10.02.1930
Neðri deild: 20. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í C-deild Alþingistíðinda. (411)

67. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka, hlutafjárauki o. fl

Sveinn Ólafsson:

Ég stend ekki upp vegna þess, að ég þurfi að bæta nokkru við framsögu hv. frsm. meiri hl., heldur vegna þess, að hv. frsm. minni hl. hefir ekki skýrt rétt frá staðreyndum og látið á sér skiljast, að við meirihlutamenn höfum af óvild eða fjandskap til bankans tekið þá stefnu í málinu, sem við höfum framfylgt. Þetta hefir að vísu einnig og aðallega komið fram í blöðum þeim, sem hann er nærstæður, en hann brá hv. frsm. meiri hl. um þetta með beinum orðum og fortakslaust. Slíkar aðdróttanir eru lítt sæmandi og afarólíklegar til góðs árangurs. Ég verð að gera ráð fyrir því, að vér allir, hvaða skoðun sem vér annars höfum á þessu máli, viljum vinna að því með það fyrir augum að leysa úr vandanum á þann hátt, sem þjóð vorri og landi má að mestu og beztu liði verða. Ef ég hefði ekki þá trú á minni stefnu í máli þessu, að hún væri heillavænleg, þá mundi ég ekki geta fylgt henni til sigurs.

Ég verð að taka það hér fram, að hv. frsm. minni hl. skýrði ekki alveg rétt frá störfum n. og hefir jafnvel hallað réttu máli í nál. minni hl. Hann virðist sem sé vilja láta skilja skýrsluna um nefndarstörfin svo, að ég hafi lagt tálmanir fyrir hann og skoðanabróður hans og n. í heild sinni um það, að fá bein svör frá bankastjórn Landsbankans um þær fyrirspurnir, sem til hennar var beint. Ég verð nú að segja, að hv. frsm. minni hl. hefir þarna skotið nokkuð hastarlega framhjá markinu, því að bæði hann og aðrir nm. vita það, að bankastj. færðist undan að svara fyrirspurnum minni hl. um endurreisnarvonir fyrir Íslandsbanka, af þeirri ástæðu, að henni bæri ekki að gera það og að slík svör ættu að vera verk bankaráðsins, en ekki framkvæmdarstjórans. (ÓTh: Þetta er því miður ekki rétt). Þetta er bókstaflega rétt, og það vita allir nm. Hitt er líka rétt, að einn af bankastjórunum tók það fram, að einkaskoðun bankastjóranna þyrfti ekki að vera leyndarmál. Og samkv. því gat hv. frsm. minni hl. vitað, hvert var að leita um einkaálit þeirra. En það var fullkomin neitun frá hendi bankastj. um það, að gefa n. opinbert álit um þetta efni, sökum þess, að það heyrði undir bankaráð að gefa slík svör.

Að öðru leyti verð ég að geta þess, að um þetta sama atriði og bankastjórarnir voru spurðir, hafði hæstv. forsrh. líka spurt bankastjóra og bankaráð. Og það var alls engin tálmun á því að fá að heyra svör þeirra af vörum ráðh.

Annars get ég ekki verið að þrátta um þetta mikið við hv. minni hl., þótt óvandlega hafi hann með heimildir farið. Þetta er eigi óvenjulegt hnútukast í sambandi við meðferð ágreiningsmála um þessar mundir. En af því að hér er alvörumál á ferð, hefði þó betur sæmt að sleppa getsökum og leggja rangfærslurnar til hliðar.

Um þá yfirlýsing hv. frsm. minni hl., að málið hafi verið dregið úr höndum n. með því að gera henni ekki kunnug þau skeyti, sem hafa farið á milli stj. og einstakra útlendra manna, finnst mér óþarft að svara mörgu. Ásökunin er hreint vindhögg. Það segir sig sjálft, að slík skeytaviðskipti gátu ekki nema að nokkru leyti verið n. kunn, og þan skeyti, sem hæstv. forsrh. hafði sent og fengið, voru látin n. í té og lesin þar upp. Gegnir það því furðu, að hv. frsm. minni hl. skuli leyfa sér að rangfæra skýrsluna eins og hann gerði.

Ég ætla nú ekki að fara neitt frekar út í niðurstöður hv. frsm. minni hl. um stefnu þá, sem frv. á þskj. 67 fylgir. Sú stefna var vel og röggsamlega skýrð af hv. frsm. meiri hl. Ég vil aðeins taka það hér fram til viðbótar, að þar sem hv. minni hl. fullyrðir bæði í nál. og fyrir munn síns frsm., að skyndimatið á bankanum um þær mundir, sem honum var lokað, hafi sýnt, að hann ætti fyrir skuldum, þá er þetta alls ekki rétt. Þeir menn, sem mátu, tóku aðeins fram með mjög óljósum orðum álit sitt um „status“ bankans — sögðu, að það myndi að öllum líkum láta nærri, að bankinn ætti fyrir skuldum, þegar talið væri frá hlutaféð gamla. Þetta er nú ekki svo skýrt og ákveðið, að það geti réttlætt þá fullyrðingu frsm., að bankinn eigi fyrir skuldum. Enda veit hv. frsm. minni hl., að þessir sömu menn, sem gerðu skyndiathugunina á bankanum, létu þess getið á fundi n., að þeir hefðu aðeins getað athugað hag nokkurra viðskiptamanna bankans, og þó lauslega, en alls ekki fjöldans.

Um spdómana hjá hv. frsm. minni hl., sem lúta að framtíð bankans, ætla ég ekki að tala að þessu sinni. Það er búið í nál. beggja nefndarhl. að leiða líkur að því frá þeirra sjónarhól, hvors um sig, og þýðir því ekki að fjölyrða um slíkt. Það vita allir og skilja, að afleiðingar af þessu hastarlega atviki, að bankinn svo gott sem fyrirvaralaust lýsir yfir því, að hann hætti útborgunum, hlýtur — í bili a. m. k. — að koma fram í hnekki lánstrausts og álits landsins. En hvort álitið verður endurreist fljótt eða ekki, er undir því komið, hve rösklega og hyggilega er að því farið að endurreisa viðskiptin aftur og koma þeim á réttan kjöl.

Það er alls ekki nein nýlunda í heiminum, þótt bankagjaldþrot verði og þess vegna er allt þetta írafár minni hl. ótímabært. Í nágrannalöndunum höfum vér heilan her slíkra tilfella frá síðari árum, og mun öllum geta skilizt, að slíkt getur komið fyrir hér eigi síður, einkum þó þeim, sem þekkja forsögu þessarar stofnunar og vita, að hún hefir staðið á flugufótum lengi vegna sjálfskaparvíta.

Ég ætla svo ekki að tefja tímann lengur; hygg ég það breyti hvort sem er ekki neitt verulega skoðun þingmanna í þessu máli, hvort lengur er um það deilt eða skemur.