03.02.1930
Neðri deild: 13. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í C-deild Alþingistíðinda. (385)

67. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka, hlutafjárauki o. fl

Sigurður Eggerz:

Ég mundi ekki standa upp núna, ef ég liti ekki svo á, að hér sé um svo mikið alvörumál að ræða, að það sé blátt áfram skylda mín að brýna fyrir Alþingi mikilvægi þess.

Ég ætla fyrst að draga upp dálitla mynd af aðstöðu Íslandsbanka, bæði gagnvart Landsbankanum og gagnvart ríkisstj. Hv. 2. þm. G.-K. hefir að vísu talað um aðstöðu Íslandsbanka til Landsbankans, en ég vil benda á það aftur, að Íslandsbanki skuldar nú Landsbankanum 3347000 krónur og auk þess eftirstöðvar dollaravíxilsins, 560 þús. kr. Aðalatriðið er, að skuldir Íslandsbanka til Landsbankans eru fulltryggðar. Hvernig sem um Íslandsbanka fer, á Landsbankinn ekkert á hættu hvað þessar skuldir snertir. Aftur skuldar bankinn ríkissjóðnum það, sem eftir stendur af því, sem hann fékk af enska láninu, og eru einnig fullar tryggingar fyrir þeirri skuld.

Aðalspurningin er, hvort meiri áhætta sé í að loka bankanum heldur en að halda honum áfram. Það er kunnugt, að Íslandsbanki hefir átt við mikla örðugleika að stríða og auðvitað hafa engir orðið meira varir við það en við bankastjórarnir. Íslandsbanki á að draga inn eina millj. af seðlum á ári. Hann hafði dregið inn 3 millj. frá árinu 192l, og þingið hafði hvað eftir annað veitt honum undanþágu frá að draga inn meira. En Magnús sál. Kristjánsson fjármálaráðherra, sem var mjög velviljaður Íslandsbanka, sagði í fyrra, að bankanum mundi ekki þýða að fara til þingsins og reyna enn að fá lausn frá inndráttarskyldunni. Þetta var ástæðan til þess, að bankinn ætlaði að draga inn seðlana upp á eigin spýtur, með þeirri aðstoð, sem lögin gerðu ráð fyrir að Landsbankinn veiti, en samkv. þeim á Landsbankinn að endurkaupa víxla fyrir 5/8 af þeirri upphæð, sem Íslandsbanki dregur inn, sem sé 625 þús. kr. Íslandsbanki snéri sér nú til Landsbankans. Landsbankinn svaraði, að hann gæti ekki sagt neitt um þetta fyrr en hann sæi víxlana, sem Íslandsbanki vildi fá endurkeypta. Þetta var mjög eðlileg krafa og voru víxlarnir svo sendir út í bankann. Ekkert heyrðist svo frá Landsbankanum fyrr en daginn áður en draga átti inn, en þá óskaði stjórn Íslandsbanka að fá svar við málaleitun sinni. Á síðustu stundu neitaði bankastjórn Landsbankans með öllu að endurkaupa víxlana og þóttist enga skyldu hafa til þess. Íslandsbanki dró þó inn seðlana, en jafnframt benti bankastjórnin bankaráðinu og stjórn Landsbankans á, að þetta væri bankanum um megn, og einkum fyrir það, að samtímis hamaðist Landsbankastjórnin á Íslandsbanka að greiða sér eftirstöðvar dollaravíxilsins, en Íslandsbanki var þá búinn að greiða 500 þús. af þeim víxli á árinu. En þrátt fyrir örðugleikana af inndrættinum gekk þó fyrst um sinn allt skaplega. En alltaf var verið að smáreyna að fá þessu kippt í lag hjá Landsbankanum og er langt mál að segja frá þeirri viðureign, er endaði svo, að Landsbankinn vildi ekki veita neina hjálp sem dygði. Vegna þess að Íslandsbanki fékk ekki þessar 625 þús. kr. og vegna þess, að Landsbankinn dró alltaf svörin við málaleitunum hans, kreppti smámsaman að honum og órói skapaðist í hringum hann. Ef Íslandsbanki hefði möglunarlaust fengið þessar 625 þúsundir, hefði allt gengið sinn vanagang. Landsbankinn hefir haldið því fram, að honum bæri ekki skylda til að láta af hendi þessar 625 þúsundir. En ég álít fyrst og fremst, að það sé bein lagaskylda Landsbankans, sem viðurkend mundi fyrir dómstólunum, og í öðru lagi, að þó að það hefði ekki verið lagaleg skylda, sé þjóðbankinn samt sem áður skyldugur — siðferðislega skyldugur — til að veita jafnlitla aðstoð og hér var um að ræða til þess að vernda þjóðfélagið frá þeirri fjárhagslegu hættu, sem stafaði af stöðvun Íslandsbanka. Þó menn vilji deila um þá lagalegu skyldu, þá munu þeir fáir, sem vilja deila um siðferðislegu skylduna, þar sem Landsbankinn gat veitt þessa aðstoð án nokkurrar fjárhagslegrar hættu fyrir hann.

