23.01.1930
Efri deild: 3. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í C-deild Alþingistíðinda. (746)
15. mál, Menntaskólinn í Reykjavík
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Það er sama um þetta frv. að segja og hitt, sem við vorum að afgreiða (frv. um Menntaskóla á Akureyri), að það má heita sama sem óbreytt frá því, sem þessi hv. deild samþ. á síðasta þingi, og breytingarnar eru minni á því en frv. um Akureyrarskólann.
Á sumar breytingarnar hefi ég þegar minnzt, t. d. um að stytta kennslutímann í fyrri bekkjunum. Þetta er í sjálfu sér ekkert stórt atriði, en reynslan hefir sýnt, að nemendur kunna því illa að stunda bóknám í júnímánuði. Þess vegna er heppilegra að nota þann tíma meira til útiveru, svo sem til íþróttaiðkana og rannsóknaferða.
Í þessu sambandi vil ég geta þess, að síðastl. vor var farin rannsóknarferð til Hornafjarðar undir stjórn náttúrufræðikennara og eins málakennara. Sú tilraun gafst mætavel, og eru líkindi til, að bæði nemendur og kennarar muni una því vel að geta farið slíkar ferðir á hverju vori. Geta slíkar ferðir bæði verið fræðandi og skemmtilegar og verða að álítast mikil blæbreyting frá hinu áður innantóma bóknámi.
Að svo mæltu óska ég, að frv. fái að ganga til 2. umr. og verði vísað eins og hinu frv. til hv. menntmn.