26.02.1930
Neðri deild: 37. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2461 í B-deild Alþingistíðinda. (725)
Þingvíti
Pétur Ottesen:
Ég vildi vekja athygli hæstv. forseta á því, að það er tekin upp ný regla, að þeir menn, sem eru fjarverandi í fundarbyrjun og við atkvæðagreiðslur, verði að sæta þingvítum, svo framarlega sem þeir hafa ekki tilkynnt lögleg forföll. Ég vildi aðeins vekja at hygli hæstv. forseta á þessari nýju framkvæmd þingskapanna á Alþingi.