18.03.1930
Neðri deild: 56. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í C-deild Alþingistíðinda. (583)

114. mál, Brunabótafélag Íslands

Frsm. meiri hl. (Sigurður Eggerz):

Það er nú orðið alllangt síðan mál þetta var hér fyrst til 2. umr. Í tilefni af því vildi ég skjóta því til hæstv. forseta, hvort ekki er hægt að koma því svo fyrir, þegar umr. er frestað, að hún haldi áfram næsta dag, en þurfi ekki að dragast svo lengi, að gleymt sé orðið, hvað farið hafi fram í málinu, þegar það loks kemur til umr. Þetta vona ég, að verði athugað framvegis.

Hv. frsm. minni hl. sagði, að í 25. gr. laganna væri gert ráð fyrir, að breytingar á stjórnarfyrirkomulagi félagsins væru lagðar fyrir sveitarstjórnirnar. Þetta var einmitt það, sem ég sagði í minni framsöguræðu. Ég tók einmitt fram, að þetta stæði í lögunum. En fyrst svo er, þá þótti mér eðlilegt og lagði áherzlu á það, að frv. í heild sinni væri um leið lagt fram til athugunar fyrir sveitarstjórnirnar, áður en það verður gert að lögum. Ég vil taka það fram, að það er ekki einungis heimild, heldur bein skipun frá löggjafanum, að breyta eigi stjórn félagsins. Hér er því um beina vanrækslu að ræða, sem bæta verður. Og fyrir meiri hl. n. vakti það, að grípa ætti um leið tækifærið til að láta mann með sérþekkingu athuga frv. og gera till. um það. Ég vil benda á, að ég minntist á það í framsöguræðu minni, að í sjálfu sér væru lausafjártryggingar ekki vel samrýmanlegar við gagnkvæmnina, meginregluna, sem tryggingarfrv. er byggt á. Til þess að félagið gæti tekið lausafjártryggingar að sér, þyrfti það að hafa stórsjóð að baki sér. Í frv. er að vísu gert ráð fyrir sjóð, en hann er svo lítill, 10 þús. krónur, að hann veitir ekki rétt til að færa starfssvið félagsins inn á lausafjártryggingar. Í umr. um málið nú kom eitt atriði fram, sem mér var ókunnugt um. En það var, að stj. mundi hafa fengið í hendur till. frá þeim sérfræðingi á þessu sviði, sem mest traust hefir, Brynjólfi Stefánssyni. Ég heyri sagt, að hann hafi sent stj. frv. En sé það rétt, þá furðar mig á því, að það hefir ekki verið sent til n. Er það gleymska, eða er verið að fela þetta frv. fyrir fjhn.? Eða er það gert af því, að það sé svo mikið betra, að hætta sé á því, að þetta frv. falli, ef hitt kemur fram? Ég býst nú við, að þetta sé gleymska. Þarna sé ég, að hæstv. atvmrh. kemur. Ég var að segja, að ég hefði heyrt, að Brynjólfur Stefánsson hefði sent stj. frv., en fjhn. hefði ekki séð það enn. Mér finnst, að ekki ætti að ráða málinu til lykta nú,. heldur ætti að taka það út af dagskrá, fyrst og fremst í dag, og bíða þess, að hæstv. stj. sendi fjhn. frv. Brynjólfs Stefánssonar til athugunar og samanburðar í þessu máli. N. ætti þó að reyna að vinna sem fljótast, svo að þetta atriði þurfi ekki að tefja málið nema sem minnst. Ég minntist á nál. hv. minni hl. í fyrstu ræðu minni. Mér finnst, að þær ástæður, sem þar eru færðar fyrir því, að ekki megi fresta málinu um eitt ár, séu ekki svo veigamiklar, að mikið þurfi að gera úr þeim. Fyrsta aths. er, að það sé aðkallandi þörf á breyt. á reglugerð og flokkunarreglum bæði Brunabótafélagsins og sveitarsjóðanna, og er þar minnt á umr. um þál., sem samþ. var á Alþ. 1928. Hv. þm. Mýr. hafði rétt fyrir sér í ræðu sinni þá, þegar hann talaði um að iðgjaldastiginn væri ranglátur. En ég sé ekki betur en hægt sé að ráða bót á þessu með reglugerð. Hitt meginatriðið var, að það sé ekki hægt að semja um endurtryggingu fyrir Brunabótafélagið á betri veg en nú er, nema þessi lög verði samþ. Ég trúi ekki, að þetta sé rétt, nema betri ástæður séu færðar fyrir því. Þriðja atriðið var, að þessar breyt., sem í frv. felast, miði að því að halda sem mestu af fé því, sem safnast saman fyrir brunatryggingar, í landinu. Þetta er að vísu rétt. En árangurinn fer þó mjög eftir því, hvað mikið er endurtryggt. Því að ef mikið er gert að því, þá fer mikið fé út úr landinu eftir sem áður.

Ég vil leggja áherzlu á, að meiri hl., sem stendur að þeirri dagskrá að vísa þessu máli til stj., telur, að margar þessar breyt. séu góðar og þarflegar. En það er auðsætt, að þegar þessi starfsemi færist yfir stærra svið, þá verður því meiri nauðsyn á tryggara fyrirkomulagi um stjórn hennar. Það er líka skýlaust brot á lögunum, ef ekki er breytt um þetta, þegar gera á starfsemina svo miklu umfangsmeiri. Því held ég, að það eina rétta sé að samþykkja dagskrána, leggja málið fyrir sveitarstjórnirnar og nota tímann til að afla sér sem beztra upplýsinga. Því að það er betra að fá vandlega gerð lög um þetta efni eftir eitt ár heldur en að samþykkja nú lög, sem menn þá sæju, að ýmislegt væri að athuga við.

Hv. frsm. minni hl., sem annars er, held ég verði að segja, ekki áleitinn í ræðum sínum, endaði ræðu sína seinast með þeim óskiljanlegu ummælum, að tillagan um stöðvun þessa frv. mundi fram komin vegna sérstakra manna hér á landi. Ég veit ekki, hvað hann á við. Ég þykist hafa fært rök fyrir, hvers vegna farið er fram á að samþykkja dagskrána. Ég veit ekki til, að neitt standi bak við álit meiri hl. fjhn. annað en það, að rétt sé að athuga málið betur eitt ár.

Ég veit, að hv. frsm. minni hl. getur ekki skoðað það sem móðgun við sig, þó að talað sé um, að sérfræðingur eigi að rannsaka málið. Ég ekki gera lítið úr þekkingu hans á þeim efnum, því að ég veit, að hann er íhugull maður, hvar sem hann starfar. En það er sjálfsagt að leita til sérfróðra manna, úr því að þeir eru til. Ég vil svo enda þessi fáu orð mín með því að mælast til þess við hæstv. stj., að frv. Brynjólfs Stefánssonar verði sent fjhn. til athugunar og málið tekið út af dagskrá í bráð, svo að menn fái tækifæri til að athuga það betur.