísindamaður. Honum er ekki nóg að hlýða nemendum yfir kennslubók í náttúrufræði, línu eftir línu. Hann vill kynna nemendum náttúruna sjálfa. Hann vill láta þá fá forsmekk vísindalegra starfsaðferða.

Í vetur fór hann með nemendum sínum út fyrir bæinn og sýndi þeim jarðlög í nánd við Reykjavík, og vildi svo láta þá skrifa ritgerð um þær rannsóknir, er gerðar hefðu verið á ferðum þessum. Piltar þrjózkuðust við að gera ritgerðina, og endirinn varð sá, að þeir skiluðu allir sömu frásögninni, sem var 2–3 línur fjölritaðar. Piltarnir munu hafa hugsað sem svo: „Við eigum ekki að rannsaka jarðlög eða gera stíl í jarðfræði. Það er hvergi heimtað í reglugerðinni, og hún er okkar æðsta boð. Við eigum aðeins að læra það, sem reglugerð heimtar, og standast próf“. — Þarna mættust hinni gamli og hinn nýi tími, og báðir höfðu nokkuð fyrir sig. Nemendur eru vanir að fá í skólanum þurran fróðleik, tilvaldan til prófs. Ef þeim mistekst í einni grein, getur hún eyðilagt ágæta einkunn í þrem greinum. En fyrir yfirburðaframmistöðu fá þeir enga aukauppbót. Nemendur líta á skólann sem stúdentaverksmiðju, og hafa fulla ástæðu til þess eins og skólinn hefir starfað. En Guðm. Bárðarson kemur með anda og starfsaðferðir hinna frjóu náttúruvísinda. Hann er sjálfur einn hinn fremsti vísindamaður landsins án þess að hafa tekið stúdents- eða háskólapróf. Hann vill innleiða sínar hærri og göfugri starfsaðferðir í skólanum. En þá mæta honum gömlu, steinrunnu venjurnar. Nemendurnir biðja um Barrabasar-aðferðir reglugerðarinnar heldur en fagnaðarboðskap vísindalegra starfsaðferða.

Í gamla daga hefðu þessir piltar verið reknir, en það varð að ráði milli mín og rektorsins, að við ákváðum að hlífa þeim, þótt þeir hefðu í hærra og betra skilningi alveg á röngu að standa. En piltarnir voru börn hins gamla tíma, voru búnir að vera 5–6 ár í skóla og höfðu vanizt á að hugsa eingöngu um prófin, en alls ekki um vísindin. Við vildum ekki fara að dæmi Björns heitins Ólsens, sem dró piltana um skólann til að leita í vösum þeirra, heldur vildum við sýna piltunum dálitla linkind og líta á málsbætur þær, er þeir höfðu, eins og áður hefir verið að þeim búið.

Ég hefi nú reynt að sýna fram á, hvað hér ber á milli. Það er hinn gamli tími og hinn nýi, sem eigast við.

Það, sem fyrir mér hefir vakað, er það, að ég hefi viljað bæta skólann hið innra og ytra. Og nú er svo málum komið í þessu efni, að þrátt fyrir allan róginn, allar skammirnar og svívirðingarnar, sem blöð og leiðtogar íhaldsins hafa borið út um núverandi stjórn fyrir umbæturnar á Menntaskólanum, er þjóðin ánægð og hallast að því, að hin nýja stefna sé rétt, en sú gamla röng.

Þá talaði hv. þm. (MJ) um þá hlutdrægni, sem ég hefði sýnt við ráðningu stöku manna á varðskipin. Þar átti ég sennilega, eftir hans skoðun, að láta elzta manninn sitja fyrir eins og við setninguna í rektorsembættið. Er þá rétt að athuga einstök rök þess máls.

Þegar átti að ráða í þessa stöðu, voru það tveir menn aðrir en sá, sem ráðinn var, sem gátu komið til greina; var annar skipstjóri á Óðni, en hinn á Þór. Eins og kunnugt er, valdi ég hvorugan þeirra, heldur stýrimanninn á Óðni.

Einar Einarsson var mér kunnur að því að vera afburða sjómaður, og það var dugnaður hans, sem vakti athygli mína á honum. Meðan verið var að byrja á smíði Ægis, veitti ég honum tækifæri til að kynna sér björgunarmál í Danmörku, Noregi, Þýzkalandi og Englandi, til að kynnast öllum aðferðum, sem notaðar væru, og öllum tækjum, sem hægt væri að koma við til björgunar á varðskipum landsins. Ég vildi, að nýja skipið yrði í einu sem bezt fallið til landhelgisgæzlu og til björgunar. Þó að annarhvor skipstjórinn, af Óðni og Þór, hefði tekið við stjórn Ægis, þá hefðu þeir á engan hátt verið betur settir fjárhagslega eða að mannvirðingum. Báðir höfðu að launum til náð hámarki því, sem lög leyfðu fyrir stjórn á varðskipum landsins. Annar þessara manna; sem reynzt hefir góðum námsmaður, Friðrik Ólafsson, var sendur utan til að nema sjómælingar, og ég efast ekki um, að hann muni reynast vel í því starfi og að það hafi verið rétt ráðstöfun.

