11.04.1930
Efri deild: 75. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 469 í C-deild Alþingistíðinda. (3701)
461. mál, kirkjugarðar
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Þetta frv. um kirkjur er hliðstætt því síðasta, um kirkjugarða.
Það er mála sannast, að kirkjur okkar hafa víða ekki verið meðfarnar sem skyldi, né byggðar sem skyldi. Fyrir fáum árum var gerð lítilsháttar tilraun hér á Alþingi til þess að nýjar kirkjur, sem yrðu byggðar, væru reistar í smekklegum stíl. Með lögum er lagt undir menntamálaráðið að úrskurða, hvort kirkjuteikningar séu sæmilegar.
Þetta frv. er í svipuðum anda. Ég vil t. d. nefna tvo hluti af mjög mörgum, sem gert er ráð fyrir í frv. Það er gert að skyldu að hita upp kirkjur, en eins og allir vita, hafa um langa stund margar kirkjur verið óupphitaðar, þannig að messur að vetri til geta verið beinlínis heilsuspillandi.
Í öðru lagi er það, sem allir, er ferðazt hafa um hér á landi, hafa tekið eftir með nokkrum sársauka, að kirkjur hafa verið notaðar sem geymsluhús. Ég kom fyrir ári síðan í kirkju á merku höfuðbóli, þar sem þvottur var breiddur á alla stóla og loftið notað til geymslu. Þetta er bannað í frv., og þykist ég vita, að það þyki vera til bóta.
Ég hygg, að þessu frv. ætti líka að umr. lokinni að vísa til allshn.