13.02.1930
Efri deild: 21. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í C-deild Alþingistíðinda. (618)
92. mál, útflutningsgjald af síld
Flm. (Erlingur Friðjónsson):
Ég flyt hér frv. um lækkun á útflutningstolli af síld. Slík frv. eru enginn nýr gestur hér á Alþingi. Nálega á hverju þingi hafa síldarútflytjendur flutt frumvörp í sömu átt. Ég geri því ráð fyrir, að hv. þdm. séu þessu máli svo kunnugir, að ekki sé þörf á að fara um það mörgum orðum. Eins og stendur er útflutningsgjald af síld kr. 1.50 af hverri tunnu síldar, en útflutningsgjald af öðrum útfluttum afurðum, svo sem fiski, kjöti o. fl., er 1½% af verði afurðanna. Útflutningsgjald af síldinni verður því, þegar miðað er við verð, nálega þrefalt hærra en af nokkurri annari útfluttri vöru. Það virðist harla einkennilegt, að ein vörutegund, sem út er flutt, sé tolluð með þrefalt hærra útflutningsgjaldi en aðrar útfluttar vörur, og getur slíkt ekki réttlætzt með öðru en því, að síldarútvegurinn sé það arðvænlegri atvinnugrein en aðrar, að hann þoli það hærri álögur; en svo hefir áreiðanlega ekki verið, a. m. k. fram að síðustu árum.
Ástæða er til að taka það fram, að umbúðir um síldina eru hlutfallslega miklu dýrari en um nokkra aðra útflutta vöru, og kostnaður eftir að síldin er komin á land allur meiri prósentvís en t. d. á fiski. Þetta sýnir, að engin sanngirni mælir með því, að hærra útflutningsgjald sé tekið af henni en af öðrum útfluttum afurðum.
Til samanburðar mætti benda á það ósamræmi, sem kemur fram í útflutningsgjaldi á síldarafurðum, fóðurmjöli og lýsi, sem út er flutt frá síldarverksmiðjunni. Ef gert er ráð fyrir, að úr einni tunnu hrásíldar komi 16 kg. af lýsi, reiknað á kr. 0.55 kg., og 16 kg. af fóðurmjöli, nemur útflutningsgjaldið af einni tunnu hrásíldar, sem lögð er í bræðslu, nálægt 0.30, eða verður nálægt 5 sinnum lægra en útflutningsgjald af síldinni, ef hún er söltuð eða krydduð til útflutnings.
Í hitteðfyrra flutti ég 2 frv., er gengu í þá átt að samræma útflutningsgjald af síld og bræðsluafurðum. Var þar farið fram á lækkun á útflutningsgjaldi saltaðrar og kryddaðrar síldar, en hækkun á afurðum síldarbræðsluverksmiðja, síldarlýsi og fóðurmjöli. Þessi hv. d. afgreiddi þessi frv. bæði til Nd., en þar dagaði þau uppi. Á sömu leið fór á síðastl. þingi, er ég flutti þessi frv. á ný. Þar sem hv. Nd. hefir ekki tekið þessum frv. betur en raun hefir á orðið, vil ég prófa þá leið, sem hér er farin með þessu frv., að fara fram á lækkun síldartollsins án þess að benda á tekjur á móti, og þar sem afkoma ríkissjóðsins er glæsileg um þessar mundir, virðist mér hægt að réttlæta það, þó honum séu ekki útvegaðar tekjur á móti lækkun á þessum rangláta skatti, sem um langan tíma hefir hvílt á síldarútveginum. Hér er aðeins farið fram á það, að útflutningsgjald af salt- og kryddsíld sé svipað og á öðrum útfluttum afurðum, og vænti ég, að því verði vel tekið af hv. þdm.
Að endingu vil ég óska, að frv. verði vísað til fjhn. að lokinni umr.