03.02.1930
Neðri deild: 13. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í C-deild Alþingistíðinda. (395)

67. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka, hlutafjárauki o. fl

Héðinn Valdimarsson:

Ræða hv. þm. Dal. gefur mér tilefni til að segja nokkur orð, sem ég ætlaði að geyma þar til við 2. umr.

Þeir eru búnir að tala af hálfu Íhaldsflokksins, bæði hv. 1. þm. Skagf. og hv. 2. þm. G.-K. Vil ég ekki að sinni fara inn á umtalsefni þeirra, til þess er nægur tími síðar. En þegar þriðji maðurinn úr stjórn flokksins, hv. þm. Dal., stendur hér upp og heldur þá ræðu, sem hann hélt í kvöld, þá held ég, að tími sé kominn til þess að skjóta því til Íhaldsflokksins (ÓTh: Þessi flokkur heitir Sjálfstæðisflokkur!), að heppilegri málsvara ættu þeir að finna fyrir Íslandsbanka heldur en þann mann, sem ber með öðrum manni aðalábyrgðina á því, hvernig bankinn er kominn. Og ég hygg, að tal þessa hv. þm. um þetta mál sé ekki á þá leið, að á því verði tekið mikið mark. Ég vissi ekki betur en að Íhaldsflokkurinn hefði ákveðið að láta þennan hv. þm. koma sem minnst við þetta mál. Þess vegna var kosin ný n., af því að hann átti sæti í fjhn., sem eðlilegt hefði verið að vísa málinu til. En hann virðist ekki una við þetta, og flokkur hans ekki getað eða viljað stöðva hann.

Ég hygg þeir verði nú fáir, sem trúa því, eins og hann sjálfur virðist trúa, að hann geti skipt sér í tvo hluta, og annar helmingurinn tali sem bankastjóri Íslandsbanka, en hinn sem þm. Dal., enda ber ræða hans vott um það, að hinn óheppilegi bankastjóri Íslandsbanka sé að tala. Það virtist vera kjarninn í ræðu hans að efninu til, fyrir utan alla þá mærð, sem kom í endinn, að ef bankinn hefði fengið þessi 625 þúsund, þá mundi hann hafa getað bjargað sér á venjulegan hátt, en af því að hann hefði ekki fengið þetta, hefði vakizt út af því umtal, sem olli þeim afleiðingum, að bankanum þurfti að loka.

Hv. þm. Dal. lýsti því mjög átakanlega, hversu hugarástandi þeirra bankastjóranna við Íslandsbanka hefði verið farið á hverjum morgni í vetur, þegar átti að fara að opna bankann og þeir vissu ekki, hvernig þeir áttu að bjarga sér yfir daginn. Það er því ekkert nýtt, að Íslandsbanki sé í vandræðum. Hann hefir verið það lengi undanfarandi — því er nú verr og miður. Og það er ekki nokkur fótur fyrir því, að bankanum hefði verið bjargað, ef hann hefði fengið þessar 625 þús. kr., né að það hafi vakið svo mikið umtal og óróa, að honum var synjað um þær, að bankinn hafi þess vegna orðið að loka. Synjunin hafði engin veruleg áhrif á hag bankans, því að það var sama sem ekkert tekið út úr honum fyrir hræðslu, eins og hv. 3. landsk. þm. skýrði frá á fundinum í nótt sem leið. Það segir sig líka sjálft, hvort þessar 625 þús. kr. hafa getað bjargað bankanum, þegar bankinn nú fer fram á að fá 1½ millj. kr. nýtt lán, auk ríkissjóðsábyrgðar á öllum skuldbindingum sínum, sem nema um 35 millj. kr., eða ef þingið geti ekki fallizt á það, þá að ríkið ábyrgist allt innstæðu- og innlánsfé, sem er um 10 millj. kr. En eins og hv. 3. landsk. þm. lýsti yfir í nótt, er mjög óvíst, að varatill. sé nægileg. Það er því ekkert annað en blekking hjá hv. þm. Dal., þegar hann er að tala um það, að þessar 625 þús. kr. hefðu getað bjargað bankanum. Þó að bankinn hefði fengið þær, hefði hann verið í sömu vandræðunum eftir sem áður, og þeim kastað á glæ.

