10.02.1930
Neðri deild: 20. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í C-deild Alþingistíðinda. (414)
67. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka, hlutafjárauki o. fl
Hannes Jónsson:
Hv. 2. þm. G.-K. hóf svo mál sitt áðan, að við framsóknarmenn hefðum þó einu sinni sýnt hreinskilni, en hreinskilnin átti ekki að hafa verið heilbrigðari en það, að við hefðum sýnt fjandskap okkar við bankann með því að hafa hv. 2. þm. Reykv. fyrir frsm. í málinu.
Mér virðist þessi orð hv. 2. þm. G.-K. vera í fullu samræmi við aðra framkomu þessa hv. þm. og ýmsra skoðanabræðra hans í þessu máli, um leið og þau eru ósæmileg árás á hv. 2. þm. Reykv.
Við, sem höfum aðra skoðun á þessu Íslandsbankamáli en hv. stjórnarandstæðingar, eigum samkv. málflutningi þeirra ekki að hafa aðrar hvatir til þess en fjandskap til þess banka. Ef við viljum ekki láta ríkið taka ótakmarkaða ábyrgð á öllum fjárreiðum þessarar örþrota stofnunar, þá erum við að vinna ríki og þjóð lánstraustsspjöll og stórtjón. Ég vil fullvissa hv. þm. um, að við, sem erum honum andstæðir í þessu máli, leggjum ekki neitt til því til lausnar annað en það, sem við teljum, að sé þjóðinni fyrir beztu. Það er því óréttmætt og ekki vænlegt til sigurs að bera hæstv. stj. og stjórnarflokk slíkum brigzlum sem þessum.
En jafnframt því að saka okkur hv. 1. þm. S.-N. um fjandskap við bankann á þann hátt, sem hann gerði, vegur hv. 2. þm. G.-K. að sjálfum sér og hv. 1. þm. Skagf., því ég geri ráð fyrir, að hann þekki svo þingsköpin, að hann viti, að ritari lausanefnda er sjálfkjörinn frsm. hennar. Báðir þessir hv. þm. greiddu atkv. sitt með hv. 2. þm. Reykv. sem ritara n. og hafa því samkv. þingsköpum falið honum framsögu málsins. Hv. 2. þm. G.-K. hefir því sett sjálfan sig og hv. 1. þm. Skagf. í þann gapastokk, sem hann ætlaði mér og hv. 1. þm. S.-M. einum í að sitja.
Annars ætla ég ekki að fjölyrða mikið um ræðu þessa hv. þm., því að hún var sumpart útdráttur úr nál. á þskj. 82 og sumpart útdráttur úr þeim ræðum, sem hér hafa verið fluttar áður í hv. deild. Að svo miklu leyti sem hann vék að nál. meiri hl. n. á þskj. 83, þá fór hann þar ýmist með rangar skýringar á ýmsum atriðum, eða sleit þau út úr réttu samhengi. Ég vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp nokkur orð úr nál. meiri hl. bankamálanefndar. Þar segir svo:
,,Enda þótt bankinn sé einkabanki, sem ríkið hefir hvorki lagalega né siðferðislega skyldu til þess að ábyrgjast, hefir hann að vísu með stjórn sinni og hastarlegri ráðstöfun til lokunar að sjálfsögðu varpað skugga á íslenzk viðskipti, og það mundi ekki að fullu afmást, þótt ríkið tæki að sér ábyrgð á bankanum, en gæti einmitt með þeim hætti orðið stærri og langvinnari, er ábyrgðin smámsaman ykist og þyngdist. En rétt skil um fjárreiður bankans eftir lögfullri skiptameðferð mundi öllu líklegri til að endurreisa viðskiptatraustið út á við“.
Ég held, að allir séu sammála um, að þessir atburðir, sem nú hafa gerzt í peningamálum vorum, muni hafa mikil áhrif á lánstraust landsins út á við, stórkostleg lamandi áhrif. Ég held þá, að hv. 1. þm. Skagf. og hv. 2. þm. G.-K. séu undantekningar hvað þetta atriði snertir, því á bls. 5 í nál. sínu komast þeir svo að orði:
„Mál þetta liggur því í rauninni óvenju ljóst fyrir. Ef nú þegar er tekin ábyrgð á skuldbindingum bankans, er a. m. k. mjög líklegt, að lítið eða ekkert tjón hljótist af“.
Hv. þm. Dal. tók það réttilega fram, að meginkjarni þessa máls væri það, að finna réttan grundvöll undir endurreisn bankans, en hitt væri aukaatriði, hverjir væru valdir að hruni bankans. En ég vil benda honum á, að mikið vantar á að hann sjálfur hafi breytt samkv. þessari skoðun sinni. Síðasta ræða hans snérist nær eingöngu um það, sem nú er skeð, og jafnframt reyndi hann að klína ásökunum á stj. Landsbankans fyrir afskipti hennar af þessu máli. Reyndi hann að telja mönnum trú um, að hún væri völd að hruni Íslandsbanka. Þetta eru að vísu engar nýjar upplýsingar, því flokksmenn hans hafa lagt mikið kapp á að berja þessa fjarstæðu inn í fólk, til þess að leiða athygli frá mistökum þeirra sjálfra. Ég vil nú spyrja hv. þm., hvort hann áliti þetta sigurvænlega aðferð til björgunar málinu. Að hvaða gagni skyldi það koma Íslandsbanka, þótt ráðamenn hans og fyrirsvarsmenn reyni að niða niður aðra stofnun, sem vitanlega á enga sök á, hvernig komið er? (SE: Hvenær hefi ég nítt Landsbankann niður?). Ég býst nú við, að hv. þdm. hafi nokkurnveginn skilið, hvað hv. þm. fór. En hann hefir aldrei, svo ég viti, sýnt þess nokkra viðleitni, að leita skynsamlegra raka um heillavænlega úrlausn þessa vandamáls. Og aldrei hefir bankastj. látið sér detta í hug, jafnvel eftir að vandræði voru fyrirsjáanleg, að gera upp raunverulegan hag bankans og láta ítarlega rannsókn fara fram í samráði við ríkisstj. Þó væri ef til vill of mikið að segja, að bankastj. hafi ekkert aðhafzt, því hinn 10. jan. gerir hún þá miklu uppgötvun, að sjóður bankans fari minnkandi! Hvílík skarpskyggni! Sennilega hafa þeir þá talið uggvænt um, að nægilegir peningar myndu vera í sjóði til þess að greiða þeim launin næsta mánuð. Ég held, að slíkt hugsunarleysi sé alveg einsdæmi. Ég býst við, að flestir, sem fyrirtækjum veita forstöðu og vita, að þau liggja við gjaldþroti, muni reyna að gera sér einhverja grein fyrir hinum raunverulega hag fyrirtækisins, áður en allt er komið í óefni. Ef freista á þess, að reisa fyrirtæki úr yfirvofandi háska og hruni, verður að gera þar að lútandi ráðstafanir í tíma. Hv. þm. ætti því sízt að haga orðum sínum á þennan veg. Allt tal hans um réttan endurreisnargrundvöll er hnefahögg í hans eigið andlit. Og það er sorglegt að heyra mann með jafn syndugri fortíð í þessum efnum tala með þvílíkum myndugleik um þessa ömurlegu atburði, sem nýlega hafa gerzt undir handarjaðri hans.