Jóhann Jónsson skipstjóri á Óðni hafði aldrei fengið frí hjá íhaldinu, eins og nauðsynlegt er fyrir sjómenn að fá, þótt það þykist bera hag hans mjög fyrir brjósti. Það var fyrst eftir stjórnarskiptin, að þessi starfsmaður landsins fékk það frí, sem hann átti í raun og veru fullan rétt á, en undanfarnar stjórnir ekki haft nærgætni til að minna hann á. Hv. 2. þm. G.-K. bar það á fundi á Akranesi á Jóhann Jónsson og Friðrik Ólafsson, að þeir vildu, að ég væri drepinn. Síðar reyndi þessi íhaldsmaður að draga úr ummælunum með því að segja, að skipstjórarnir vildu að ég væri drepinn í pólitískum skilningi. Ef þingmaður í næstu löndum hefði borið á menn í sömu stöðum og þessir skipstjórar eru slíkan áburð, þá hefðu þeir annað hvort tafarlaust verið reknir úr stöðum sínum eða orðið að hreinsa sig með dómi af áburði þessum. Ég fyrirleit rógberann of mikið til að hreyfa eitt hár á höfði skipstjóranna. Og þeir virðast hafa tekið sögusmettuna jafnóhátíðlega. En þegar hv. 1. þm. Reykv. er að tala um það, að skipstjórinn á Ægi sé ófær í sinni stöðu, þá er þetta að gera samanburð á starfsemi hans og skipstjórans á Óðni, sem íhaldsstjórnin dæmdi fyrir sitt leyti færastan til forustu í landhelgismálum.

Ég álít Óðin og Ægi jafngóð skip til gæzlunnar. Ég álít, að Jóhann Jónsson geri sitt ítrasta til að standa vel í stöðu sinni og að hann sé að öllu samantöldu eins góður maður til starfsins eins og nokkur von var, að Jón Magnússon eða samherjar hans hefðu getað fundið til forustu á Óðni. En úr því íhaldsblöðin og íhaldsmenn eru sífellt að niðra Einari Einarssyni fyrir starf sitt á Ægi, og mig fyrir að fela honum landhelgisgæzlu, þá verður ekki hjá því komizt að segja það, sem satt er, að hann hefir síðan um mitt sumar í fyrra tekið 10–12 togara, en Óðinn 3–4. Ég hefði ekki séð ástæðu til að minnast á þetta, nema fyrir það beina tilefni, sem íhaldsmenn gefa nálega daglega, með því að bregða hinum mikla hreysti- og dugnaðarmanni, Einari Einarssyni, um, að hann standi ekki vel á verði í starfi sínu.

Ég get sagt hv. þm. Borgf. það, þótt það hryggi hann sem stjórnarandstæðing, en gleðji hann sem þingmann sjávarútvegskjördæmis, að nú eru sjómennirnir í sjávarþorpunum miklu ánægðari en áður með landhelgisgæzluna. Ég get t. d. bent honum á það, að nú er togurunum síður en áður mögulegt að veiða í landhelginni hjá Sandi og Ólafsvík, þar sem nógur fiskur er, heldur eru þeir teknir umsvifalaust, eins og t. d. Belgaum um daginn. Það er þetta, sem ég legg aðaláherzluna á, að lögin eiga að ganga jafnt yfir alla, og ég get í trúnaði sagt hv. þm. Borgf., að í ýmsum kauptúnum á landinu sunnan og vestanverðu eru sjómennirnir farnir að athuga það, hvort það sé beinlínis heppilegt fyrir atvinnuveg þeirra að hafa á þingi fulltrúa, sem hafa samúð með landhelgissvikum íslenzku togaranna. Hér suður með sjó er farið að tala um það, að togari annars þm. kjördæmisins var með breitt yfir nafn og tölu í náttmyrkri að stela fiski úr landhelginni. Og útgerðarstjórinn lét ekki skipstjórann fara, þótt sök væri sönnuð. Sami útgerðarstjóri berst fyrir því þing eftir þing, að eigendur veiðiskipa geti eftirlitslaust sent togurum sínum skeyti um, hvernig þeir geti bezt athafnað sig í landhelginni. Sjómennirnir suður með sjó, á Akranesi og Snæfellsnesi taka líka eftir því, að blöð Íhaldsflokksins, sem þeir hafa fram að þessu talið sér velviljuð, ofsækja beinlínis Einar Einarsson skipstjóra fyrir það eitt, að hann er vakinn og sofinn í að elta veiðiþjófana allt í kringum land, með þeim dugnaði og elju, að af skipi hans stendur veiðiþjófunum hinn mesti uggur, bæði nótt og dag. Gremjuyrðin í garð Einars Einarssonar eru prentuð andvörp íslenzkra landhelgisþjófa.

