14.02.1930
Neðri deild: 24. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í C-deild Alþingistíðinda. (428)
80. mál, forkaupsréttur kaupstaða á hafnarmannvirkjum o. fl.
Jón Ólafsson:
* Eins og hv. flm. tók fram, komst frv. þetta gegnum Ed. í fyrra, en dagaði uppi í þessari deild. Áður en frv. þetta fer lengra, vil ég til leiðbeiningar þeirri n., sem við því tekur, láta í ljós álit mitt um það. — Það er þá fyrst að með frv. þessu eru lagðar kvaðir á eignir borgaranna yfirleitt, eftir því sem bæjarstjórnum og hreppsnefndum þóknast í hvert sinn. Ennfremur er vikið frá þeim grundvallaratriðum, sem gilt hefir í löggjöfinni hingað til, að almenningsheill væri lögð til grundvallar slíkum kvöðum á eignir prívatmanna. En þetta er nú orðin stefnuskrá sumra flokka, að hið opinbera eigi sem mest af eigum og láti reka atvinnufyrirtækin. Er því hætt við, þar sem slíkir flokkar eru ráðandi, að nokkuð mikið yrði að því gert að leggja þessar kvaðir á eignir manna án þess almenningsheill krefði.
Í frv. er gert ráð fyrir því, að samþykktirnar gildi til 5 ára í senn. Þetta ákvæði virðist mér leiða til þess, að menn fari að spekúlera í eignum sínum, fá fram há boð í þær og bjóða svo bæjarstj. eða hreppsnefnd þær til sölu. Þetta er algengt, að þegar um forkaupsrétt einhvers er að ræða, þá er reynt að fá sem hæst boð í eignina. Ef svo bæjarfélag eða almenningur þarf á eigninni að halda, getur þetta orðið til þess, að kaupa þurfi eignina miklu dýrar heldur en ef farið væri eftir núgildandi lögum. Ég veit t. d. ekki betur en að í hafnarlögunum sé jafnan heimild til þess að fá það land, er nauðsynlegt er til afnota, fyrir sanngjarnt verð.
Með þessum ákvæðum frv. verður og allur réttur borgaranna óvissari um eignir sínar. Notkun forkaupsréttarins yrði og undir því komin, hvaða flokkur væri í meiri hl. á hverjum tíma.
Ég álít ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um frv. þetta á þessu stigi málsins. Vona, að hv. n. athugi frv. vel og meti það, hvort þessar hliðar þess, er ég hefi bent á, séu ekki þannig vaxnar, að samþykkt frv. verði til tjóns og óhagræðis fyrir einstaklinga og bæjarfélögin.