Eins og kunnugt er, hefir farið fram mat á Íslandsbanka, sem sýnir, að bankinn á fyrir skuldum. Er nú ástæða til að hlaupa undir bagga með bankanum? Ég verð að segja, að mér finnst það svo alvarlegt mál, ef á að loka bankanum, að erfitt er að gera sér hugmynd um, hve miklu tjóni það getur valdið fyrir þjóðina. Enda hefir þegar borizt skeyti frá aðalbankastjóra Hambrosbankans þess efnis, að ef Íslandsbanki verði lokaður, geti lánstrausti okkar erlendis verið mikil hætta búin. Þessi bankastjóri á sæti í bankaráði Englandsbanka, og það er vitanlegt, að Hambrosbanki ræður ákaflega miklu um viðskipti við Norðurlönd. Enn hefir borizt annar vottur í sömu átt, sem sé, að krafizt muni verða tryggingar fyrir hinu svokallaða póstláni, danska. Hvað er nú farið fram á, til þess að koma í veg fyrir allar þessar hættur? Fyrst og fremst 3 millj. í forgangshlutafé, og auk þess ríkisábyrgð á öllu innstæðufé og hlaupandi viðskiptum. En þetta fé er 10 millj. króna. Ég er í engum vafa um, að svo framarlega sem bankanum verður hjálpað núna, er framtíð hans örugg.

Það er farið fram á, að ríkið ábyrgist innstæðufé landsmanna. Og það er hrein og bein siðferðisskylda ríkisins að hlaupa undir bagga með innstæðueigendum. Svo framarlega sem þetta er rétt — og ég býst ekki við, að margir mótmæli því —, gerir Alþingi ekki annað en skyldu sína með því að reisa nú bankann við.

Þá kem ég að lánstraustsspjöllunum. Hversu hátt á að meta þau? Hversu margar milljónir eru í hættu, ef ríkissjóður missir sína tiltrú erlendis? Ég er í engum vafa um, að síðan ég kom á þing, hefir ekkert mál eins alvarlegt legið fyrir Alþingi og þetta. Og það er sorglegt, að einmitt þetta ár, árið 1930, þegar allur heimurinn horfir á Ísland og minnst er á það í hverju blaði, skuli það koma fyrir, að annar af aðalbönkum landsins sé stöðvaður.

Nú býst ég við, að ýmsir vilji segja: „Hvað vilt þú, þér ferst að tala, sem berð ábyrgð á því, sem komið er!“ — En það er alltaf tími til að rannsaka, hver á að bera ábyrgðina. En það vil ég segja, að ég og bankastjórarnir, sem með mér eru, við þykjumst hafa gert undanfarin ár allt, sem við höfum getað, til þess að leiða bankann gegnum þá örðugleika, sem á hans leið hafa verið. Þar með er ekki sagt, að við höfum ekki gert hitt og þetta, sem betur hefði mátt fara. Það dettur mér ekki í hug. Og mér dettur ekki í hug yfirleitt að bera mig sjálfan undan neinni ábyrgð. En ég tala hér alls ekki sem bankastjóri Íslandsbanka; ég tala hér sem þm. þjóðarinnar. Ég tala hér sem sá maður, sem ber ábyrgð fyrir þjóðinni á því, sem hér gerist á Alþingi. Og ég er svo hjartanlega sannfærður um það, að við rólega athugun, sem aðeins metur og vegur það, hvað bezt sé fyrir landið, þá hljóti menn að komast að þeirri niðurstöðu, að það sé skylda að taka þann kaleik frá þjóðinni að láta Íslandsbanka stöðvast nú. Verði hann stöðvaður, er hinni stærstu ógæfu varpað yfir atvinnulíf þjóðarinnar, og innstæðueigendur verða fyrir stórtjóni. Og hve örðugt á ekki atvinnulíf þjóðarinnar, þótt það verði ekki fyrir öðrum eins hnekki? Hvaða örðugleika á ekki okkar sjávarútvegur að búa við? Jafnvel í öðru eins góðæri og síðasta ári hafa mörg félög alls ekki borið sig.

Það getur ekki verið nokkur minnsti ágreiningur um það, að það er þjóðarógæfa, sem er að ske, ef bankinn er látinn stöðvast. Ég hefi lýst ógæfunni inn á við. En ógæfan út á við, lánstraustsspjöllin, sem hljótast af því, að frá litlu landi, sem veröldin þekkir lítið, fer að berast fregn um það, að annar höfuðbankinn sé stöðvaður, — hvaða áhrif hefir það? Hvað má meta þessi lánstraustsspjöll hátt í milljónum?

