01.03.1930
Neðri deild: 41. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í C-deild Alþingistíðinda. (446)

80. mál, forkaupsréttur kaupstaða á hafnarmannvirkjum o. fl.

Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég stend aðeins upp til þess að leiðrétta misskilning hv. 3. þm. Reykv. Ég sagði aldrei, að ríkið styrkti hafnarmannvirki einstakra manna eða á löndum einstakra manna. Ég sagði, að ríkið styrkti hafnarmannvirki, sem síðan orsökuðu verðhækkun á löndum og lóðum einstakra manna, og að þessi aukning verðmætanna væri betur komin í höndum hins opinbera en hjá einstökum mönnum, sem ekkert hefðu af mörkum lagt til mannvirkjanna. Það var því hrein og bein rangfærsla og útúrsnúningur, sem hv. þm. fór með.

Ég skal ekki deila við hv. þm. Borgf. um lífsskoðanir okkar; ég býst við, að þær séu næsta ólíkar. En jafnvel þótt atkvgr. fari mest eftir því, hverjar lífsskoðanir menn hafa, þá ber þó að gæta þess jafnframt, að þetta mál er fjárhagsmál, hagsmunamál fjölda bæjarfélaga og hreppa á landinu, og mér er jafnvel ekki grunlaust um, að í flokki hv. þm. Borgf. séu til menn, sem skilja það, að slíkar eignir séu betur komnar undir umráðum hins opinbera en í höndum einstakra fjárbrallsmanna. Lífsskoðun okkar jafnaðarmanna er á þessu sviði sem öðrum svo skynsamlega uppbyggð, að hv. þm. ætti að geta aðhyllzt hana, sérstaklega að athugaðri fjárhagshlið þessa máls.