07.04.1930
Efri deild: 71. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 429 í C-deild Alþingistíðinda. (830)

22. mál, fimmtardómur

Frsm. minni hl. (Jóhannes Jóhannesson):

Eins og sjá má á réttarskjali nr. 381, hefi ég eigi getað fylgzt með hv. með nefndarmönnum mínum í allshn. þessarar deildar í áliti þeirra á og tillögum þeirra um lagafrv. það, sem hér er um að ræða, og það af þeirri ástæðu, að frv. fer í þveröfuga átt við það, er stefna skal að mínu áliti, og mér er óhætt að fullyrða, að áliti þess stjórnmálaflokks, er ég fylli.

Þegar nýmæli frv. þess, sem hér liggur fyrir, eru athuguð og borin saman við hæstaréttarlögin, er það bert, að ef það yrði að lögum, yrði hinn nýi fimmtardómur mun háðari framkvæmdarvaldinu en hæstiréttur er nú.

Eftir núgildandi lögum er framkvæmdarvaldið eigi einrátt um skipun dómenda 1 úrslitadómstiginu.

Eftir 6. gr. hæstaréttarlaganna, nr. 22 1919, er það eitt af skilyrðum fyrir því að geta orðið fastur dómari í hæstarétti, að hlutaðeigandi hafi sýnt það með því að greiða fyrstur dómsatkvæði í fjórum málum, og sé a. m. k. eitt þeirra einkamál, að hann sé hæfur til þess að skipa sæti í dóminum.

Um þessa prófraun eiga hæstaréttardómendurnir að dæma, og framkvæmdarvaldið getur ekki skipað neinn nýjan fastan dómara í hæstarétt, nema hann hafi fengið yfirlýsingu hæstaréttar um það, að hann hafi staðizt þessa prófraun.

Þessu skilyrði er algerlega sleppt í fimmtardómsfrv., og ekkert því um líkt sett í staðinn. