10.04.1930
Neðri deild: 76. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í C-deild Alþingistíðinda. (552)
58. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Ég vildi með fáeinum orðum taka í sama streng og hv. 3. þm. Reykv. Tel ég þetta sanngjarna kröfu af hendi Reykvíkinga, eins og hún er nú flutt. Hv. flm. eru búnir að bera fram flest rök fyrir þessu máli, og hefi ég því litlu við að bæta. Í fyrra var þetta mál þannig borið fram, að taka átti einnig Seltjarnarnes, sem er í rauninni þéttbyggð sveit, sem kemur Reykjavík lítið við, og leggja það allt undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Nú er aðeins að ræða um Skildinganes, sem er að verða nokkurskonar undirborg Reykjavíkur, eða eitt hverfi hennar, eins og t. d. Grettisgötuhverfi eða Lindargötuhverfi. Þaðan er atvinna stundað í Reykjavík og hagsmunir þeirra, er þar búa, eru svo nátengdir hagsmunum Reykvíkinga, að þar verður vart á milli greint. Nú hafa hv. flm. frv. stillt í hóf kröfunum og ekki farið fram á meira en það, sem ekki er hægt með neinni sanngirni að neita um.
Ég lít svo á, að Skildinganesi geti jafnvel stafað háski af því að vera ekki innan takmarka Reykjavíkur. Það gerir e. t. v. ráð fyrir að njóta verndar Reykjavíkur á ýmsan hátt, en á svo ekki víst að fá hana, þegar á liggur. Nægir að benda á brunann, sem þar varð fyrir skömmu. Borgarstjóri lét ekki brunaliðið fara; hefir sennilega viljað sýna Skildinganesbúum, að þeir fengju ekki öll hlunnindi hjá Reykjavíkurbæ án þess að taka þátt í erfiðleikum hans.
Annað dæmi skal ég nefna, sem ég hefi ekki tekið eftir að veitt hafi verið athygli. Í Skildinganesi eru auðvitað mörg börn á skólaskyldualdri, og þeim er ætlað eftir skólalögunum að ganga vestur að Melshúsum í skóla. Það er hægt að láta þau sækja skóla þangað, en það er mjög óeðlilegt og erfitt. Af þessu fyrirkomulagi leiðir svo vanræksla á barnakennslunni. (MG: Skildinganesbúar ætla að reisa skólahús í ár). Þeir ætla það, já, en það er nú ekki komið í framkvæmd.
Einnig má benda á, að húsabyggingar á Skildinganesi eru engum reglum háðar og mjög skipulagslausar, af því það er utan skipulagsuppdráttar Reykjavíkur. Í þessu tilliti er þorpinu mikill skaði að hverju árinu, sem líður, áður en það kemst inn undir skipulag Reykjavíkur.
Þó er sú ástæða þyngst á metunum, að nærri hver maður í Skildinganesi stundar atvinnu í Reykjavík, en teljast þó utan skattsvæðis hennar. Er jafnvel grunur um, að sumir hafi flutt þarna suður eftir í þeim tilgangi að létta á sér skattabyrðina, en geta þó notið hlunninda Reykjavíkur. Slíkan skattflótta á Alþ. alls ekki að vernda, heldur þvert á móti.
Mér finnst eins rétt af Alþ. að samþykkja þetta mál nú þegar, því það verður hvort sem er ekki nema fárra ára frestur á því, að svo sanngjarnt mál nái fram að ganga.