19.04.1930
Sameinað þing: 10. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2468 í B-deild Alþingistíðinda. (757)

Þingfrestun

Forseti (ÁÁ):

Þótt enn sé ekki komið að þinglokum, þykir rétt að gefa skýrslu um úrslit þingmála, því að alþingisfundum verður nú frestað, og er ekki sennilegt, að þau mál, sem enn eru óafgr., fái afgreiðslu úr þessu.

Nú er kominn 93. dagur þessa þings. Haldnir hafa verið samtals 178 þingfundir, þar af 85 í Nd., 83 í Ed. og 10 í Sþ.

Fyrir þingið voru lögð 143 mál samtals. Þar af 118 frv., og voru 31 stjfrv., en 87 þmfrv. Þáltill. komu fram 22 og 3 fyrirspurnir.

Afgr. voru 51 lög, og voru 18 þeirra stjfrv., en 33 þmfrv. Felld voru 6 frv., 3 afgr. með rökst. dagskrá, 2 vísað til stj., en 56 urðu óútrædd, þar af 11 stjfrv.

Afgr. voru til stj. 9 þingsályktanir, en 6 voru felldar. 7 þeirra urðu óútræddar, en eina af þeim hefir hæstv. stjórn lofað að taka til greina, þótt hún kæmi ekki til atkv. (þáltill. um miðunarvita).

Fyrirspurnunum þremur var öllum svarað.

Eins og menn sjá á þessari skrá, þá er gengið frá ýmsum málum óloknum. En það er hvorttveggja, að þau mál eru ekki tiltölulega fleiri en venja hefir verið til, og á hinn bóginn er ekki að því að finna, þótt ýms mál séu um nokkurt skeið á dagskrá þjóðarinnar, áður en Alþingi leggur á þau fullnaðarsamþykkt.

Um þau mál, sem afgr. hafa verið, er það að segja, að meðal þeirra eru ýmis mjög merkileg og engu ómerkari en hin meiri mál frá undanförnum þingum. Kann þó að vera, að sumum mönnum þyki þetta þing afkastaminna en ýmis önnur, því að það einkennir frv. þessi flest, sem fram hafa gengið, að um þau hafa ekki staðið miklar deilur. Mörg þeirra hafa verið samþ. af miklum meiri hluta þings. Því er ekki líklegt, að þau komist undir stækkunargler blaðadeilnanna. Sérstaklega vildi ég nefna lögin um Útvegsbanka Íslands, sem þingið bar gæfu til að samþykkja og leysa með því eitthvert stærsta vandamál, sem borið hefir að höndum á síðari árum. Þá eru lög um sveitabanka, lög um fiskveiðasjóð, sjómannalög, lög um menntaskóla á Akureyri, um gagnfræðaskóla, um bændaskóla, og enn fleira mætti telja.

Eins og ég gat um, verður þingfundum nú frestað. Ég vil óska þingmönnum góðrar heimferðar og afturkomu til framhaldandi þingfunda á Þingvöllum. Það er mest undir þingmönnum komið, hvernig sú hátíð tekst. Og ég vil vona, að samhljóða afgreiðsla svo margra merkra mála sem nú spái góðu um, að þm. verði samtaka og heilir í því að láta hátíðina fara sem bezt fram og þannig að svari fyllilega til hins mikla hátíðarefnis. Þangað koma þm. að fornum sið með konur sínar og kjósendur til allsherjarþings.

Þingmönnum, sem þess óska, verður gefið tækifæri til þess á annan í páskum að athuga hátíðarstaðinn og gera sér ljósari hugmynd um hátíðarundirbúning á Þingvelli en ellegar mundi. Að loknum fundi mun ganga listi meðal þm., og er þess óskað, að þeir hv. þm., sem vilja og geta tekið þátt í förinni austur, skrifi þar nafn sitt.