03.02.1930
Neðri deild: 12. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1165 í B-deild Alþingistíðinda. (787)
10. mál, laun embættismanna
Sigurður Eggerz:
Mér finnst svör hæstv. stj. ekki bera þess vott, að búast megi bráðlega við endurskoðun launalaganna, því hæstv. stj. sýnist ekki vilja hraða lausn gengismálsins neitt sérlega mikið. Og ef nú á að hnýta launamálinu aftan í það, þá gæti svo farið, að þessi endurskoðun færi ekki fram í tíð þessarar hæstv. stjórnar.