17.01.1930
Sameinað þing: 1. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (606)
Kosning forseta
Kosning forseta.
Loks lét aldursforseti fram fara kosningu forseta sameinaðs þings. Kosninguna varð að tvítaka. Við fyrri atkvgr. för svo, að Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.-Ísf., fékk 19 atkv., Jón Þorláksson, 3. landsk. þm., 16 atkv., og Jón Baldvinsson, 4. landsk. þm., 5 atkv. — Þar sem enginn hafði hlotið meiri hluta atkvæða, var kosið á ný óhlutbundinni kosningu, og fór þá svo, að Ásgeir Ásgeirsson hlaut 19 atkv., Jón Þorláksson 15 atkv., en 6 seðlar voru auðir. Lýsti þá aldursforseti yfir því, að rétt væri kjörinn forseti sameinaðs þings.
Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.-Ísf.