03.02.1930
Neðri deild: 13. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í C-deild Alþingistíðinda. (400)

67. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka, hlutafjárauki o. fl

Jóhann Jósefsson:

Ég skal lofa hæstv. forseta því, að vera ekki langorður, enda gefst tækifæri til þess að ræða málið síðar, er það kemur úr n.

Að mínu viti hafa umr. þær, er fram hafa farið í kvöld, að minnstu leyti snúizt um það, sem meginatriði er þessa máls. Einstakir þm. hafa gerzt málsvarar beggja bankanna og sótt hvern annan til sakar um það, hvernig nú er komið. En ég lít svo á, að nú sé ekki tími til slíks. Skeð er skeð, og á þessu stigi málsins verðum við að leggja höfuðáherzlu á það, hvernig því verður við bjargað, sem hér hefir úr lagi farið. Um hitt er minna áríðandi að tala nú, hvernig hefði verið hægt að afstýra þessum vandræðum og hver eigi sök á þeim. Sú hlið málsins verður væntanlega tekin til athugunar síðar.

Ég skal þá snúa mér að frv. því, sem hér er til umr. í kvöld. Það fer fram á, að ríkið leggi bankanum til 3 millj. kr. sem forgangshlutafé, að því tilskildu, að hinir útlendu lánardrottnar, svo sem Privatbankinn í Kaupmannahöfn og Hambros Bank í London, gefi kost á framhaldandi viðskiptalánum handa Íslandsbanka, með aðgengilegum kjörum. Í öðru lagi fer frv. fram á, að ríkissjóður ábyrgist innlánsfé og annað innstæðufé bankans í hlaupandi viðskiptum til loka leyfistímans, 31. des. 1933.

Hæstv. fjmrh. reyndi að meta pro og contra í þessu máli, og komst að lokum að þeirri niðurstöðu, að ef um nokkra hættu væri að ræða fyrir ríkissjóð, þá gæti hann ekki verið því meðmæltur, að gengið væri inn á þá braut, er frv. þetta leggur til. Ég vil þá benda hæstv. ráðh. á, að þing og stj. hefir oftlega stigið spor, sem gætu haft alvarlegar afleiðingar fyrir ríkið, án þess að jafnalvarlegt tilefni væri til þess og nú. Ég beindi þeirri fyrirspurn til hæstv. stj. á fyrra stigi þessa máls, hvað hún hefði hugsað sér að gera fyrir atvinnufyrirtæki þau, sem allt eiga undir Íslandsbanka um veltufé, ef starfsemi hans stöðvaðist algerlega. Vil ég þar sérstaklega tilnefna útgerðina í mínu kjördæmi, Vestmannaeyjum. Ef Íslandsbanka er lokað, og aðrar ráðstafanir ekki gerðar tafarlaust til að leggja viðskiptavinum bankans til rekstrarfé, er útgerð mikils meiri hluta þeirra vélbáta, ca. 100, sem þar ganga, þá þar með stöðvuð, og fleiri þús. manns sviptir atvinnu og öllu bjargræði. Úrlausn þessa máls sker úr því, hvert verður hlutskipti útvegsins í Vestmannaeyjum, sem atvinnu- og bjargarvonir kjördæmisins eru tengdar við.

Að vísu hafði hæstv. forsrh. góð orð um, að gerðar yrðu sérstakar ráðstafanir til þess, að atvinnufyrirtækin gætu haldið áfram. En það er alveg víst, að þrátt fyrir góðan vilja stjórnarvaldanna um að láta hrun Íslandsbanka valda sem minnstum truflunum í atvinnulífinu, þá getur þó aldrei hjá því farið, að margir verði fyrir þungum búsifjum af völdum þess. Slíkur glundroði í peningamálum þjóðarinnar hlýtur ávallt að baka fjölda manna það tjón, að þeir fái það aldrei að fullu bætt. Er það ótvíræð skylda þings og stj. að afstýra slíkum búsifjum eftir megni.

