31.01.1930
Efri deild: 10. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 409 í C-deild Alþingistíðinda. (821)
22. mál, fimmtardómur
Jónas Kristjánsson:
Frv. um fimmtardóm, sem hér er rætt um, ásamt ræðum hæstv. dómsmrh. um það, gefa manni ýmislegt að hugsa um. Mér dettur fyrst í hug frásagan um fall Atla. Sagan segir frá því, að Atli stóð í dyrum úti og var lagður spjóti í gegn: „Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin“, mælti hann um leið og hann féll. Orðin voru æðrulaus. Þau hnigu að verkfærinu, sem hann var veginn með, en meint var athöfnin, sem framkvæmd var. Hinn vegni átti þess ekki kost að verja sig. Verkið var níðingsverk.
Í hinu pólitíska lífi þjóðar vorrar eru hin breiðu spjótin alltíð orðin, síðan núv. hæstv. dómsmrh. náði völdunum í sínar hendur. Hann kann að handleika þessi vopn og vegur óspart að andstæðingum sínum með þeim og er mikilvirkur. En sæmdarverk vinnur hann fá.
Á fyrsta þinginu, sem hann sat sem dómsmrh., lagði hann einu af þessum breiðu spjótum að hæstarétti þjóðarinnar, er hann komst svo að orði, að hæstiréttur hefði framið réttarmorð. Sannar ástæður gat hann engar fram fært, staðhæfingu sinni til stuðnings. En hið breiða spjót geigaði. Hæstiréttur stóð óskemmdur af laginu. Hann var saklaus. Það var líka vegna þess, að loppan, sem hélt á vopninu, var brennimerkt. Það er hart að þurfa að segja það hér á Alþingi, en hún var brennimerkt stimpli, sem er of kunnur til þess að þörf sé að nefna hann hér. Nú er í annað sinn vegið í sama knérunn. Aðferðin er önnur, en vopnið er það sama. Nú er stefnt að því að leggja niður hæstarétt. Það er látið í veðri vaka, að þetta sé gert til þess að stofna nýjan dómstól, fimmtardóm. En engum heilskyggnum manni dettur í hug að trúa þessum fyrirslætti hæstv. dómsmrh. Það er ennfremur látið í veðri vaka, að þessi nýi dómstóll eigi að veita meira réttaröryggi en hæstiréttur, og líka, að nafnið fimmtardómur sé þjóðlegra en nafnið á hæstarétti. Aldrei hefi ég þekkt aðra eins hræsni og annan eins yfirdrepskap! Heyr á endemi! Hæstv. dómsmrh. ætlar að veita þjóðinni meira réttaröryggi. Þessi líka sannleikspostuli! Hefir hann sýnt af sér svo mikið réttlæti? Bendir fógetagerðin í Hornafirði á réttlæti og réttarfarslegt öryggi? Fógetagerð sú er orðin allfrægt mál.
Hæstv. ráðh. varð það óvart á í gær í röksemdafærslu sinni að koma fram með a. m. k. aðra aðalástæðuna fyrir því, að hann flytur frv. þetta. Þessi ástæða er sú, að honum fellur ekki við dóma hæstaréttar. Hæstiréttur dæmir nefnilega eftir lögunum, en hæstv. dómsmrh. vill jafnframt láta hann dæma eftir almenningsálitinu (sem hann kallar svo): dómurinn verður að vera í samræmi við almenningsálitið. Nú væri gaman að vita, hvað almenningsálitið er. Þegar eftir því er grafizt, þá er almenningsálitið ekkert annað en persónulegt álit ráðh. sjálfs. Þetta hefir oft komið fram í blaði hans, Tímanum. Ráðh. skrifar leiðara í blaðið, og heldur þar fram einhverju pólitísku hagsmunamáli sínu, eða sleggjudóm yfir andstæðinga sína, og stimplar síðan þetta sem almenningsálit. M. ö. o.: hæstv. ráðh. vill láta æðsta dómstól landsins dæma eftir sínum vilja. Hann vill ráða sjálfur dómum hins æðsta dómstóls. Eftir þessu er ekki ólíklegt, að hann vilji skipa í fimmtardóm þá menn, sem hafa mjög líkar skoðanir um almenningsálitið og hæstv. dómsmrh. sjálfur. Hitt er eftir að vita, hvort hann finnur slíka menn. En þægilegt væri það fyrir þennan ráðh., ef hann getur látið dómara fimmtardóms dæma eftir almenningsáliti, er hann sjálfur ákveður, sérstaklega þegar þess er gætt, hve oft hann er sjálfur ákærandi eða ofsækjandi.