Ég hverf nú enn að setningu Einars H. Einarssonar sem skipstjóra á varðskipið Ægi. Hafa íhaldsmenn mjög vítt þá ráðstöfun, og það einkum af því, að Einar hafi ekki gengið í skóla fyrir sjóliðsforingja í Danmörku eins og skipstjórarnir á Óðni og Þór. En þessir menn láta um slíka hluti næsta fávíslega, því að það er alkunna, að mælt á erlendum mælikvarða er sjóliðsforingjamenntun Jóhanns P. Jónssonar og Friðriks Ólafssonar í svipuðu hlutfalli við skólagöngu foringjanna á „Fylla“, til að taka það dæmið sem næst er, eins og smáskútuprófið íslenzka við meira próf stýrimannaskólans. Nú vil ég spyrja, hvort hv. þm. Borgf. álíti, að betra væri að hafa sjóliðsforingja af „Fyllu“ fyrir skipstjóra á „Óðni“ heldur en Jóhann P. Jónsson. Nú hafa hv. þm. Dal. og fleiri ámælt „Fyllu“ fyrir slælega landhelgisgæzlu, þrátt fyrir það, að henni stýra menn, sem hafa að baki margfalt meiri skólagöngu en Jóhann P. Jónsson. Ég skal ekki fara út í það hér, hve réttmætar þær ásakanir eru, en þær sýna, að próf og skólaganga foringjanna á dönsku skipunum er, að dæmi íhaldsmanna, ekki einhlít til góðrar landhelgisgæzlu hér við land.

Fyrir mér vakir hið sama um varðskipin og um skólana: að hinir duglegustu og kröftugustu hafi þar forustu. Þeir skipstjórar, sem mestan dugnað og árvekni sýna í því að elta og taka innlenda og erlenda togara, eiga að vera foringjar á þessum skipum. Og reynslan er farin að sýna, að mér hefir ekki að þessu leyti mistekizt val á manni til forustu á Ægi. Einar H. Einarsson er hinn mesti víkingur á sjónum, og er það mála sannast, að innlendir landhegisbrjótar fara ógjarnan í landhelgina nú orðið, nema þeir viti með loftskeytum frá eigendum sínum, að Ægir sé ekki á næstu slóðum.

Mér finnst það miðlungi heiðarlegt af hv. þm. Borgf. að vera að lepja hér slúðursöguna um reykháfinn í Firði. Einar Einarsson liggur ekki á liði sínu, og ef bornar eru saman dagbækur „Óðins“ og „Ægis“ fyrsta starfsár beggja, mun koma í ljós, að „Ægir“ hefir sízt legið meira í höfnum heldur en „Óðinn“, sem íhaldið lætur þó óátalinn með vinnubrögð sín, eins og líka er rétt. En það sama réttlæti mætti gjarnan ná til „Ægis“ líka.

Sumir sjómenn setja það út á Einar H. Einarsson, að hann fari ekki inn á skemmtilegar hafnir, þar sem hægt er að koma upp dansskemmtunum. E. H. E. var ekki sendur til að skjóta niður reykháfinn, og ef hann hefir gert það, hefir hann ekki að neinu leyti gert það á kostnað skyldustarfs síns, landhelgisvarnanna. (PO: Svo þetta var þá ekki slúðursaga! — SvÓ: Jú, að „Ægir“ hafi verið sendur til þess). Íhaldsmenn bjuggu til þá lygasögu, að „Ægir“ hefði ekki komizt til strandstaðar „Þórs“ í tæka tíð, af því að hann hefði verið að skjóta niður reykháfinn í Firði. En sannleikurinn er sá, að Ægir lá í ofviðri inni á Mjóafirði, er strandið bar að höndum. ,,Óðinn“ var undir Ingólfshöfða og greindi eigi skeyti þau, er honum voru send héðan um kvöldið, og á Mjóafirði heyrðust skeytin ekki fyrr en undir dögun. Var með öllu óhugsandi að fara á móti veðri þá nótt, en þó var farið af stað á vettvang strax um morguninn.

