11.02.1930
Neðri deild: 21. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í C-deild Alþingistíðinda. (538)

58. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur

Pétur Ottesen:

* Af því ég get búizt við því að þurfa máske að tala síðar í þessu máli, þá vona ég, að hæstv. forseti reikni mér þetta sem stutta aths.

Hv. 1. flm. vildi telja sér til tekna það, sem ég sagði um meðferð frv. á þingi 1923. En ég vil benda honum á, að þá var nokkuð öðru máli að gegna. Þá voru slíkar umleitanir Reykvíkinga fluttar í fyrsta sinn inn á þingið. Var því þá ekki ástæða til að taka mjög hart á yfirgangi þeirra. En nú er þetta flutt í 3. sinn, án þess að sjálfsögðum skilyrðum sé fullnægt, og þess vegna er einmitt ekki rétt að leyfa það.

Refsiákvæði löggjafarinnar hniga öll að því, að þyngri hegning er lögð við síðari brotum. Hér á við að fara sömu leið. Og þótt séð væri gegnum fingur í fyrsta sinni, þá var það ekki gert í annað sinn. Og því síður á að gera það, þegar brotið er ítrekað í þriðja sinn. Á því að fella þetta frv. við 1. umr.