Hin ástæðan, sem ræður því, að hæstv. ráðh. flytur frv. þetta, er sú, að hann þarf að losa þau embætti, sem núv. hæstaréttardómarar sitja í, til þess að geta þar enn á ný hreiðrað um gæðinga sína. Hæstv. ráðh. hefir einmitt lagt mikið verk í slíka hreiðragerð. Flest embætti, sem hann hefir skipað í, eru með þessu markinu brennd. Breyt. var gerð á Landsbankalögunum til þess eins, að hæstv. ráðh. gæti rekið úr bankaráðinu andstæðinga sína. Úr lögreglustjóra- og bæjarfógetaembættunum voru búin til 3 embætti, þar sem voru a. m. k. 2 ný hreiður fyrir gæðinga ráðh. Mætti svo lengi telja. Hæstv. dómsmrh. hefir sýnt hina mestu hugkvæmni í því að búa til ný embætti handa skjólstæðingum sínum. En þessi hugkvæmni hefir orðið þjóðinni nokkuð dýr, enda voru útgjöld síðasta árs nokkuð há. Þeir, sem settir eru í þessi nýmynduðu hreiður, mynda málalið hæstv. dómsmrh.
En svo að ég snúi mér aftur að hæstarétti, þá má um hann segja, að hann er ekki gamall, en hann hefir hreinan skjöld og hefir getið sér traust og virðingu allra sæmilegra manna. Hann hefir staðið eins og klettur úr hafinu og á honum hafa brotnað öldur þær, sem þessi nýi „spekúlant“ og ribbaldi hefir þeytt upp. Þess vegna á hæstiréttur nú að falla. Hann hefir unnið sér það til óhelgir í augum hæstv. dómsmrh., að hafa dæmt eftir lögum landsins, en ekki eftir almenningsáliti, sem hæstv. ráðh. kallar svo. Nú á hann að falla fyrir mistilteini hins blinda haturs, fyrir breiða spjótinu frá Hriflu. Þarna losna líka nokkrar nýja stöður handa vikaliðugum gæðingum.
Allar menntaðar þjóðir reyna að búa svo um hæstarétt sinn, að hann sé sem óháðastur. Ennfremur reyna þær af fremsta megni að skipa hann þeim beztu og lögvitrustu mönnum sínum, mönnum, sem gæddir eru sterkri siðferðiskennd og ábyrgðartilfinningu. Því miður hefir verið hringlað nokkuð með lögin um hæstarétt og dómendum fækkað úr fimm og niður í þrjá. Svo hefði ekki átt að vera. Ef ég man rétt, þá átti núv. hæstv. dómsmrh. þátt í þeirri till., sem leiddi til þess, að að því ráði var snúið. Hann var á þeim árum farinn að stinga selshöfðinu upp úr sínu pólitíska Fróðáreldhúsi, til ógæfu fyrir þessa þjóð. Alþingi Íslendinga hefir, því miður, ekki verið ljóst, hve mikils virði óháður og ábyggilegur æðsti dómstóll er, vegna þess að menn hefir ekki órað fyrir því, sem nú er að koma fram, einveldisbrölti eins manns. Sem dæmi þess, hve mikils trausts hæstiréttur hefir endur fyrir löngu notið meðal hinnar mestu þroskaþjóðar, Prússa, er saga frá dögum Friðriks II., sem líka var kallaður Friðrik mikli.