Hv. í. þm. Reykv. kom að læknamálinu og talaði um veitingu Keflavíkurhéraðs. Ég get verið stuttorður um það mál. Hér stendur deilan um hið sama og víða annarsstaðar: gömlu og ungu mennina. En fólkið er nú svona hlálegt, að það treystir ungu læknunum betur. Það er sama sagan og um prestana. Ungu prestarnir bera nálega ávallt sigur af hólmi í baráttu við gömlu prestana. Læknarnir hafa ekki ennþá getað sætt sig við, að hið sama gangi yfir þá. Þeir hafa ekki getað sætt sig við, að maður, sem er farinn að þreytast og stirðna í sinni mennt, verði að þoka fyrir öðrum með óslitnum kröftum og meiri menntun. En þetta er að verða hin almenna skoðun fólksins. Út af þessu hafa gömlu læknarnir orðið óánægðir og gert hin ólíklegustu mannskemmdaverk, sem reynslan er að vísu þegar búin að sýna, að urðu þeim til lítillar gleði. Gömlu læknarnir geta ekki hugsað sér þann möguleika, að fólkið hafi vaxandi áhrif á veitingu læknisembætta. Þeim ætti þó að vera ljóst, að hér í Reykjavík krefst almenningur þess, að ráða hvaða lækni hann notar. Hér er stórt sjúkrasamlag, þar sem fólk fær læknishjálp fyrir borgun úr félagssjóði. Nú myndi náttúrlega verða ódýrast að semja við einn lækni eða tvo um þessa hjálp. En það er þýðingarlaust; fólkið heimtar að ráða, hvaða lækni það notar. Einn vill hafa þennan og annar hinn, og sjúkrasamlagið verður að borga hvaða lækni sem er, sem einhver félagsmaður vill nota. En þessir sömu læknar álíta þó, að fólk eigi engu að ráða um val á lækni, sem það verður ef til vill að sitja uppi með í mannsaldur.

En fólkið vill nú einu sinni hafa ungan lækni. Af þeirri orsök stafaði mótþróinn í Árnessýslu gegn Gísla Péturssyni, sem þó er ágætismaður og prýðilega að sér sem læknir. Í Austur- og Vestur-Húnavatnssýslu réði fólkið vali á læknum sínum í tíð íhaldsins, þeim Kristjáni Arinbjarnarsyni og Jónasi Sveinssyni, en ekki þorði læknaklíkan í Rvík að rísa upp, af því að íhaldsstjórn lét að óskum fólksins. Þar var safnað undirskriftum alveg eins og í Dölum, Seyðisfirði og Stykkishólmi. En í haust bannaði Læknafélagið Helga Guðmundssyni að þiggja undirskriftir héraðsbúa í Keflavíkurhéraði og sækja um héraðið. Ég er hissa á því, að hv. 2. þm. G.-K. skuli ekki hafa reynt að safna undirskriftum fyrir Jónas Kristjánsson. Guðm. Hannesson reyndi að fá oddvitaundirskriftir og tókst ekki. Þannig gerði formaður læknaklíkunnar sig alveg sérstaklega hlægilegan, með því að ætla að reyna að fleyta „dvergnum“ (því að svo nefndi hlutaðeigandi persóna sig á fjölmennum fundi á Hólum í Hjaltadal) inn á undirskriftum, þar sem barátta læknaklíkunnar gengur öll út á að hundsa vilja fólksins um læknaval.

Ég get sagt hv. 1. þm. Reykv. það, að þrátt fyrir þá gleði, sem uppreisn læknanna hefir vakið í herbúðum Íhaldsflokksins, hljóta læknarnir að bíða ósigur að lokum. Gamla stefnan er á undanhaldi, og niðurstaðan verður sú, að fólkið ræður læknum sínum. Það gæti hugsast, að á einhverju íhaldstímabili væri hægt að setja inn lækni að fólkinu nauðugu, en það verður erfiðara hér eftir en hingað til. Um þetta mál verður meðal annars barizt við næstu kosningar, og þá sér hv. 1. þm. Reykv., hve vel hans stefna er þokkuð meðal kjósenda landsins.

Þá vil ég snúa mér ofurlítið að hv. þm. Borgf. Eins og venjulega var allt hans skraf upptalning á litlum hlutum. Fyrir ekki alllöngu hitti ég einn íhaldsleiðtoga, sem sagt er, að flokkur hv. þm. ætli að setja í virðulegt sæti við landskjörið. Hann sagði: „Af hverju er þingið að eyða tíma í að deila um 1.000 kr. styrk handa einhverjum fátækum námsmanni? Það kostar þingið meira að deila um slíkar fjárhæðir en veita þær orðalaust, og það er ekki fyrir aðra en grútarháleista, að vera að gera veður út af slíku“. Ég segi frá þessu til að sýna, að jafnvel innan flokks hv. þm. Borgf. er óbeit á þessari framkomu hans.