Hv. þm. Dal. vísaði til mats þess, sem bankaeftirlitsmaðurinn og Pétur Magnússon hæstaréttarmálaflm. kváðu upp eftir 12 tíma rannsókn á hag bankans. Ég skal ekki deila á Pétur Magnússon sem mann — hann er góður og glöggur maður —, en hitt þori ég að fullyrða, að það er á einskis manns færi að virða á hálfum sólarhring efnahag banka, sem hefir um 35 millj. kr. í veltu, án þess að geti skeikað um milljónir króna. Auk þess er þetta mat þeirra tveggja byggt á mati bankaeftirlitsmannsins á hag bankans fyrir árið 1928, og allir vita, hvernig það mat er. Ég er ekki í vafa um það, að ef tilnefna á einhvern annan en hv. þm. Dal. sem orsök í, að Íslandsbanka er nú svo komið sem raun er á, má fyrst og fremst tilnefna bankaeftirlitsmanninn, sem áreiðanlega hefir gefið rangar skýrslur um hag bankans. Ef réttar skýrslur hefðu verið gefnar, hefði mátt á at ósi stemma. Samkv. mati eftirlitsmannsins á efnahag bankans 1928 er um 1 millj. kr. af hlutafé bankans töpuð, en nú er svo komið, að tapið er meira en 4 millj. kr., þannig að allt hlutaféð er tapað, og meira til, eftir orðalaginu á þessari síðustu matsgerð. Eftir þessu ætti bankinn að hafa tapað meiru en 3 millj. kr. á síðasta ári, og er þó vitanlegt, að bankinn hefir ekki orðið fyrir neinum sérstökum töpum á því, nema hvað uppvíst varð um tapið á Seyðisfirði, en það hefir myndast á mörgum árum og áreiðanlega minnstur hluti þess síðastl. ár. Annars er útibúið á Seyðisfirði ágætt dæmi um ástandið og hirðuleysið, sem einkennt hefir alla stjórn Íslandsbanka. Bankastjórarnir báru ekki við að kippa útibúinu á Seyðisfirði í lag, fyrr en þeir voru reknir til þess.

Ég geri nú ráð fyrir, að menn sjái af þessu, að eitthvað hefir verið bogið við mat bankaeftirlitsmannsins á efnahag bankans fyrir árið 1928, og að full ástæða er til að vefengja mat, sem byggist á því. Og hvernig stendur á því, að eftirlitsmaðurinn kemur ekki fram með neina aðvörun, þegar bankinn tapar á 4. millj. kr. á einu ári? Skyldi vera vanþörf á endurmati á bankaeftirlitsmanninum sjálfum, og mundi rétt mat á honum ekki hljóta að hafa það í för með sér, að honum yrði vikið frá starfi sínu.

Við jafnaðarmenn viljum gera allt, sem við getum, til þess að koma þessu máli sem fljótast í höfn og þannig, að sem fæstir bíði tjón af því. Munum við vinna að því í n. Við álítum, að það, sem fyrst og fremst þurfi að gera nú, sé að öryggja með ríkisábyrgð verðgildi þeirra seðla, sem nú þegar eru í umferð frá Íslandsbanka, eins og frv. á þskj. 68 fer fram á, því að verði það ekki gert, má búast við, að hræðslan og óróinn út af þessum atburðum keyri úr öllu hófi. Við stöndum á öndverðum meiði við íhaldsmenn í þessu máli, sem gera allt til að sverta fjárhagsástandið í landinu, og höfum við þá von, að ríkið og Landsbankinn muni komast yfir þessa raun og að hægt verði að tryggja atvinnurekstur landsmanna, ef ekki er stefnt til nýrra óheillaaðgerða.

Hv. þm. Dal. vitnaði til álits erlendra manna í þessu máli og útmálaði það með hinum sterkustu litum, hvílík álitsspjöll við Íslendingar mundum líða erlendis, ef Íslandsbanki yrði tekinn til skiptameðferðar á þessu hátíðarári þjóðarinnar. Ég held nú þvert á móti, að við myndum vaxa í áliti hjá þeim útlendu mönnum, sem á annað borð hafa fylgzt með ferli Íslandsbanka frá því fyrsta, og þar með hjá umheiminum yfirleitt, ef hér verður gert hreint borð og jafnframt nauðsynlegar ráðstafanir til þess að tryggja afkomu atvinnurekstrar landsmanna.