01.03.1930
Neðri deild: 41. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í C-deild Alþingistíðinda. (437)
80. mál, forkaupsréttur kaupstaða á hafnarmannvirkjum o. fl.
Frsm. minni hl. (Magnús Guðmundsson):
Eins og hv. frsm. meiri hl. tók fram, þá hefir allshn. klofnað um þetta frv. eins og á fyrri þingum. Þetta mál hefir verið flutt hér þing eftir þing, eins og bent var á nú við 1. umr. þess. Og það er leiðinlegt að rifja upp rökin með og móti málinu frá fyrri þingum; vil ég því láta nægja að visa til þeirra.
Því hefir verið haldið fram af hv. frsm. meiri hl., að þessi forkaupsréttarákvæði væru lítilfjörleg kvöð á eignum manna, en það er ekki rétt. Forkaupsréttur þýðir það, að bæjarfélag, stofnun eða einhver aðili hefir rétt til að ganga inn í boð annars aðila eða einstaklings, sem kaupa vill ákveðna eign. Og af því að kaupandinn veit fyrirfram, að annar hefir rétt á að ganga inn í sitt kauptilboð, þá dregur það úr honum að hækka boð sín í eignina.
Ég sé ekki hvaða nauðsyn það er fyrir kaupstaði og kauptún að fá þessi forkaupsréttarákvæði lögfest, því að ég veit ekki til, að það hafi nokkurntíma staðið á Alþingi að veita þeim eignarnámsheimild, þegar hægt hefir verið að forsvara það með góðum og gildum rökum. — Ég lít svo á, að á bak við þetta frv. bóli á þeirri stefnu, að bæjar- og sveitarfélög geti fengið aðstöðu til að eignast allt það land, sem mest verðmæti er í fólgið. Ég skal að vísu ekkert hafa á móti þeirri stefnu í sjálfu sér, en ég vil þá bara, að hún komi hreint fram, en ekki í ullarumbúðum, eins og hún er í þessu frv.
Aðalröksemdirnar gegn þessu frv. eru þær, að þegar kaupstaðir og kauptún þurfa á því að halda að ná umráðum á fasteignum vegna almenningsheilla, þá hefir þeim alltaf verið veitt heimild til eignarnáms, þegar fullnægjandi skilyrði hafa legið fyrir til þess. Og meiri rétt þarf ekki að tryggja kaupstöðum og sveitarfélögum í þessum efnum.