10.04.1930
Neðri deild: 76. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í C-deild Alþingistíðinda. (550)
58. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur
Frsm. minni hl. (Héðinn Valdimarsson):
Hv. 1. þm. Skagf. mælti á móti þessu frv. og bar það sérstaklega fyrir, að það væri í lögum, að samþykki hlutaðeigandi sveitarfélags yrði að koma til. Við höfum líka hugsað okkur, að þessu yrði ekki breytt nema með lögum, og lögum verður aldrei breytt nema með lögum. Og ef ekki væri hægt að breyta lögum, þá væri erfitt um löggjöf landsins. En ef 2 sveitarfélög greinir á, verður að meta þörf þeirra fyrir það, sem þau vilja fá. Þetta hefir hv. 1. þm. Skagf. ekki gert. Hann hefir litið á óskir Seltjarnarneshrepps, en ekki Reykjavíkur. Hv. 1. þm. Skagf. er þó Reykvíkingur. (MG: Mér er gersamlega sama sem Reykvíkingi). Já, það er af öðrum ástæðum. Það er ekki Reykvíkingurinn í hv. l. þm. Skagf., sem heldur þessu fram. Það er sem flokksmaður hv. 2. þm. G.-K., sem hann gerir það.
Þá minntist hv. þm. á Friðriksberg og Kaupmannahöfn, og er sá samanburður ekki til þess að styrkja málstað hans. Það er miklu óheppilegra fyrir hlutaðeigendur, að þar séu 2 bæir heldur en einn. Annar er nærri því vaxinn utan um hinn. Ef Reykjavík héldi áfram að vaxa utan um Skildinganes, mundu þar áfram vera 2 bæir. Friðriksberg er þó stærri á móti Kaupmannahöfn en Skildinganes móti Reykjavík. En Friðriksberg er á móti Kaupmannahöfn aðeins skálkaskjól fyrir þá, sem vilja komast af með að greiða lægri skatt. Efnamennirnir í Friðriksberg lögðu kvaðir á lóðirnar, sem útilokaði það, að verkamenn eða fátækt fólk yfirleitt gæti keypt þær, svo að eingöngu efnafólkið getur búið í stórum hlutum bæjarins. Sama virðist ætla að verða í Skildinganesi. Reykjavík verður að halda uppi þeim efnaminni. Þeir verða að greiða öll gjöld til Reykjavíkurbæjar. Hinir komast af með lág útsvör. Aftur hækkar lóðaverðið þar suður frá, til hagnaðar fyrir lóðaspekúlantana.
Hér er ekki verið að berjast fyrir rétti lítilmagnans. Það er ekki lítilmagni nema að fólksfjölda. Hreppsnefndin í Seltjarnarneshreppi er líka skammsýn í þessu efni, því þegar Skildinganes hefir fengið 300 íbúa, getur það orðið sérstakur hreppur, og það er víst, að fólkið, sem þangað flytur, óskar þess. Skildinganeshreppur getur þá hagað útsvörum sínum eins og hann vill.
Þegar þetta mál kom hér á þingið í fyrra, var talað um að innlima sveit í Reykjavík. Það getur ekki verið um það að ræða nú. Hér er aðeins um lítinn bæjarhluta að ræða, sem á að leggja undir Reykjavík.
Þá sagði hv. 1. þm. Skagf., að hreppsnefndin í Seltjarnarneshreppi hefði upplýst, að útsvörin væru fullt svo há þar suður frá sem í Reykjavík, en ekki þarf annað en athuga útsvörin til að sjá, að þetta er rangt, og nægur samanburður fæst við að meta útsvör manna, sem flutt hafa til Skildinganess, fyrir og eftir flutninginn. Ég tel ekkert annað líklegra en að innan skamms tíma verði Skildinganes sjálfstæður hreppur og þá er heldur ekki hægt að leggja á þá eftir vild hreppsnefndar á Seltjarnarnesi, svo að þau lækkuðu þá enn meir. Þó að útsvar Shellfélagsins sé allhátt, þá eru útsvör annara stórefnamanna, sem vinna hér í Reykjavík, lág.
Hv. þm. spurði, hvort slökkviliðið hefði neitað að fara suður eftir, þegar brann þar síðast. Slökkviliðið getur ekki slökkt nema eitthvað sé til að slökkva með. En það var ekkert vatn til þar. Ef slökkviliðið hefði getað slökkt, hefði það sennilega gert það. Hv. þm. veit, að Skildinganes fær ekkert vatn meðan mál þetta hefst ekki fram. Reykjavík er örðugt um vatn, svo að það er ekki að búast við, að mikið vatn sé þar suður frá. En ef þetta svæði kæmi undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, þá mundi krafan um aukið vatn í Skildinganesi frá Reykjavík verða réttmæt.
Hv. þm. vildi enn halda við það, að leita samninga milli hreppsnefndarinnar í Seltjarnarneshreppi og borgarstjórans í Reykjavík. Ég veit ekki, hvað hv. þm. vill fá frekari sannanir en fara þá leið að líta í gerðabók allshn., þar sem það er með skýrum stöfum bókað af honum sjálfum, að hreppsnefndin neiti að taka samningum um þetta mál. Þeir mundu fara samningsleiðina ef þetta frv. yrði samþ., en annars vilja þeir ekkert skipta sér af málinu. Þetta veit hv. þm.
Ég var nærri því búinn að gleyma því, að hv. 2. þm. Árn. er ekki með málinu. Ég man ekki betur en að hann væri með því í fyrra, en hvað veldur þeim skoðanaskiptum, er mér ókunnugt um.
Hv. þm. sagðist ekki sjá neina brýna þörf, og því síður nauðsyn þessa máls. Heldur ekki vilja íbúanna. Ég hefi áður skýrt það, að ekki er að búast við, að íbúarnir óski eftir því að verða innlimaðir Reykjavík, meðan þeir geta hagnýtt sér bæinn svo sem nú er. Um óskir Reykvíkinga þarf ekkert að segja. Þær eru svo kunnar frá þingmálafundum og einróma ályktunum bæjarstjórnar hvað eftir annað. En ef ekki á að taka tillit til óska 28 þús. Reykvíkinga, veit ég ekki, hvaða mælikvarða á að leggja á þetta mál.