26.02.1930
Neðri deild: 37. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2456 í B-deild Alþingistíðinda. (694)

Þingvíti

Sigurður Eggerz:

Ég vil taka það fram, að það er algerður óþarfi að gera árásir á hæstv. forseta út af þessu. Hann hefir þar í öllu farið að lögum. Fyrst þessa þm. vantaði á fundinn, er engin ástæða til að víta hæstv. forseta, þó að hann felldi þennan úrskurð, sem var að öllu leyti eftir lögum og þingsköpum. Og hvaða ástæða er þá til að vera með þennan hávaða kringum hæstv. forseta út af þessu? Hann hefir aðeins gert það, sem rétt var að gera.