18.03.1930
Neðri deild: 56. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í C-deild Alþingistíðinda. (585)

114. mál, Brunabótafélag Íslands

Bjarni Ásgeirsson:

Eins og tekið hefir verið fram í umr. hvað eftir annað, bar ég fram á þinginu 1928 þáltill. um, að mál þetta væri rannsakað af stj. og lagt fyrir Alþingi 1929. Það gat ekki orðið þá og hefir dregizt til þessa þings. Nú eftir að málið er komið á þennan rekspöl, undrar mig, að enn á þessu þingi skuli koma tillögur um að draga málið á langinn og e. t. v. svæfa það til fulls. Ég skil ekki nauðsyn þess.

Það var rétt hjá hv. þm. Dal., að á þinginu 1928 fann ég lögunum það til foráttu, að iðgjaldastiginn væri vitlaus. Þetta má laga með reglugerð, segir hann. En þetta var alls ekki það eina, sem þá var fært fram til stuðnings því, að þörf væri á endurskoðun laganna. Þar eru ákvæði, sem brýn nauðsyn er að breyta, ef koma á í veg fyrir upplausn þessarar tryggingarstarfsemi. Tvö atriði hafa reynzt skaðlegust. Fyrst er það, hvað tryggingargrundvöllurinn er takmarkaður. Þegar tíðir eldsvoðar ganga, hljóta iðgjöld að hækka tilfinnanlega. Og þá flýja flestir sveitamenn og leita til annara tryggingarstofnana, engu síður þeir, sem brunnið hefir hjá og reist hafa að nýju fyrir útborgað tryggingarfé. Þeir skilja þá eftir í félaginu örfáa menn, sem sligast undir byrðunum. Ég þekki dæmi þess, að sveitarfélög hafi átt bágt með að rísa undir þessu, og það getur víða komið fyrir. Þetta er gagnstætt því, sem lögin vilja, að dreifa ábyrgðinni yfir sem allra stærstan flöt, ef svo mætti segja, svo að hver einstaklingur fái sem minnstan skellinn í hvert skipti.

Eins og kunnugt er, þá eru ekki vátryggðir nema 5/6 hlutar af verði húseigna. En þörfin á að tryggja allt er stöðugt að verða brýnni og brýnni, m. a. af því, að bændur þurfa að nota tryggingar sínar sem veð. Lögin um Byggingar- og landnámssjóð gera ráð fyrir, að hús, sem byggð eru fyrir peninga úr honum, séu vátryggð til fulls, og þá er ómögulegt að vátryggja þau í þessum félögum. Það er því alveg satt, að þeim liggur við upplausn, ef þessar breyt., sem fram eru bornar, ná ekki fram að ganga, slík ókjör, sem orðin eru að vátryggja í þessum tryggingardeildum sveitanna. Ég sé ekki, að nein rök hafi verið færð fyrir því, að þessu máli megi fresta meir en orðið er.

Um lausfjártryggingar þessa frv. verð ég að segja, að ég hefi ekki gert mér svo grein fyrir því máli, að ég hafi nokkuð á móti því að athuga það betur. Það er sjálfsagt að taka frv. Brynjólfs Stefánssonar til athugunar fyrir 3. umr. og taka tillit til þess, eftir því, sem fjhn. finnst ástæða til, þegar þar að kemur.

Viðvíkjandi því, hvað sveitarstjórnir hafi hér mikilla hagsmuna og réttinda að gæta, má minnast þess, að það á við svo mörg mál, t. d. refamálið, sem verið var að afgreiða hérna áðan. Það virðist ekki sérstök, knýjandi ástæða til að bera þetta mál fremur undir sveitarstjórnir. (PO: En lögin gera ráð fyrir því). Lögin gera aðeins ráð fyrir, að tillögum um breytingu á stjórn Brunabótafélagsins sé skotið til sveitarstjórna, en þar með er ekki sagt, að öllum breytingaratriðum skuli skotið undir þeirra dóm. Ég skal geta þess, að till. mín 1928 var borin fram fyrir tilmæli sveitarstjórna. Og ég veit, að margar sveitarstjórnir óska fyrst og fremst eftir því, að málið verði afgreitt sem fyrst á þeim grundvelli, sem minni hluti n. vill.