10.02.1930
Neðri deild: 20. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í C-deild Alþingistíðinda. (422)
67. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka, hlutafjárauki o. fl
Jóhann Jósefsson:
Ég stóð upp aðallega af því, að Vestmannaeyjar voru dregnar inn í þessar umr. Ég vildi láta þess getið, að ágizkun hv. frsm. meiri hl. um, að Íslandsbanki hefði orðið fyrir miklum töpum þar, hefir við engin rök að styðjast. Ég er að vísu ekki nákunnur reikningum bankans þar, en veit ekki til, að nokkurntíma hafi orðið almennt umtal um töp þar. Máske hafa tapazt smáupphæðir, en ekki svo, að valdið hafi nokkurri athygli né umtali. Hitt hefir verið sagt, að þetta sé bezta útibú Íslandsbanka, og sá maður, sem hefir veitt því forstöðu, standi sérstaklega vel í stöðu sinni. Þá er það ekki rétt, að Landsbankinn hafi lánað allt féð til útgerðarinnar í Vestmannaeyjum. Það er ekki nema nokkur hluti þess. Sú millj., sem alþýða í Vestmannaeyjum á inni í útibúinu, er þó ekki aðfengin. Ég vil í því sambandi geta þess, að spariféð er eign 2037 innstæðueigenda.
Þá var hæstv. fjmrh. að tala um töp, sem orðið hafa í sparisjóðum, og að enginn hefði talað um, að það væri siðferðisleg skylda ríkisins að greiða þau töp, og nefndi t. d. sparisjóðinn á Eyrarbakka. En ég vil benda hæstv. ráðh. á, að hér er ólíku saman að jafna. Sparisjóður Eyrarbakka var „prívat“ stofnun, ríkinu sem slíku óviðkomandi. En Íslandsbanki hefir verið seðlabanki ríkisins, og er það að nokkru leyti enn. Forsrh. Íslands er formaður bankaráðs hans. Tveir bankastjórar hans eru stjórnskipaðir og nokkur hluti bankaráðsmannanna þingkjörinn. Þetta er því stofnun, sem er allt annars eðlis en sparisjóðirnir.
Ég verð að segja, að málflutningur hæstv. stj. og hennar manna sumra hverra er æðihlutdrægur og villandi. Því hefir verið haldið fram, að við minnihl.menn höfum viljað takast á hendur ábyrgð á öllum skuldbindingum bankans, og menn hafa dregið upp hrikamyndir af því, hve glannalega við höfum viljað fara í þessu máli. En þetta er alls ekki rétt, og sýnir frv. það, er nú liggur fyrir, það bezt. En það hefir nú svo oft í þessum umr. verið minnzt lokaða fundarins, er haldinn var aðfaranótt þess 3. þ. m., að ég tel rétt, að það komi fram, hvað þá voru greidd atkv. um. Það voru sem sé ekki greidd atkv. um þær till., er komu frá bankaráðinu, önnur um algerða ábyrgð á skuldbindingum bankans, hin um ábyrgð á sparisjóðsfé hans, heldur voru greidd atkv. um þá till., að málið væri lagt á vald stj. og hún látin ráða því, hvaða ráðstafanir hún gerði, aðeins að hún kæmi í veg fyrir lokun bankans.
Þær ráðstafanir áttu að gerast á þeim tíma. En þingmeirihlutinn vann að því að koma þeirri till. fyrir kattarnef. Sinnuleysi þingmeirihlutans og kæruleysi stj. síðan, það verður afdrifaríkt fyrir þjóðina í heild, og þó einkum fyrir þá, sem eiga atvinnu sína undir afkomu bankans.
Nú loks vill þó hæstv. fjmrh. láta fara að rannsaka bankann og meta hag hans að nýju og ráðgerir, að það ætti að verða búið fyrir 1. marz. Hvernig stendur á því, fyrst hæstv. stj. var á þessari skoðun, að hún hefir látið líða á aðra viku án þess að gera nokkuð? Ef hæstv. stj. hefði hagað sér hugsunarrétt eftir því, sem hún lét í ljós á næturfundinum við upphaf þessa máls, nefnilega að því mati, sem bankaeftirlitsmaðurinn og Pétur Magnússon hæstar.m.flm. höfðu gert, væri ekki hægt að treysta, þá hefði hún strax átt að láta fara fram annað mat. Á aðra viku verða þeir, sem eiga atvinnu sína undir bankanum, að berjast við stökustu vandræði og eiga allt í óvissu, meðan stj. lætur reka á reiðanum.
Minnzt hefir verið á sigurvænlegar aðferðir í þessu máli, og aðrar ekki sigurvænlegar. En ekki er von, að Alþingi rati á þær aðferðir þegar forustan er svo kæruleysisleg sem ég nú hefi lýst hjá stj.
Fyrst enn á að slá málinu á frest, er það óþolandi að hafa beðið 8 daga, síðan bankanum var lokað. Samt vona ég enn að hæstv. stj. meti meir líf framleiðslu og atvinnufyrirtækja og hag þeirra tíu þús. manna, sem eiga fé í bankanum, en sitt eigið pólitíska líf. Ég segi það enn, að á þessum 8 dögum síðan lýst var yfir því, að mati þeirra manna, sem framkvæmdu það þá, mætti ekki treysta, hefði verið hægt að framkvæma þetta mat, sem nú er farið fram á. Í því er ég sammála hv. 2. þm. Reykv., að drátturinn er hættulegur. Því miður hafa margir þegar beðið stórtjón vegna framkvæmdarleysis stjórnarinnar.