29.01.1930
Efri deild: 8. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í C-deild Alþingistíðinda. (770)

17. mál, kosningar til Alþingis

Jón Baldvinsson:

Þetta er alveg rétt hjá hv. þm. Snæf., að hér er aðeins bætt úr ranglætinu að hálfu leyti. Hinsvegar mætti t. d. bæta nokkuð úr þessu með því að hafa sérstök ákvæði um þetta efni fyrir Suðurland, því að þar eru kauptún fleiri en á Norðurlandi, þótt þau ættu einnig að hafa kjördag á sama tíma.