Vindmylna ein mikil skyggði á útsýni úr konungshöllinni í . . . . Vildi konungur láta taka niður vindmylnu þessa. Fór hann í þessu skyni á fund eiganda og bað hann að selja sér vindmylnuna. Eigandinn kvað nei við. „Vitið þér ekki“, kvað konungur, „að ég get látið taka vindmylnuna eignarnámi?“ „Það getið þér ekki, herra konungur. Ég mundi kæra slíkt fyrir dómstólunum, og hæstiréttur mundi dæma yður fyrir tiltækið“. „Þér hafið rétt að mæla“, kvað konungur. Hafið þökk fyrir að hafa minnt mig á hæstarétt. Ég gleðst yfir því, að þér berið svo mikið traust til hans. Vindmylnan yðar skal vissulega fá að vera í friði“. — Er sagt, að vindmylnan standi þar enn þann dag í dag, sem órækur vottur þess trausts, sem eigandi hennar bar til hæstaréttar landsins.
Þær eru ekki eins konunglegar, aðfarir hæstv. dómsmrh. gagnvart hæstarétti vorum. Þegar honum finnst, að dómar þessa hæstaréttar séu ekki í samræmi við sína eigin hagsmuni, sem hann nú kallar almenningsálit, þá rýkur hann upp og hrópar: Réttarmorð! eins og hver annar ofbeldismaður, sem þolir ekki lög. Þegar nú þetta hefir ekki tilætluð áhrif, þá semur hæstv. ráðh. frv., sem fer fram á, að hæstiréttur skuli lagður niður og myndaður annar dómstóll í hans stað með öðru nafni. Tilgangurinn er bersýnilega hefnd við hæstarétt, jafnframt þeim hagsmunum að geta losað þarna stöðu handa skjólstæðingum sínum, sem svo eiga að vera góð og þakklát börn á eftir. Þessi breiðu spjótin eru orðin alltíð.
Dómsmrh. er settur til þess að vera vörður laga og réttar í landinu. Hann á að vera hin réttarfarslega forsjón þjóðarinnar. En hvernig stendur hann í stöðu sinni sem slíkur? Ég á nú ef til vill á hættu að verða hringdur niður, en ég ætlaði að segja þessi vitskerti maður. Jú, hann ofsækir í stað þess að vernda, hann ákærir í stað þess að rannsaka og gæta réttar einstaklingsins. Þannig hefir hann ofsótt bæði einstaklinga og heilar stéttir, jafnvel heila atvinnuvegi, sem veita fjölda fólks atvinnu og lífsviðurværi og eru þar að auki hyrningarsteinar undir efnalegri afkomu og velferð þjóðarinnar. Þá ofsækir hann. Hann hefir í hótunum við menn að reka þá frá embættum, ef þeir geri þetta og hitt, sem honum er ekki að skapi. Flestum mun í fersku minni viðureign hans við lækna landsins. Í greinum, sem hann skrifaði þá í blað sitt Tímann gegn læknum, gefur hann sjálfum sér svo greinilegt brjálsemivottorð, að slíkt tekur engu tali. Þar kemur fram hans sjúka sálarástand mjög greinilega, ofsóknarástríðan og hatrið. Þá hirðir hann ekkert um eða veit ekkert um, hvað hann segir, hvort hann fer með ósannindi eða segir satt. Mér er óhætt að fullyrða, að hann veit það ekki. En það er dálítið hættulegt til lengdar að láta mann, sem þannig er sviptur allri ábyrgðartilfinningu, ráða lögum og lofum íhlutunarlaust af hendi stuðningsmanna hans. Hvað á slíkt að ganga lengi hér? Nú styðst þessi byltingamaður mest við menn, sem hann hefir útvegað stöður, embætti og önnur fríðindi, og þá menn yfir höfuð, sem hafa von um einhverja hagsmuni frá hans hendi. Þetta málalið er orðinn allfjölmennur hópur, enda er ekkert sparað til að auka það, hvorki fé né hugkvæmni.
