17.02.1930
Neðri deild: 29. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 267 í C-deild Alþingistíðinda. (573)
114. mál, Brunabótafélag Íslands
Jón Auðunn Jónsson:
Ég vildi benda á ýms ákvæði þessa frv., sem eru breytingar frá þeim lögum, sem nú gilda, t. d. það, að með þessu frv. er víkkuð mjög skylduábyrgð manna, þannig, að hún á nú að ná yfir öll sveita- og sjávarþorp, sem ekki hafa 300 íbúa; en það er vitað, að fjöldi manna lítur svo á, að þessi skylduábyrgð sé viðsjárverð og hafi ekki verið til hagsbóta.
Á þing- og héraðsmálafundi í Norður-Ísafjarðarsýslu voru það fulltrúar úr einum þremur kauptúnum, sem bentu á, að skylduábyrgðin hefði ýmsa galla.
Einn þeirra galla er afnuminn með þessu frv., og er það sá, að menn skuli hafa 1/6 hluta í sjálfsábyrgð; enda virðist mér það alger óþarfi, þar sem myndaður er allverulegur sjóður, rúm 1 milljón króna, fyrir þessar trygginar, að vátryggður hafi nokkra sjálfsábyrgð.
Ég sé, að haldið er því ákvæði, sem mjög hefir verið óvinsælt, sem sé að draga megi frá 15–20% af brunbótafénu, ef maður vill ekki eða getur ekki einhverra ástæðna vegna byggt hús sitt upp aftur. Slíkt ákvæði hefir auðvitað miðað til þess, að húseignir manna hafa í rann og veru verið þessu minna virði en þau hús, sem tryggð eru án nokkurra slíkra takmarkana. Ég veit, að það kom fyrir á Ísafirði 1916 eða 1917, að maður nokkur var að flytja búferlum úr bænum, en þá brann hús hans. Hann gat ekki fengið að byggja það á sama grunni, vegna samþykktar byggingarnefndar, nema með breytingum, sem hann gat ekki unað við. Hann var búinn að gera sölusamning um húsið, en kaupin áttu ekki að fara fram, fyrr en hann flytti burt um vorið, svo að hann gekk inn á að fella niður 17% af vátryggingarverðinu, sem þó var langt undir söluverði.
Ég held, að undir öllum kringumstæðum eigi að fella þetta ákvæði burt. Svo hefir verið ákveðið í lögum um brunabótasjóði sveitarfélaga, að enda þótt skylduábyrgð væri, var samt heimilt að vátryggja annarsstaðar, ef menn vildu, en þurftu þá að sýna skilríki fyrir því, að þeir hefðu vátryggt í ábyggilegu félagi. Þetta er fellt niður með því frv., sem hér liggur fyrir.
Í 25. gr. 1. nr. 54, 1915, um Brunabótafélag Íslands, er það tekið fram, að þegar ársiðgjöldin nema 75 þús. kr., skuli breyta lögunum og skipa fulltrúaráð, sem gæti hagsmuna sveitar- og bæjarfélaga. Ég hygg, að iðgjöldin séu komin fullkomlega þetta hátt. Með þeirri lagasetningu er gert ráð fyrir, að sveitarfélög og bæjarfélög, sem ábyrgjast nokkurn hluta af brunahættunni, fái íhlutunarrétt um starfsemi félagsins. Ég hygg, að réttara sé að nota þetta ákvæði og vísa frv. til stj., svo að hún leiti umsagnar bæjar- og sveitarfélaga um þær breyt., sem farið er fram á. Og það er ég sannfærður um, að með því næst miklu betri samvinna við héraðsstjórnirnar.
Eitt hefir valdið afskaplegri óánægju, sérstaklega í kaupstöðum, og það er, hvernig brunahættan er ákveðin í Brunabótafélagi Íslands. Umboðsmenn mega ekkert leggja til um, hvernig eigi að ákveða iðgjald fyrir hvert einstakt hús. A. m. k. hefir ekki fengizt neinu framgengt um þetta, þótt vitað sé, að erlend ábyrgðarfélög, sem hér hafa starfað, hafi ákveðið þetta allt öðruvísi. Ég nefni eitt dæmi, sem mér er persónulega kunnugt. Hús mitt, sem er járnvarið, stendur nálægt íbúðarhúsi, sem er byggt úr timbri en ójárnvarið, en vindstöðunni er þannig háttað, að þau geta ekki brunnið hvort frá öðru. Þetta sá maður, sem kom frá Tarifforeningen, þ. e. erlendu vátryggingarfél. 1912, smitunarákvæðin voru ekki notuð í þessu tilfelli og mjög mörgum öðrum, þar sem eins stóð á. Nú verð ég að greiða 80/00 í iðgjald í staðinn fyrir 50/00 áður. Ég þekki a. m. k. yfir 20 dæmi þessa, og það veldur almennri óánægju. Það er nauðsynlegt, að kunnugir menn séu settir til þess að meta brunahættuna á hverju vátryggingarsvæði.
Það er sagt í grg., að erl. félög hafi tekið 10–15% hærri iðgjöld en Brunabótafél. Íslands. Það er að vísu svo eftir verðtöxtunum, að iðgjöld sýnast 10–20% hærri hjá Tarifforeningen, en umboðsmenn félaganna gera þráfaldlega breytingar á þessu. Þeir segja til um, í hvaða áhættuflokki húsin skuli teljast, taka tillit til afstöðu þeirra til annara húsa, og það er farið eftir till. þeirra í flestu.
Það er nú ekki alveg svo, að þetta fé renni allt inn í landið, sem greitt er til Brunabótafélags Íslands. Því að út úr landinu rennur meginhlutinn af iðgjöldum — við endurtrygginguna — eins og líka sjálfsagt er, meðan við höfum ekki lengri reynslu en við höfum. Það er ekki heldur rétt, að megnið af því fé, sem greitt er í tryggingar til erlendra félaga hér, renni út úr landinu. Ég veit t. d., að eitt brunabótafélag, sem hér starfar, hefir lagt iðgjöldin inn í banka hér, svo að það litla, sem hefir græðzt, hefir aldrei verið flutt úr landi.
Ég ætla alls ekki að greiða atkv. á móti því, að frv. gangi til n. og verði athugað þar. En hinsvegar bendi ég aðallega á það, að þar sem sveitar- og bæjarfélög bera nokkurn hluta áhættunnar, þá er rétt, að þau fái tillögurétt þegar lögunum er breytt.