24.02.1930
Efri deild: 33. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í C-deild Alþingistíðinda. (775)
17. mál, kosningar til Alþingis
Frsm. meiri hl. (Ingvar Pálmason):
Mér er kunnugt um það, að hv. frsm. minni hl. leit nokkuð öðrum augum á þetta mál en meiri hl. Hann hefir nú borið fram röksemdir sínar, og get ég ekki séð, að þær séu svo veigamiklar, að hægt sé að taka tillit til þeirra. Hann sagði, að í flestum kjördæmum væri kauptún, sem félli undir hans brtt. Kjördagarnir yrðu því tveir í nálega öllum kjördæmum landsins, en það teljum við mjög óhagkvæmt, enda getum við ekki betur séð en að þó að einhver af þessum kjördæmum séu svo sett, að þau eigi erfitt með að kjósa 1. júlí, þá sé heimild kosningalaganna um kosningu utan heimilis á kjördegi næg varúð fyrir rétt þeirra. Allir, sem hafa áhuga á að kjósa, geta neytt kosningarréttar síns. Hinsvegar verður ávallt erfitt að sjá um, að öll atkvæði komi fram á kjördegi. En ég get ekki séð, að þeim sé sýnt mikið ranglæti með frv. og brtt. okkar. Hv. frsm. minni hl. var hræddur um það, að ef brtt. okkar um talningu strax yrði samþ., hefði það spillandi áhrif á kosningar, sem eftir ættu að fara fram. Ég veit ekki, í hverju það ætti að liggja.
Það, sem ég tel mæla á móti því að hafa tvo kosningardaga og láta talningu bíða, er það, að ef þing er kvatt saman milli 1. júlí og 1. mánudags í vetri, þá mæta ekki hinir réttu fulltrúar. Það væri að vísu búið að kjósa þá að nokkru leyti, en ekki hægt að kveðja þá til þingsetu af því að talning væri ekki farin fram. En ef till. meiri hl. er fylgt, kemur þetta ekki fyrir. Gömlu þingmennirnir í kaupstöðunum eru rétt kjörnir, unz kosning hefir farið fram. Ég vil ennfremur benda á það, að af brtt. minni hl. myndi leiða, að breyta þyrfti ákvæðum gildandi laga um það, frá hvaða degi kosning skuli gilda. Þyrfti að taka fram, að kosningin gildi aðeins frá síðara kjördegi.
Síðari hl. brtt. minni hl. getur ekki staðizt. Það er þýðingarlaust að setja ákvæði um fastan talningardag, þar sem hann hlýtur að verða mismunandi í einstökum kjördæmum. Virðist sjálfsagt, að kjörstjórnir ákveði daginn, og eins og hingað til hefir verið. Það tekur oft langan tíma að koma kjörgögnum á talningarstað, einkum á haustin, og því álít ég, að kjörstjórn eigi að ákveða daginn, ef ekki á að telja fyrr en öllum kosningum er lokið.
Um geymslu atkvæða er það að segja, að auðvitað má ganga svo frá kössum, að ekki verði farið í þá, og sumstaðar kann einnig að vera hægt að vernda þá fyrir eldi, t. d. í Reykjavík. En úti um land mun reynast erfitt að koma þeim á eldtryggan stað. Fæstir sýslumenn munu hafa rúm fyrir 15–16 kjörkassa á eldtryggum stað. Þyrfti þá að koma upp sérstakri byggingu fyrir þá. En mér finnst, að þessi dráttur á talningunni muni geta haft miður heppileg áhrif á kosninguna. Gæti ég trúað, að kjósendur yrðu áhugaminni, þegar þeir verða að bíða mánuðum saman eftir úrslitunum.
Þá talaði hv. frsm. minni hl. um brtt. okkar við 1. málsgr. 23. gr. kosningalaganna. Taldi hann, að brtt. væri brot á anda stjfrv. En eins og hv. þm. Seyðf. sagði, er augljóst, hver meining frumvarpssemjanda er, enda þótt orðalagið sé ekki ljóst. (JBald: Hæstiréttur kennir að dæma eftir lögunum). Já, þess vegna vil ég hafa lögin svo skýr sem hægt er; en hitt verður ekki í efa dregið, að það verða aðeins þeir kaupstaðir, sem eru sérstök kjördæmi, sem lögin ná til.
Ég sé svo ekki ástæðu til að þrátta frekar um þetta mál, það verður að fara sem auðið er, — en mér þykir það undarlegt hjá hv. 4. landsk. að kalla þetta aðeins lítilsháttar ívilnun; mér finnst það mikil réttarbót, þar sem verða aðnjótandi þessarar breyt. þrír eða jafnvel fjórir kaupstaðir landsins, sem kvartað hafa yfir, að breytingarnar frá í fyrra á kosningalögunum kæmu hart niður, en það eru Reykjavík, Hafnarfjörður, Vestmannaeyjar og að nokkru leyti Akureyri. Allir þessir kaupstaðir voru tilnefndir í fyrra, að þeir biðu mikið misrétti við lagabreytinguna, en úr þessu er nú bætt með brtt. meiri hl. n. En hitt sjá allir, sem á það vilja líta, hver glundroði það væri, ef hagað yrði kosningu þannig í einu og sama kjördæmi, að þar væri kosið með 3–4 mánaða millibili, og vil ég eindregið benda hv. 4. landsk. á það, að ef hans till. verða samþ., þá verða jafnframt að koma skýr og ótvíræð ákvæði um það, frá hvaða tíma kosningar eigi að gilda.