Hv. þm. var að spyrja um það, hví ekki væri búið að leggja niður embætti fræðslumálastjóra. Það er mín tilætlun að færa það út, en ekki leggja það niður, og nú liggur fyrir frv. um þessa útfærslu, sem ég vona að verði að lögum á þessu þingi. Alveg eins og nýir verkfræðingar hafa verið teknir til aðstoðar við ýmsar framkvæmdir hins opinbera við símann, við vegagerðir og hafnarbætur, eins hefir stjórnin leyft sér að taka einn mann um stundarsakir til að hafa eftirlit með skólum o. fl., sem lögum samkvæmt lágu utan við verksvið fræðslumálastjórans. Þessi maður lætur sennilega af þessum starfa sínum eftir nokkra mánuði og tekur ákveðið kennarastarf.

En fjandskapur íhaldsins gegn Sigurði Einarssyni stafar vafalaust af því, að hann bauð sig einu sinni fram til þings á móti mínum heittelskaða vini, hv. þm. Barð. Ég var nú eiginlega helzt á móti því, að Sigurður Einarsson gerði þetta, því að mig hefði tekið það afarsárt, að missa hv. þm. Barð. úr þinginu! En þó verður að viðurkenna það, að það er ekki lítið hrós fyrir jafnungan mann og Sigurð Einarsson, að hann skyldi ekki vanta nema 40 atkv. til að fella langsamlega bezta mann Íhaldsflokksins! (Hlátur). Ég játa, að íhaldsmönnum sé nokkur vorkunn, þó að þeir hafi orðið hræddir um hv. þm. Barð. í kosningasennunni. En það stríð eiga þeir að útkljá á hinum pólitíska leikvelli, en ekki færa það yfir í uppeldismálin.

Þá minntist hv. þm. Borgf. á utanfararstyrkinn til Stef. Jóh. Stefánssonar. Þessi maður fór utan í erindum dómsmálaráðuneytisins til að vinna að lögfræðilegu máli fyrir landið, máli, sem hefir meiri þýðingu en sem svarar þingsetu hv. þm. Borgf. í eitt eða tvö ár. Þá taldi hv. þm. einnig eftir rannsókn á kvikmyndalöggjöf annara þjóða. Veit hv. þm. ekki, að hér á landi er skattur á kvikmyndasýningum 10%, en í Danmörku 40%? Veit hann ekki, að fyrir meðhald íhaldsins með eigendum kvikmyndahúsanna og fáfróðra manna um þessi mál erlendis, skaðast þjóðin um tugi þúsunda á hverju ári fyrir að hafa ekki nægilega þekkingu á löggjöf nábúaþjóðanna um kvikmyndahús. Er betra að hafa vanþekkingu og skaða en þekkingu og peninga? Það er hvorki mér að kenna né manni þeim, er kynnti sér þessi efni, þó að við förum ekki að hætti siðaðra þjóða í þessum málum enn sem komið er. En með frv. því, sem nú liggur fyrir Ed. um kvikmyndalöggjöf, er réttur hins opinbera tryggður eftir því sem unnt er, bæði skattahliðin og uppeldisaðhald að kvikmyndahúsunum.

Þá vék hv. þm. sér að hestahaldi og bilum stjórnarinnar. Hann talaði aldrei um þessa útgjaldaliði hjá hv. þm. Dal. eða Jóni heit. Magnússyni, sem borgaði þó 4.000 kr. fyrir lán á bíl handa konunginum í þá daga. Landið hefir nú átt bíl í 2 ár og ætlar nú að selja hann og fá annan nýjan, eins og hinar reyndustu bifreiðaútgerðir gera. Verðmunurinn á gamla og nýja bílnum verður lítið meiri en það, sem Jón Magnússon gaf fyrir leiguna á konungsbílnum. Og hinn nýja bíl á að nota handa konungi landsins nú við hátíðahöldin í vor.

Hv. þm. kallaði það eyðslu, að landið ætti bíla. En hvernig stendur á því, að „Kveldúlfi“ þykir ekki borga sig að nota leigubíla, heldur kaupir sér bíla, og það marga? Þó að „Kveldúlfur“ sé voldugur í augum eigenda sinna, þá virðist þó sjálft ríkið vera stærra fyrirtæki, sem hefir fleiri hugsmuna að gæta.

Hv. þm. Borgf. var að telja það eftir, að hæstv. fjmrh. hefði farið í sumarfrí norður í land í sumar í bíl, sem landið á. Ég get frætt hv. þm. á því, að hann tók með sér í þessa ferð hinn merkasta íhaldsmann úr Borgarfirði. Sést á þessu, að Framsókn ann andstæðingum sínum að njóta með sér þessara tímanlegu gæða. En hvernig stendur á því, að það má aldrei gleðja íhaldsmenn? (Hlátur). Ég skal annars taka það fram, að mér líkar ágætlega við þennan borgfirzka íhaldsmann í menntamálum, og miklu betur en við hv. þm. Borgf., enda er hann í þeim efnum ekki á marga fiska.

