29.01.1930
Efri deild: 8. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í C-deild Alþingistíðinda. (768)

17. mál, kosningar til Alþingis

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Út af ræðu hv. þm. Snæf. vildi ég spyrja hann í fullri alvöru, hvort hann sæi nokkra leið til að framfylgja þessu í blönduðu kjördæmi, t. d. hans eigin, ef fólkið í sveitunum kysi að vorinu en kaupstaðirnir á haustin. Það virðist mér alveg óframkvæmanlegt. Hinsvegar mælir hann rök að því leyti, að réttlátast væri að láta kauptúnin njóta sömu réttinda og kaupstaðina, og því vildi ég aðeins spyrja hann, hvort hann sæi nokkra leið til þess.