03.02.1930
Neðri deild: 13. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í C-deild Alþingistíðinda. (399)
67. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka, hlutafjárauki o. fl
Bjarni Ásgeirsson:
Ég ætla aðeins að gera stutta aths., og mun ég halda mér að öllu leyti innan þeirra takmarka, sem ég hefi gert hingað til, nefnilega um aðstöðu Landsbankans til þessa máls.
Til þess að skýra ágreining minn og hv. þm. Dal., skal ég leyfa mér að lesa upp 69. gr. bankalaganna frá 1928. Hún hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Landsbankinn endurkaupir af Íslandsbanka góða viðskiptavíxla .... fyrir allt að 5/8 þeirrar upphæðar, sem Íslandsbanki hefir á hverjum tíma dregið inn af seðlaveltu sinni“ o. s. frv.
Ég vil nú benda hv. þm. á, að í gr. stendur „hefir dregið inn“, en ekki „dregur inn“ á hverjum tíma. Bendir þetta orðalag ótvírætt til þess, sem þegar er um garð gengið, en ekki þess, sem er að gerast á hverjum tíma. Hv. þm. sagði, að þessi umrædda skuld hefði verið stofnuð áður en Landsbankalögin gengu í gildi. En vitanlega hefir hún verið stofnuð vegna inndráttar seðla, svo að ef strika á yfir hana, þá verður heldur ekki hægt að taka inndrátt seðlanna til greina. Landsbankinn leyfði Íslandsbanka að taka meira út á seðlaútdráttarkontóna en lögin tilskildu svo að ef um lögbrot er að ræða af hálfu Landsbankans gegn Íslandsbanka, þá er það Íslandsbanka í vil, en ekki öfugt. Skylda Landsbankans til að rediskontera víxla Íslandsbanka nam ekki meira en 625 þús. kr. Hins vegar er skuld Íslandsbanka á þessari kontó á fjórðu millj. kr. Það nær því engri átt, að Íslandsbanki hafi átt nokkra lagakröfu um það, að Landsbankinn endurkeypti víxla, sem svaraði til seðlainndráttarins í haust, meðan Landsbankinn hafði í þeim efnum jafnvel farið fram úr því, sem lögheimila. Sé sú skýring rétt, sem áreiðanlegt er, að lögunum sé ætlað að gilda aftur fyrir sig, þá stendur Íslandsbanki mun verr að vígi, er hann vill sækja Landsbankann til sakar um lögleysu og lögbrot í þessu atriði.
Hv. þm. Dal. lagði áherzlu á það, að Landsbankanum hefði aldrei stafað hætta af viðskiptunum við Íslandsbanka. Ég ætla ekki að deila við hv. þm. um það, enda væri slíkt þýðingarlítið. En ég skal aðeins geta þess, að ýmsir hafa enn litið öðrum augum á það mál, sem þeim viðskiptum hafa verið eins kunnugir.
Þá skal ég að lokum drepa lítilsháttar á þau orð hv. þm., að Landsbankinn væri skyldur að afstýra hruni annara banka í landinu. Ef þetta væri rétt, að seðlabanki væri skyldugur til þess, þá væri ekki mikið um bankahrun í löndunum, a. m. k. ekki smábanka. En þá gæti líka farið svo að lokum, að seðlabankarnir sjálfir hryndu með alla trossuna aftan í sér. Og vitanlega væru slík bankahrun miklu alvarlegri en þótt einn og einn banki heltist úr lestinni. En þar sem seðlabanki hvers lands er lífæð allra atvinnumála þess, er skylda þeirra manna, er þeim stjórna, að gæta fyllstu varúðar gagnvart vafasömum fyrirtækjum, hverrar tegundar sem eru. Þetta var þess valdandi, að Landsbankinn treystist ekki til að halda áfram að kaupa víxla Íslandsbanka. Að vísu má segja, að Landsbankinn hefði getað haldið Íslandsbanka við eða bjargað honum með því að endurkaupa víxla af honum fyrir 625 þús. kr., en sú björgun hefði ekki varað lengi. Landsbankinn hefði að sjálfsögðu orðið að kaupa víxla fyrir 625 þús. kr. eftir hálfan mánuð o. s. frv. Vitaskuld hefði Landsbankinn getað haldið svo lengi áfram að kaupa víxla af Íslandsbanka fyrir 625 þús. kr. í hvert sinn, að Íslandsbanki hefði getað lifað. En slíkar ráðstafanir hefðu verið mjög vafasamar, því fyrst og fremst verður hann sem höfuðbanki landsins að tryggja sig og sjá sér farborða. Er Landsbankinn sízt ámælisverður, þótt hann hafi gætt þessarar skyldu.
Ég sé nú, að hæstv. forseti er orðinn óþolinmóður, en ég vil minna hann á, að ég byrjaði með stuttri aths.