En svo ætla ég að segja hv. þm. frá því, sem ég býst við að honum þyki sízt betra heldur en þessi ferð vestur í Dali, en það er, að nú í sumar lítur út fyrir það, ef heilsan leyfir, að ég verði alltaf öðru hvoru að þeytast með Guðjóni Samúelssyni, húsameistara ríkisins, til þess að sjá, hvernig gamla fjósið í Reykholti frá íhaldstímanum breytist smám saman í glæsilega byggingu til menningarbóta fyrir Borgfirðinga og Mýramenn; það verður sennilega mikill straumurinn. í kjördæmi hv. þm. af verkfræðingum, múrurum, smiðum o. fl., það verður líklega farið með nokkra tugi króna í þau ferðalög, þó í stjórnarráðsbílum sé, eða væri kannske betra að kaupa alltaf leigubifreiðar?

Þá hafa smjörbúin austanfjalls ekki kostað svo lítið í eftirlitsferðum, sérstaklega ef alltaf hefðu verið keyptar leigubifreiðar. Það er líka mjög auðvelt að hanga 2–3 ár í ráðherrasæti og gera ekki neitt, nota ekki bíla, ferðast hvorki á sjó eða landi, ef landsstjórnin situr eins og dauður hlutur í stjórnarráðshúsinu, eins og íhaldið gerði, og helztu lífsmerkin að veita Shell sérleyfi, eða að lesa „Manninn frá Suður-Ameríku“. En þegar á að hyggja stórbyggingar úti á landi, þá kostar það eftirlit, það kostar hreyfingu, og þess vegna getur það orðið ákaflega dýrt fyrir landið, ef stjórnin eða starfsmenn hennar hefði þurft að ferðast í leigubifreiðum vegna eftirlits og stjórnar á þeim mörgu mannvirkjum, sem landið hefir látið vinna að undanfarin tvö sumur. Þess vegna er komið svo, að ég er viss um það, að þegar íhaldsmenn komast næst til valda, og þeir vonast eftir að það verði ekki svo afskaplega langt þangað til, er mér óhætt að hugga hv. þm. með því, að þeir muni þá sjálfsagt taka upp mína stefnu í þessu máli. Það getur vel verið, að þeir bílar, sem ég hefi nú, verði þá orðnir gamlir og slitnir, en þeir verða þá sjálfsagt seldir og aðrir keyptir í staðinn.

Það er ekki hægt að lasta hv. þm. fyrir það, þótt hann sé dálítið utan við hið nýja líf í landinu. En flokksbræður hans kaupa sér bíla án þess að spyrja hann, auðvitað af því þeir telja, að það borgi sig sig. Ég held t. d., að „Kveldúlfur“ eigi eina fimm, og allir helztu íhaldsbroddarnir hér í bæ eiga sína bíla sjálfir, og þeir álíta þetta ágæta búmennsku fyrir sig! Ég þekki engan íhaldsforkólf hér, sem stendur á því úrelta menningarstigi, sem ræða hv. þm. Borgf. ber vott um í þessu efni.

Hv. þm. hefir mikið tekið til þess, að það var farið vestur í Dalina í vor á varðskipi til þess að opna Staðarfellsskólann sem sjálfseignarstofnun. Ég get nú sagt hv. þm. það, að erindið skipti alls ekki svo litlu máli; það var um eitthvað 200 þús. kr. að ræða, nl. Staðarfellseignina og Herdísarsjóðinn til samans, og það var ekki lítils virði fyrir landssjóð, að þessi mikli sjóður fór nú að starfa sjálfstætt, í stað þess að áður varð að kosta skólann af ríkisfé. Það sparast mikið fyrir ríkissjóð með breytingunni, a. m. k. samanborið við það, sem Þórarinn á Hjaltabakka, hinn ágæti formaður skólanefndarinnar á Blönduósi, eyðir í skólann þar. Við vorum saman komnir nokkuð margir á Staðarfelli við þessa athöfn, þar á meðal hv. þm. Dal., hv. 1. þm. Reykv., ýmsir rithöfundar og skáld, og mikill fjöldi fólks úr Dölum, sem þótti þetta hátíð mikil. Með þessari ferð var byrjað að gera nothæfa eign fyrir almenning, sem minnst má virða á 200 þús. kr., eign, sem flokksm. hv. þm. vildu helzt að væri ónotuð. (HK: Hvaða peningar voru það?). Það var Herdísarsjóðurinn og gjöf Magnúsar á Staðarfelli, sem var sett þarna í hreyfingu. Ég veit, að hv. þm. Barð. er okkur gramur fyrir að gera þetta, og líklega hans hátign konunginum fyrir að samþykkja þessa ráðabreytni. (HK: Við skulum ekki skrökva á hans hátign).

