03.03.1930
Neðri deild: 42. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í C-deild Alþingistíðinda. (509)
197. mál, sóknargjöld
Magnús Jónsson:
* Það kemur ekki við kaunin á mér, þó að mér sé ámælt sem kennara. Er þess skemmst að minnast, þegar einn af helztu flokksbræðrum hv. flm. réðst á mig fyrir það, að ég hafði haldið illindalausan fyrirlestur um það, hvort verkamenn ættu að vera sócíalistar. Þetta var svo mikill blettur á mér í augum þessa flokksbróður hv. flm., að hann setti fram þá kröfu í grein, sem hann reit um þetta í Alþýðublaðið, að mér yrði vikið frá kennarastarfi mínu við háskólann. Það undrar mig því mjög, að hv. flm. skuli vera svo hissa yfir því, hvernig ég tek í þetta mál, þó að mér hinsvegar þyki vænt um að heyra, að ég er í góðu áliti hjá honum. Ætla ég því að vona, að hv. flm. setji aths. við næstu illmælagrein, sem Alþýðublaðið birtir um mig, þar sem svo vel vill nú til, að hann er ritstjóri þess.