Þegar ég hér bið um vægð fyrir Íslandsbanka, þá er ég að biðja um vægð fyrir fleiri en hann. Ég er að biðja um vægð fyrir atvinnulíf þjóðarinnar og fyrir lánstraust þjóðarinnar. Og ég bið um það, að menn láti ekki þá gömlu óvild verða að villiljósum á vegum sínum, þegar þeir eru að ráða fram úr þessu máli, heldur skilji, að þeir eigi að rétta hér hjálpandi hönd.

Þeir, sem vilja láta bankann deyja, það eru mennirnir, sem eru að kasta milljónunum í burt. Þeir, sem vilja láta bankann lifa, þeir eru að bjarga milljónunum.

Ég er ekki að biðja um vægð fyrir mig sem bankastjóra. Ég hefi lýst yfir því, að gefnu tilefni, við hæstv. forsrh., áður en stöðvunin kom til tals, að ef það gæti orðið til þess að bjarga bankanum, að ég færi frá honum, þá segði ég óðara minni bankastjórastöðu lausri. Því að sannarlega skil ég svo vel aðstöðu mína sem þingmanns þjóðarinnar, að ef ekki er um meira offur en það að ræða, þá er rétt að láta það í té til að hjálpa bankanum. Enginn af bankastjórum Íslandsbanka er að biðja um vægð fyrir sig. Sú stjórn, sem með Alþingi að bakverði vill hjálpa bankanum, hefir á valdi sínu að skipa þá menn, sem hún trúir bezt fyrir bankanum.

Í nótt, þegar rætt var um þetta mál, þá lauk þeim umr. svo, að greidd voru atkv. um tillögu til að bjarga bankanum — gefa stj. heimild til að gera ráðstafanir fyrir bankann, til þess að forða honum frá stöðvun. 18 greiddu atkv. með till, en hinir greiddu ekki atkv., og var till. talin fallin. Ástæða þeirra, sem ekki greiddu atkv., var sú, að þeir væru ekki búnir að kynna sér þessi mál nógu vel. (LH: Ætli það hafi ekki verið eðlilegt?). Ég fer ekki frekar inn á það að þessu sinni. En þessa aðstöðu mætti ef til vill dæma þannig, að ýmsir af þessum mönnum myndu, eftir að hafa fengið betri þekkingu á málinu, vera fúsir til að rétta hjálparhönd, þótt þeir treystu sér ekki til þess í nótt. Ég vona, að ég hafi skilið hæstv. fjmrh. rétt, að þessu máli ætti undir öllum kringumstæðum að vísa til þeirrar n., sem ákveðið var að skipa í málinu hér á undan. Ég treysti fastlega, að þetta mál fari að fara í þá n. og að það megi takast að draga það út úr hitanum — út úr óróanum — og inn í þá rólegu yfirvegun, sem ég vonast til, að málið fái í nefnd.

Ég er alveg viss um það, að það er ekki neitt mál, sem komið hefir á dagskrá þjóðarinnar í seinni tíð, sem augu þjóðarinnar vaka meir yfir en þetta mál. Augu þjóðarinnar vaka yfir því, sem gert er í þessu máli. Og þess vegna held ég, að það sé a. m. k. það sjálfsagðasta, að Alþingi rökstyðji gerðir sínar í þessu máli eins vel og það getur.

Annars verð ég að segja það, að þar sem tveir jafntrúverðugir menn eins og bankaumsjónarmaðurinn og bankastjóri við landbúnaðarbankann hafa metið þennan banka og segja, að hann eigi fyrir skuldum, þá ætti það í raun og veru að vera nægur grundvöllur fyrir þingið til þess að byggja á hjálp sína. Ef þetta mat er rétt, þá er engin áhætta fyrir þingið að taka ábyrgð á innstæðufénu. Og þó að það væri einhver áhætta, mundi nokkursstaðar á landinu heyrast nokkur rödd á móti því, að sparisjóðseigendum væri tryggt sitt fé? Jafnvel þótt niðurstaðan verði sú, að stöðva bankann, koma þá ekki kröfur, sem þingið getur ekki staðið á móti, kröfur um það, að hver fái sitt af innlánsfénu? Ég segi: Þær kröfur koma fram. Ég segi meira: Alþingi treystir sér ekki til að standa á móti þeim kröfum. En ef þetta er rétt, því þá ekki að taka strax þetta skref, úr því það getur orðið til þess að gefa bankanum líf? Það mundi bjarga honum ekki aðeins um stundarsakir, ef hann fær þessa aðstöðu, sem talað er um, heldur mun hann ábyggilega geta haldið áfram að verða lifandi, starfandi liður í viðskiptalífi þjóðarinnar.

Ég veit það, að sú ábyrgð, sem hvílir á Alþingi í þessu máli, hún er mikil. Og ég veit það alveg með vissu, — með fullkominni vissu, að ef bankinn nú verður stöðvaður, þá er verið að skapa ógæfu fyrir þjóðina, sem enginn veit ennþá hvað verður stór.