Þá talaði hv. þm. næst um ýmsar nefndir, sem myndu verða landinu nokkuð dýrar, en hæstv. forsrh. hefir svarað því atriði, svo að ég get gjarnan sleppt því. En ég vildi aðeins segja hv. þm. það, að á hans ungu dögum hér á þingi var veröldin svo kátleg, að þá var nefnd sett á stokkana, hin fræga fossanefnd, sem kostaði landið um 80.000 kr., og hvað kom svo upp úr henni? Eitt frv., sem eftir mikla baráttu var loks samþykkt á þinginu, en samning þess kostaði mikið brauk og langa og dýra nefndarfundi, sem tveir eða þrír af flokksbræðrum hv. þm. sátu í, alveg óátalið af honum í mörg ár. (PO: Það kemur að góðu liði, þegar farið verður að virkja). Það er satt. En þá játar þm., að gagn sé að nefndum, og jafnvel leggur blessun sína yfir 80 þús. kr. reikning, aðeins ef meiri hluti fjárins rennur til flokksbræðra hans.

Þá var hv. þm. ósköp óánægður út af kirkjumálanefndinni. Ég, satt að segja, tek það ekki mjög nærri mér, þótt einhver sending til mín frá nefnd sé í vanskilum. Ekki get ég borið ábyrgð á því, þótt sending til mín liggi í vanskilum, þegar ég er rúmfastur heima. Ég held annars, að það hafi verið svo, að hinn góði form. nefndarinnar, sóknarpresturinn á Akranesi, hafi látið vélrita nokkur frv. og senda til mín. En þessi frv. sendi ég svo til konungsins, í þeim tilgangi, að þau yrðu lögð fyrir þingið. Hv. þm. fær að sanna það, að þau 8–9 frv., sem kirkjumálanefndin hefir gert, hafa inni að halda margar stórmerkar nýjungar, enda er það í fyrsta sinn á aldarfjórðungi, að íslenzkir prestar fá tækifæri til að bera fram áhugamál sín um skipulag kirkjunnar fyrir Alþingi. Ég geri ráð fyrir, að það beri mikið á ávöxtunum, því að það er í þessum frv. mikið af hugmyndum, sem sennilega í meira eða minna breyttu formi verður ekki aðeins að lögum, heldur að veruleika í þjóðlífi Íslendinga á næstu árum. Þess vegna held ég líka, að það verði ekki neinn sérstakur frami fyrir hv. þm. að vera að berjast á móti þessu, úr því að landið kostar mörgum hundruðum þúsunda árlega til þess að halda uppi íslenzkri þjóðkirkju, guðfræðikennslu við háskólann, til að byggja yfir presta, koma upp kirkjum og kirkjugörðum, því að ég hygg, að hinar gætnu og framsýnu tillögur nefndarinnar geti sparað á einu meðal prestsíbúðarhúsi þessar 8.000 krónur, sem hv. þm. er að telja hér eftir. En ég veit, að hv. þm. vill heldur halda áfram að borga mörg þúsund árlega að óþörfu fyrir eitt prestshús, ef það væri ekki gert af nokkru viti, heldur en ef það hefði verið byggt eftir hagsýnni athugun. Því að það er ólán þessa hv. þm., að þótt hann sé vel viti borinn, þá er honum þó mjög illa við, að þekkingin og vitið fái að njóta sín í þjóðfélaginu.

Þá ætla ég að minnast svolítið á snattferðir varðskipanna, sem íhaldið nefnir svo. Já, það er ekki álitlegt með þau. En ég ætla aðeins að benda á það, að þessi spilling virðist hafa haldizt við nokkuð lengi. — Fyrsta haustið, sem Óðinn var hér, fóru þrír menn vestur í Dali, tveir þeirra til að spilla fyrir kosningu þriðja mannsins, sem nú er þm. kjördæmisins, en þriðji maðurinn fór til þess að vinna kjördæmið. Svo þegar þeir komu aftur að vestan, þessir pólitíska andstæðingar, er Óðinn, nýsmíðaður, sendur upp í Borgarnes, til þess að taka íhaldsráðherrann, hv. 3. landsk., og hann þá svo göfuglyndur að bjóða núverandi forsætisráðherra með sér í þessa snattferð með varðskipinu. Þessi baktería var m. a. s. smogin svo djúpt í þann saklausa íhaldsflokk, að hv. 1. þm. Skagf. bauð jafnvel Brynleifi Tobíassyni norður í Skagafjörð með sér á varðskipinu um þetta leyti. Það var svo sem ekki nóg með það, að þessir menn væru að hjálpa sér sjálfir, heldur taka þeir líka aðra menn með sér. Meðan íhaldið sat við stjórn, greip það stöðugt til varðskipanna til að flytja menn og jafnvel dauða hluti hafna milli. Þannig var Þór eitt sinn látinn fara með íhaldsblaðapakka af Akureyri til Svalbarðseyrar handa Birni Líndal. En þá voru óhollir straumar við ströndina, og skipið rakst á eitt síldarbólverkið og braut það nokkuð.

