17.02.1930
Efri deild: 27. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1162 í B-deild Alþingistíðinda. (389)
12. mál, lántaka fyrir ríkissjóð
Jón Þorláksson:
Hæstv. fjmrh. hefir náttúrlega ekki gert neina grein fyrir því, hvers vegna væntanlegir lánveitendur bera fram kröfu gagnvart okkur, sem þeir ekki bera fram gagnvart öðrum ríkjum, þegar þau taka lán, og á meðan hæstv. ráðh. ekki getur það, verð ég að halda fast við mína skoðun. En annars stóð ég upp til þess að víkja því til n., sem fær málið til meðferðar, hvort ástæða væri til að fella úr gildi þá grein l. frá í fyrra, sem telur upp heimildirnar. Er þetta sjálfsagt að því er lántökuheimildina sjálfa snertir, en ég vildi, að það væri athugað, hvort þetta þarf að fella úr lögunum, því að það er dálítið óvenjulegt að heimila ríkisstj. slíka lántöku án þess nokkuð sé um það sagt í lögunum, til hvers er ætlazt að því lánsfé sé varið.