10.04.1930
Neðri deild: 76. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í C-deild Alþingistíðinda. (547)
58. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur
Frsm. minni hl. (Héðinn Valdimarsson):
N. hefir ekki orðið sammála um þetta frv. Meiri hl. mun vilja fella það, en minni hl. vill láta það ganga fram óbreytt.
Það var reynt af n. hálfu að fá sameiginlegan fund með borgarstjóra Reykjavíkur og hreppsnefndarmönnum úr Seltjarnarneshreppi. Hreppsnefndarmennirnir komu á fund, en af einhverjum mistökum á bréfaútburði kom borgarstjóri Reykjavíkur ekki. En það kom í sama stað niður, því að hreppsnefndarmennirnir gáfu þá yfirlýsingu fyrir sitt leyti, að þeir mundu alls ekki vilja semja um þetta mál. Það lá því ljóst fyrir, að annarsvegar var ósk Reykjavíkurbúa í þessu efni, en hinsvegar andúð hreppsnefndar Seltjarnarneshrepps, hvernig sem kjósendur hreppsins annars líta á það. Því er ekki hægt að búast við, að samningar náist, nema löggjafarvaldið setji einhver ákvæði um þetta, eins og frv. fer fram á.
Með þessu frv. er ætlazt til, að jarðirnar Þormóðsstaðir og Skildinganes verði settar undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur frá 1. janúar 1931, og Reykjavíkurbær tekur að sér framfærslu allra þeirra þurfalinga, sem framfærslusveit eiga eða mundu eignast í löndum þeim, sem um ræðir í 1. gr., þ. e. a. s. á Þormóðsstöðum og Skildinganesi.
En vegna þess að búizt var við, að illa gengi að fá samkomulag, er svo ákveðið í þessu lagafrv., að endanleg fjárskipti skuli fram fara fyrir árslok 1930, og ef aðiljar verða ekki sammála, þá á að gera um það þriggja manna gerð, þar sem hvor aðili skipar einn mann, og hæstiréttur oddamann, og skulu báðir aðiljar hlíta þeirri gerð.
Ef Alþingi á annað borð viðurkennir þessa kröfu Reykvíkinga, er þetta eina mögulega leiðin úr því sem komið er, að láta óhlutdræga menn meta, hvaða skaðabætur séu sanngjarnar.
Því hefir verið lýst við 1. umr., hversu mikil nauðsyn það er fyrir Reykvíkinga að fá undir lögsagnarumdæmi sitt þau lönd og lóðir, sem hér ræðir um. Þessar jarðir ganga eins og fleygur inn í bæjarlöndin, og byggingar bæjarins er ekki hægt að skipuleggja á þann hátt, er æskilegt væri. Þar að auki er með öðrum lögum búið að setja Skildinganes að sumu leyti undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, t. d. um tollgæzlu og lögreglustjórn, og loks er það ýmislegt annað, sem gæti verið nauðsynlegt fyrir þennan stað að vera í nánara sambandi um við Reykjavík. Fyrir skömmu brann t. d. niður hús í Skildinganeslandi, sem hefði sjálfsagt verið hægt að bjarga, ef það hefði haft vatn eins og aðrir staðir hér í Reykjavík og notið verndar brunaliðs Reykjavíkur. En það er ekki hægt að búast við því, að Reykjavík leggi á sig mikil gjöld til að aðstoða þessar jarðir, meðan reynt er allt sem hægt er til þess að halda þeim fyrir utan lögsagnarumdæmi bæjarins.
Ég skal játa, að fyrir suma menn, sem þarna búa, geta verið hlunnindi að því að búa þar. En hinsvegar eru ókostirnir svo miklir fyrir Reykvíkinga, að það verður heldur að meta þá hagsmunina, sem meiri eru heldur en hina minni.
Áður hefir verið bent á, hve óheppilegt það er fyrir niðurjöfnun útsvara að hafa þennan fleyg, þar sem menn geta setzt að og búið við allt annað skipulag en það, sem hér er, og þarf ég ekki að fjölyrða meira um það.
Ég býst ekki við, að þetta frv. gangi mótstöðulaust gegnum þingið. En ég vænti þess samt, að það nái samþykki á þessu þingi. Því að það er áreiðanlega aðeins stundarbið, þangað til þetta hlýtur fram að ganga, og þá er betra að gera það sem fyrst, heldur en að bíða og tefja með því margvíslegar framkvæmdir bæjarins.