En nú skal ég segja hv. þm. það, að það er alveg áreiðanlegt, að hvaða stjórn sem verður, notar varðskipin svipað því, sem gert hefir verið, nema máske ekki til að flytja póst til einstakra íhaldsgæðinga, bæði til að draga önnur skip, flytja veika menn á milli hafna, flytja sjómenn til og frá verstöðvum eða starfsmenn landsins, sem fara opinberum erindum. T. d. í vetur slasaðist Hinrik læknir Erlendsson á Hornafirði í embættisferð. Hann lá í þrjár vikur heima hjálparlaus; þá var símað til landlæknis og svo sendi ég skip eftir honum og hann var lagður á sjúkrahús hér og skorinn upp; nú fer hann væntanlega heim í maí og tekur aftur við embætti sínu og verður þá orðinn fullhraustur. Var það rétt eða rangt að gera þetta? Var það rétt af því, að hann var embættismaður, eða var það rétt undir vissum kringumstæðum, hefði þetta verið embættislaus maður? Fyrir skömmu var embættislaus maður á Ísafirði að kafna, vegna þess að ígerð í hálsinum þrengdi mjög að barkanum, en það var álit manna, að læknar hér gætu hjálpað honum, og Óðinn var sendur eftir manninum. Maðurinn dó, en þessi tilraun var samt gerð. Nú í vetur hringdi hv. 3. landsk. til skrifstofustjórans á 1. skrifstofu, segir, að það liggi maður dauðvona norður á Sauðárkróki og spyr, hvort ekki mundi hægt, að varðskip hjálpaði syni hans til að komast frá Siglufirði til Sauðárkróks. Það var gert. Ég get líka sagt það, að í vetur hefi ég með beztu samvizku flutt og sótt minn kæra vin, hv. þm. Barð., vestur í Haga líklega í þrjú skipti. Hv. þm. Borgf. skammar mig kannske fyrir þetta og telur það óþarfa eyðslu, en mér finnst rétt að gera þetta. Ég held líka, að Þórarinn á Hjaltabakka hafi verið sóttur og fluttur tvisvar eða þrisvar sinnum norður á Húnaflóa. Það hefir ekkert verið skammazt út af því í Mgbl., en þegar Þór strandaði í vetur, er hann flutti tvo framsóknarmenn úr milliþinganefnd, þá gaf Mgbl. í skyn, að tilgangur minn myndi hafa verið sá, að stytta aldur allri skipshöfninni á Þór. Ég hygg, að hvergi á landinu sé nokkur verulegur hluti af kjósendum jafnaumur og lítt hugsandi um þessi mál. Borgarar landsins vita að í fjölmörgum tilfellum verður að nota varðskipin til að flytja heilbrigða og sjúka, embættismenn og embættislausa menn milli hafna með varðskipum landsins. Hv. þm. verður að gæta þess, að fólkið við sjóinn veit og viðurkennir, að landhelgisgæzlan kringum allt land hefir aldrei verið betri en nú, og réttilega eða ranglega þakkar það stjórinni þetta. Af þeim ástæðum þýðir ekkert fyrir hv. þm. að látast vera reiður við stjórnina fyrir vanrækslu í þessu efni. Almenningur við sjóinn misskilur ekki aðstöðu flokkanna til landhelgismálsins. Þing eftir þing hefi ég beitt mér fyrir því að koma á eftirliti gegn misnotkun loftskeyta til að hjálpa íslenzkum togurum að sleppa úr landhelginni. En slíkt frv. fellir hv. þm. með glöðu geði til að þóknast eigendum Kveldúlfs, Belgaum o. s. frv. Þetta er mál, sem vegur meira í sjávarþorpum kringum land heldur en þótt Óðinn eða Ægir sé sendur í ferð til Hornafjarðar með skólapilta eða mann vestur á Patreksfjörð, sem á að taka við af Einari Jónassyni. Hv. þm. Borgf. má vera þess fullviss, að með yfirhylmingu sinni með landhelgisbrotum ísl. togara, sem stýrt er inn í landhelgina með dulmálsloftskeytum, hefir Íhaldsflokkurinn sýnt heilindi sín í landhelgismálinu.