01.03.1930
Neðri deild: 41. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í C-deild Alþingistíðinda. (445)

80. mál, forkaupsréttur kaupstaða á hafnarmannvirkjum o. fl.

Jón Ólafsson:

* Hv. 4. þm. Reykv. er nú loks búinn að viðurkenna það, að það er ekki umhyggjusemi fyrir fjöldanum, sem liggur til grundvallar fyrir framkomu þessa frv., heldur einungis lífsskoðun þeirra fáu manna, sem að frv. standa. Hinsvegar erum við á móti frv. vegna umhyggju fyrir fjöldanum. En klaufalega þykir mér það vera til tekið í frv., að kaupa skuli eignirnar fyrir það verð, sem sannanlega hefir verið boðið í þær. Slíku boði er oft ekki viðlítandi. Merkilegt þykir mér það, að hv. þm. virðist ekki vita, að ríkið hefir aldrei styrkt hafnarmannvirki einstakra manna. (SÁÓ: Þetta er misskilningur). Sem dæmi má nefna, að á síðasta þingi lá fyrir ein slík beiðni, en var hafnað, af því að viðkomandi landeigandi vildi ekkert land af hendi láta. Hv. þm. ætti því að fara heim og lesa betur, áður en hann gerir sig beran að slíkri fávizku hér í þingsalnum.