13.03.1930
Neðri deild: 52. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í B-deild Alþingistíðinda. (42)

1. mál, fjárlög 1931

Jón Sigurðsson:

Ég á till. á þskj. 260, sem ég tel mér skylt að gera grein fyrir, af því að þar er um allmikið nýmæli að ræða. Till. mín er þess efnis, að styrkur verði veittur til raforkuveitu um Skagafjörð, fyrsta greiðsla af þremur, að upphæð 75.000 kr.

Ég verð að minnast á aðdraganda þessa máls. Það er langt síðan þetta kom fyrst til máls. Árið 1920 var fyrst farið að rannsaka aðstöðu til rafvirkjunar og fenginn til þess Halldór Guðmundsson rafmagnsfræðingur. Árið 1928 var Bjarni Runólfsson fenginn til þess að athuga þetta mál. Niðurstaða rannsóknanna varð sú, að héraðið sé sérstaklega illa fallið til sérvirkjunar. Aftur telja sérfræðingarnir, að héraðið hafi nægilegt afl til eigin þarfa í hinum stærri fallvötnum og að einn fossinn, Reykjafoss í Svartá, geti fullnægt raforkuþörf héraðsins. Héraðsmenn hafa þess vegna beitt sér fyrir því, að þessi foss væri rannsakaður, og að því hefir verið unnið. Steingrímur Jónsson og Geir Zoëga hafa síðan verið að vinna úr mælingunum og gera áætlanir. Heima í héraði er mikill áhugi fyrir þessu máli. 30. nóv. síðastl. var haldinn fulltrúafundur til að ræða þetta mál og annað mál, þar sem 40–50 fulltrúar úr 10 hreppum komu saman. Þar var samþ. í e. hlj. að vinna áfram að rannsóknum þessa máls og 11 manna rafveitunefnd var kosin til að undirbúa málið heima fyrir og leitast fyrir um styrk af hálfu þess opinbera. Fyrir þessum fundi lágu aðeins mjög lauslegar bráðabirgðaáætlanir. Síðan hefir undirbúningnum verið haldið áfram og í janúar sendi Steingrímur Jónsson áætlanir sínar norður. 24. febr. var svo nefndin kölluð saman. Ákvað hún að hallast að einu uppkastinu; tillögurnar voru sem sé á ýmsan hátt, eftir því, hvað stórt fyrirtækið væri hugsað. Að lokum skrifaði nefndin okkur þm. kjördæmisins og óskaði eftir, að við flyttum þetta mál hér á Alþingi. Fyrirhugað er, að virkjunin. nái til 124 bæja, auk Sauðárkróks, eða alls 1700 manna. Rafveitan tekur að meira eða minna yfir 7 hreppa, og orkuverið með öllu tilheyrandi, 900 hestöfl, er áætlað að kosti

290 þús. kr.

Háspennulína 109 km. ....

272 — —

Spennustöðvar 71 ........

127 — —

Lágspennulína 60 km. ....

120 — —

Mannvirkið alls 809 þús. kr. Steingrímur Jónsson hefir látið þess getið, að til þess að fyrirtækið verði fjárhagslega vel tryggt, þurfi að fást styrkur, sem nemi a. m. k. helmingi af því, sem leiðslurnar kosta, eða því sem næst. Við höfum farið fram á 225 þús. kr., sem skiptast niður á 3 ár, en það er sem næst 42% af leiðslukostnaðinum. Héraðsbúar hafa lofað að leggja fram um 90 þús. kr., sem alls ekki kæmi fyrirtækinu til endurgreiðslu. Eftir verða 500 þús. kr., sem Steingrímur Jónsson telur, að héraðsbúar geti staðið straum af með hæfilegu rafmagnsverði. En verðið hefir hann áætlað :

500 W. ....... 200 kr. á ári.

1000 — ...... 250 — - —

1500 — ...... 300 — - —

2000 — ...... 350 — - —

4000 — ...... 550 — - —

Hann telur, að fyrir meðalheimili mundi rafmagnið kosta til ljóss, suðu, vinnu og nokkurrar hitunar 300–350 kr. á ári.

