28.02.1930
Neðri deild: 39. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 808 í C-deild Alþingistíðinda. (3704)

172. mál, einkasala á tóbaki

Halldór Stefánsson:

Ég hafði gert ráð fyrir, að hv. 1. flm. frv., þm. Ísaf., mundi fylgja frv. úr garði fyrir hönd okkar flm. En þar sem 1. flm. er ekki viðstaddur, en málið svo kunnugt frá fyrri tíð, og var auk þess lagt fyrir síðasta þing í sömu mynd og það er nú, þá sé ég ekki ástæðu til að hefja umr. um það, en vísa aðeins til grg. frv., er gerir grein fyrir, hvernig á frv. stendur.