17.02.1930
Neðri deild: 29. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í C-deild Alþingistíðinda. (577)

114. mál, Brunabótafélag Íslands

Flm. (Halldór Stefánsson):

Mér virðist álit hv. þm. N.-Ísf. fara alveg í gagnstæða átt við þá skoðun, sem lögð hefir verið til grundvallar við samningu þessa frv. Það liggur í augum uppi, að smáar heildir geta ekki borið neina verulega áhættu. Og reynslan hefir sýnt þetta. Bæjarfélögin hafa átt að bera 1/6 áhættunnar, en þegar nokkra verulega bruna hefir borið að höndum, hafa tryggingarsjóðir þeirra ekki hrokkið. Skýrast dæmi þess varð á Stokkseyri, þegar brann þar, og eins hefir farið víðar, t. d. á Siglufirði, þó ekki næmi það líkt því eins miklu. Alveg eins er þetta hjá brunabótasjóðum sveitanna; t. d. brann einn lítill bær hjá einn í sumar, og iðgjaldasjóðurinn nægði ekki fyrir bótum. Það er því alveg röng stefna, sem kemur fram hjá hv. þm. N.-Ísf.

Meginstyrkur allra tryggingarfélaga er fólginn í því, að það sé sem stærst sameiginleg heild, sem standi saman fyrir áföllunum. Bruninn á Stokkseyri var t. d. of stór fyrir eina litla félagsheild, en ekki stærri en það, að tryggingarsjóðir allra kaupstaðanna til samans gátu hæglega risið undir bótunum.

Ég ætla svo, með leyfi hæstv. forseta, að lesa upp grein úr álitsskjali því, sem ég minntist á áðan. Hún hljóðar svo:

„Hvað snertir afnám sérábyrgðar kauptúna og sveita, er það fljótsagt, að sú breyting er alveg sjálfsögð frá tryggingarteknisku sjónarmiði séð“.

Aths. hv. þm. út af flutningi þessa máls þarf ég litlu að svara. Ég hefi náttúrlega ekkert á móti því, að breytingar á stjórn félagsins samkv. ákvæðum 25. gr. séu bornar undir sveitarstjórnir. En það þarf ekki að hindra framgang frv. í heild sinni. Og þar sem þeir hv. þm., sem aths. hafa gert við þetta mál, vilja lofa því að ganga áfram til n. og 2. umr., sé ég ekki ástæðu til að ræða meira um það nú.