Ég skal geta þess, að rafmagnsnefnd í Skagafirðinum hefir ekki heldur legið á liði sínu. Það hafa verið haldnir fundir í öllum hreppum á þessu svæði og alstaðar verið einróma samþ. að taka þátt í rafveitunni. Og pantanir liggja fyrir, sem nema um 600 hestöflum. N. hefir safnað skýrslum um fjárframlög frá bændum og kaupstaðarbúum með þeim árangri, að lofað hefir verið, eins og áður er sagt, að leggja fram 90 þús. kr., sem er vinna við flutning á efni, niðursetning á staurum o. fl. Þetta út af fyrir sig ætti að vera hv. þdm. ljóst vitni þess, að almennur vilji og áhugi héraðsbúa stendur á bak við. Ég skal líka geta þess, að það, sem ræður afstöðu héraðsbúa, er fyrst og fremst þörf sveitanna fyrir rafmagn. Og að þeir vilja fara þessa leið, byggist aðallega á því, að þar eru engin skilyrði til sérvirkjunar. Þetta er þeirra einasta leið. Sauðárkrókur notast nú við mótor, sem er að verða ónýtur, og er ekki annað sýnna en að Sauðárkróksbúar verði að verja miklu fé til mótorkaupa, ef rafveitan kemst ekki í framkvæmd á næstunni. Rafmagnið á Sauðárkróki er óhemju dýrt, að meðaltali kr. 1,32 pr. kw. Það hefir komið til orða að virkja litla á fyrir kaupstaðinn, þó að öllum sé vitanlegt, að það verði alveg ófullnægjandi. Það gæti dugað þeim í nokkur ár, en kæmi að litlu gagni í framtíðinni. Hins vegar vita Skagfirðingar, að ef þeir verða vegna skilningsleysis Alþingis á þessu máli hindraðir frá að koma sér upp héraðsrafveitu á næstu árum, þá skerast Sauðárkróksbúar úr leik.

Ég get enn bent á eitt atriði. Á Hólum í Hjaltadal er búnaðarskóli, sem ríkið hefir gert mjög myndarlega úr garði, en þar eru mikil vandkvæði á að fá rafmagn. Skólastjórinn hefir látið rannsaka þetta og komizt að því, að stöðin mundi kosta 50–60 þús. kr. En eins og menn sjá, er lítt hugsanlegt fyrir eitt heimili að ráðast í slíkan kostað. Ég býst við, að flestir séu mér þó sammála um, að á þeim tímum, sem við lifum nú, verði að gera þá kröfu til góðs búnaðarskóla, að hann hafi rafmagn, meðal annars til þess að hann geti kennt bændaefnum, hvernig eigi að nota það, svo að þeir geti orðið leiðbeinendur í því efni sem öðru síðar meir.

Eins og ég hefi áður drepið á, þá hafa verið reistar í sveitum hér á landi aðeins smáar einkastöðvar fyrir 1–2 heimili. Slíkar stöðvar kannast flestir við af afspurn eða eigin reynslu. Og mönnum er það kunnugt, hvernig heimilin svo að segja umskapast, eftir að þau hafa fengið rafmagnið. Ég veit, að sveitamenn þekkja yfirleitt þá örðugleika, sem stafa af verkafólkseklunni, áburðarskortinum, kuldanum og myrkrinu á vetrum o. fl. Úr þessum annmörkum bætir rafmagnið stórkostlega, enda hefir það greinilega komið í ljós, þar sem slíkar stöðvar eru komnar upp í sveitunum.

Nú vilja Skagfirðingar með einu sameiginlegu átaki gera tilraun til að lyfta því „Grettistaki“, að flest heimili í héraðinu geti fengið rafmagn, til þess að fullnægja þeirri þörf, sem ég áður lýsti. — Hér er um framtíðarfyrirtæki að ræða, og sú reynsla, sem af því hlytist, gæti komið öðrum héruðum að góðu liði. Af því mætti a. m. k. mikið læra og komast að raun um, hvort önnur héruð ættu að feta í þessi fótspor, eða ekki. Það ætti því að vera sameiginlegt áhugamál allra þingmanna að fá þessa, dýrmætu reynslu sem fyrst, og ég get ekki séð, hvers vegna það ætti að dragast. Ég vænti því, að allir þeir, sem unna sveitunum velgengni og umbóta, styðji þá viðleitni, sem til er stefnt með þessari brtt.

Ég tel það sjálfsagt, að ef sett verða lög um rafveitur í sveitum, þá verði þar tilgreind ákveðin skilyrði um fjárframlög o. fl. til þeirra, og þá hljóta þau eins að ná til þeirrar rafveitu, sem ráðgerð er í Skagafirði samkv. þessum till. okkar. Og þó að byrjað verði á framkvæmdum þar áður en slík lög væru sett, þá þarf það ekki að skapa fordæmi um styrkframlög eða annað.

Skal ég svo ekki fara fleiri orðum um þetta, þar sem svo fáir þm. eru nú viðstaddir í deildinni.

Ég vil þó í þessu sambandi geta þess, að við þm. Skagf., samkv. áskorunum frá héraðsbúum, berum fram þá ósk, að Alþingi heimili stj. að veita ríkisábyrgð á 500 þús. kr. láni til þessara rafveituframkvæmda; en það er samkv. áætlun mismunur kostnaðarins við fyrirtækið, þegar frá er dreginn væntanlegur styrkur úr ríkissjóði og framlög héraðsbúa í Skagafirði. Það er hugsanlegt, að ef samið yrði við erlend firmu eða félög um að framkvæma þetta verk, þá fengjust þau einnig til að veita þetta lán til fyrirtækisins, en þó er varla hægt að búast við því, nema ríkisábyrgð sé á bak við; enda eru fordæmi fyrir því, að slíkar ábyrgðarheimildir hafa verið veittar umtalslitið á undanförnum þingum.