14.04.1930
Neðri deild: 80. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í C-deild Alþingistíðinda. (712)
359. mál, bryggjugerð í Borgarnesi
Frsm. meiri hl. (Héðinn Valdimarsson):
Skeyti þetta lá fyrir n., en henni þótti ekki ástæða til að taka sérstakt tillit til þess, þar sem ekki er víst, að um meiri hl. sýslunefndar sé að ræða, heldur aðeins sýslumanninn og einhverja menn með honum. Þess utan sýnist það ekki heyra undir sýslunefndina, hvern veg upp- og útskipun í Borgarnesi er hagað.