Í sambandi við þau orð hæstv. fjmrh., að hér væri um hættu að ræða fyrir ríkið, ef það reisti bankann við samkv. frv. á þskj. 67, þá langar mig til þess að spyrja hæstv. ráðh. nokkurra spurninga. Ef hnigið verður að því óheillaráði að taka bankann nú þegar til gjaldþrotaskipta, hversu fer þá um þær skuldbindingar, sem ríkið nú er í vegna bankans, og hvað er um þá hættu, sem þjóðarbúinu getur stafað af þeim? Í öðru lagi: Hvað er um þann tekjumissi ríkissjóðs, sem óhjákvæmilega hlýtur að leiða af tjóni þeirrar atvinnugreinar, sjávarútvegsins, eða þess hluta hans, sem hingað til hefir notið stuðnings Íslandsbanka með rekstrarfé? Felst þar engin hætta fyrir ríkissjóðinn? Annars verð ég að segja það, að ef það er meining þingsins að miða hjálpina einungis við það, sem hættulaust er fyrir ríkissjóð, þá get ég ekki séð, að þingið sé fært um að ráða fram úr þessu máli á viðunandi hátt. Það er beinlínis skylda þingsins að gera skynsamlegar ráðstafanir til þess að fyrirbyggja hrun annars aðalbankans í landinu og þá atvinnutruflun, fjártöp, lánstraustsspjöll og hverskonar ófarnan, sem af slíku hlýtur að leiða. Enda þótt slíkar ráðstafanir feli í sér einhverja hættu fyrir ríkissjóð, þá eru þær þó gerðar til þess að afstýra annari og miklu meiri hættu, og þess vegna fullkomlega réttmætar.

Þá hefir verið drepið á það tjón, sem sparifjáreigendum og öðrum innstæðueigendum er bakað með því að taka Íslandsbanka til gjaldþrotaskipta. Sparifjárinnieignir landsmanna í Íslandsbanka skipta mörgum millj. króna. Þetta eru samansparaðir peningar manna víðsvegar um land, og þá aðallega þeirra manna, sem ekki hafa fé bundið í atvinnurekstri. Ætlar nú þingið að horfa upp á það með köldu blóði, að þetta fólk sé umsvifalaust svipt þessum eignum sínum, eða meiri hluta þeirra? Mörgum verða þessi töp svo þungbær, að þeir fá ekki undir risið. Ætlar hið opinbera, ætla valdhafar ríkisins að launa þannig þeim sparsömu og ráðdeildarsömu? Ekki fer hjá því, að slíkt mundi veikja stórlega gjaldþol fjölda manna í landinu. Felst ekki einnig hætta í þessu fyrir ríkissjóð? Er það með öllu hættulaust fyrir ríkissjóð að veikja þannig hina sparandi krafta í landinu? Ég held yfirleitt, að mjög beri að gjalda varhuga við þeirri leið, sem frv. Framsóknarmanna vili fara í þessu máli. Varla hefir þess áður verið brýnni þörf, að haldið væri á máli með viti, skilningi og velvild heldur en nú.

Ég tel meira en brýna nauðsyn bera til, að tekið sé á þessu máli með viti, skilningi og velvild, ef forða á þeirri ógæfu, sem leiðir af því fyrir þjóðina, að Íslandsbanki verði á þessu stigi málsins endanlega lokaður og gerður upp, eins og sakir standa nú. Þetta segi ég ekki eingöngu sem þm. Vestm., heldur sem þm. yfirleitt. Þetta er af mörgum talið hið alvarlegasta mál, sem hér hefir risið upp nokkru sinni. Og það má alls ekki líðast í slíku máli sem þessu, að gamlar væringar milli Íslandsbankastj. og Landsbankaráðsins eyði tíma og kröftum þingsins, sem gætu orðið þjóðinni til varanlegra heilla og blessunar, ef vel væri á þeim tíma haldið. Það er ekki um það deilt, að með því áfalli, sem Íslandsbanki þegar hefir orðið fyrir, er stórtjón skeð. En spurningin er ekki sú ein nú í bili, af hverju þetta tjón stafar. Hin alvarlegri hlið þessa máls er sú, sem snýr að allri þjóðinni. En sú hlið er spurningin um það, á hvern hátt fljótast megi vinna bug á því tjóni, sem þegar er orðið, og fyrirbyggja, að meira verði. Ég tel, að ef horfið verður að því óheillaráði að láta Íslandsbanka deyja nú þegar, eins og sumir hv. þm. vilja, þá sé það ekki rétt lausn á málinu. Þá verður þjóðinni áreiðanlega bakað meira tjón vegna yfirstandandi erfiðleika bankans en þarf að vera. En að hinu þurfa allir beztu kraftar að beinast á þessu augnabliki, að gera þetta tjón sem allra vægast, bæði vegna þeirra, sem eiga atvinnurekstur sinn undir afkomu bankans, og eins hinna, sem eiga þar inni margra ára uppsparað fé sitt. Þessa aðila erum við í dag kvaddir til að verja. Og ég efast eigi um, að það megi takast, ef vilji manna hnígur að því ráði. Ef allir verða samtaka um það, þá efast ég ekki um, að sæmileg lausn náist í þessu máli, þó nú þyki erfiðlega við horfa.