Hafa hv. þm. athugað, hvernig ástandið mundi verða í landinu, hvernig hið pólitíska siðferði yrði, ef flokkar þeir, sem keppa um yfirráðin hjá þjóðinni, viðhefðu hver eftir annan þá ofsóknaraðferð, sem hæstv. dómsmrh. hefir viðhaft síðan hann náði völdunum í sínar hendur? Þá aðferð, að ryðja með öllu hugsanlegu móti mönnum miskunnarlaust úr stöðum og embættum, aðeins til þess að svala hatri sínu og koma sínum skjólstæðingum í mjúklegt hreiður, alvel án tillits til hæfileika. Þannig fara þeir að, sem brjótast til valda. Halda hv. þm., að slíkt mundi leiða til blessunar fyrir land og lýð? Getur nokkrum manni komið til hugar, að maður í ábyrgðarmikilli stöðu og með heilbrigða skynsemi mundi haga sér líkt og hæstv. dómsmrh.? Enginn flokkur situr til eilífðar við völd, ekki einu sinni mjög lengi. Við skulum hugsa okkur, að innan skamms tæki annar stjórnmálaflokkur við völdum, andstæðingar núverandi stjórnmálaflokks. Það er sagt, að óvandari sé eftirleikurinn. Við skulum segja, að hann noti sömu þrælatökin, sömu breiðu spjótin og hæstv. dómsmrh. notar, breytti lögum til þess að svipta mönnum úr embættum og setja sína eigin skjólstæðinga í þeirra stað, eins og hæstv. dómsmrh. hefir gert. Hvílíkt óskaplegt ástand mundi slíkt skapa í þessu fátæka og fámenna landi. En ég vona nú, að hvaða flokkur sem næst tekur við völdum, þá láti hann viti þessarar stj. verða sér til varnaðar. Því þeir, sem nú stjórna, láta hvorki leiðast af réttlæti né kærleika til þjóðarheildarinnar.
Þeirri pólitísku siðspillingu, sem hæstv. dómsmrh. hefir komið af stað, verður ekki með orðum lýst. Ég hefi talið sumt upp af ærslum hans, þó ekki líkt því allt. Enda er það óþarft. Flestum er það í fersku minni. Ég veit fyrir víst, að hæstv. ráðh. hefir ekki hugmynd um þá pólitísku óöld, sem hann hefir innleitt hér á landi. Augu hans og heili eru svo haldin, að sjáandi sér hann það ekki, og þýðir þess vegna ekki að tala um það við hann. En við hina beztu menn í hans flokki vildi ég segja þetta: Ég vona, að einhverjir ykkar fái opin augu fyrir hinu núverandi pólitíska ástandi í landinu og þér athugið, hvert stefnir með sama áframhaldi. Ég vona, að hinir beztu menn meðal Framsóknarflokksins taki höndum saman við menn úr öðrum flokkum til þess að afstýra þeirri bölvun, sem af slíku stjórnarfari leiðir, sem við nú búum undir.
Flokksmenn núv. hæstv. stj. verða að gera sér það ljóst, að þeir bera ábyrgð á núv. stjórnarfari og þeirri siðspillingu í opinberum málum, sem það hefir í för með sér. Hinu pólitíska ástandi er nú þann veg komið, að verið er að grafa undan réttarfarslegu öryggi þjóðarinnar. Persónulegt einstaklingsöryggi er ekki óhult lengur, og atvinnuöryggið er að verða efasamt. Hver, sem kemst í andstöðu við núv. hæstv. dómsmrh., má búast við ofsókn; það vita menn. Þetta er satt og sannanlegt. Hvað hefir komið öllum þessum ófögnuði af stað? Dómsmálaráðherrann okkar hæstv., með breiðu spjótin.
Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin, en hvað á það að verða lengi? Það er á valdi hv. stuðningsmanna núverandi stj.