13.03.1930
Neðri deild: 52. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í B-deild Alþingistíðinda. (41)
1. mál, fjárlög 1931
Sigurjón Á. Ólafsson:
Ég vil fyrst beina þeirri spurningu til hæstv. forseta (JörB), hvort hann líti ekki svo á, að þetta sé frh. af ræðu minni í gær, svo það teljist ekki 2 ræður. (Forseti: Mér finnst það sanngjarnt). Ég leyfi mér að þakka hæstv. forseta fyrir þetta.
Þegar fundi lauk í gærkvöldi, hafði ég aðeins mælt með annari brtt. minni á þskj. 260. Hér er önnur brtt., sem er brtt. XXXII. á þskj. 260, við 16. gr.
Ég býst við, að margir hv. þm. skilji ekki, hvað liggur á bak við þessa fjárbeiðni, og verð ég því að gera nokkra grein fyrir því. Það er Sjómannafélag Reykjavíkur, sem stendur að baki þessari till., en það er, eins og flestir vita, stærsta verkamannafélagið hér á landi. Að flestra dómi eru sjómenn einhver sú þarfasta og ötulasta stétt, sem þetta land byggir. Meðlimirnir í Sjómannafélagi Reykjavíkur eru um 1200 manns, og auk þess um 300 aukafélagar. Þessi félagsskapur stendur á bak við þessa beiðni, sem hér er borin fram.
Þá vil ég geta þess, að á þessari saltfisksvertíð eru á 27 togurum héðan úr Reykjavík og 15 línuveiðabátum lögskráðir 1094 menn. Af þeim eru 402 utan Reykjavíkur. Þessir menn eru komnir hingað til þess að reka atvinnu á skipum héðan. Þessir menn eiga hér ekkert heimili og eru því eins og útlendingar, sem hingað koma. Auk þess vil ég benda á það, að verzlunarskipin hafa um 100 manns, og eins og kunnugt er eiga margir þeirra heima utan Reykjavíkur. Það er því full nauðsyn þess fyrir sjómenn, bæði þá, sem eru á stórum skipum og mótorbátum o. fl., að hafa verstofu, þar sem þeir eiga kost á að koma inn á vistlegan stað, þar sem þeir geta lesið blöð og bækur, skrifað bréf og skrafað saman. Ég hefi orðið var við töluverða vöntun á þessu í svo stórum bæ sem Reykjavík nú er. Þetta er því menningarmál.
Það er svo um mörg ungmenni, sem hingað koma til að leita sér atvinnu, að þau þekkja fáa. En á meðan þau eru að bíða hér eftir atvinnu, eru ýmsar tálsnörur, sem lokka þá til að gera ýmislegt það, er aflaga fer. Má þar t. d. nefna nautn áfengra drykkja. Stofnun sem þessi er tilraun til þess að menn geti forðast slíkar tálsnörur.
Ég gæti í sambandi við þetta bent á ýmsar slíkar stofnanir í öðrum löndum og starfsemi þeirra. Þá hafa ýms trúfélög eða borgaraleg félög komið upp góðum heimilum fyrir sjómenn. Ég álít, að þessu yrði líka gaumur gefinn hér hjá okkur. Sjómenn, sem eru hér að hrekjast, myndu fegnir leita sér þar hvíldar, og má þess vegna góðs af henni vænta. Þessi stofnun mundi einnig verða notuð af erlendum sjómönnum. Sjómannafélag Reykjavíkur lítur því svo á, að með þessari stofu sé stigið stórt spor í menningarátt. Þessi stofa yrði náttúrlega einhversstaðar nálægt höfninni hér í Reykjavík. Jafnvel þessi fjárupphæð er ekki nema lítill hluti af kostnaðinum, en við mundum geta aflað þess fjár, sem á vantar, ef við fengjum þetta.
Skal ég svo ekki fjölyrða um þennan lið og víkja að ráðningarstarfseminni. Ég verð að segja, að hún er út af fyrir sig ærið verkefni fyrir okkur. Eins og kunnugt er, hafa augu manna um alllangan tíma verið opin fyrir því, að nauðsynlegt væri að koma hér upp einhverskonar ráðningarstarfsemi. Árið 1906 hóf Búnaðarfélagið stika starfsemi, sem átti að ná til verkafólks úti um land allt. Mér hefir verið sagt, að þessu hafi verið haldið uppi á annað ár. Ég þykist vita, að kostnaður við það hafi, að minnsta kosti óbeinlínis, verið lagður fram af hálfu ríkisins. En mér er ekki kunnugt, af hverju þessi starfsemi lagðist niður. — 1917 var hafin dýrtíðarvinna að vetrarlagi, en um vorið heldur ríkið uppi ráðningarstarfsemi í maí og júní, og maður, sem hafði hana með höndum, hefir skýrt mér frá, að menn hafi mjög notað hana í atvinnuleit. Síðan hafa tilraunir í þessa átt verið gerðar af hálfu einstakra manna, en vegna ýmissa ágalla, sem ég hirði ekki að nefna, hafa menn fælzt frá að nota sér þær.
Ég get sagt það út frá þeirri reynslu, sem Sjómannafélagið hefir í þessu efni, að útgerðarmenn leita ákaflega oft til okkar, þegar fer að líða á sumarið, um verkafólk. En við höfum engin tök á að hafa skrár yfir atvinnulausa menn, og því veitist okkur erfitt að gefa allar nauðsynlegar upplýsingar. Hinsvegar gerum við það, sem í okkar valdi stendur til þess að útvega atvinnulausum mönnum eitthvað að gera. En sú starfsemi er bæði tímafrek og fjárfrek. Ég hefi oft átt tal um þetta við ýmsa útgerðarmenn, og þeir hafa verið mér fyllilega sammála. Ef hér væri fullkomin ráðningarskrifstofa, væri hægt að dreifa vinnukraftinum um land allt á þann hátt, sem heppilegast væri fyrir atvinnureksturinn og verkafólkið. Nú fer t. d. helmingi fleira fólk til Siglufjarðar en þar þarf á að halda, og aftur á móti vantar fólk tilfinnanlega annarsstaðar á landinu.
Ég verð að minnast ofurlítið á tilhögun þessarar ráðningarskrifstofu, eins og ég hugsa mér hana. Upphaflega tóku verklýðsfélögin þetta að sér, en þjóðirnar sáu brátt, að nauðsyn var á meiru. Á þingi atvinnurekenda og sjómanna, sent haldið var í Genua 1920, varð það að alþjóðasamþykkt, að öll ríkin kæmu upp hjá sér ráðningarskrifstofu. Þetta hefir nú dregizt hjá ýmsum þeirra, en t. d. í Danmörku var borið fram frv. árið 1906 í þessa átt, sem þá dagaði uppi. Nú hefir enn verið borið fram slíkt frv., og er talið víst, að það verði samþ. Ég er nú ekki að fara fram á neitt slíkt, heldur aðeins, að Sjómannafélaginu verði veittur ofurlítill stuðningur í þessu máli. Það er hugboð mitt, að reynslan sýni, að ekki verði til ónýtis unnið að bæta skipulagið í þessu efni. Ég vænti þess, að menn athugi vel, hvað hér er á ferðinni. Hér er ekki farið fram á annað en það, sem miðar þjóðfélaginu til heilla.
Aðrar brtt., sem fyrir liggja, ætla ég ekki að gera að umtalsefni. Ég er því ekki vanur. Ég mun kjósa að taka aftur til máls, ef eitthvað kemur fram í umr., sem gefur mér tilefni til þess.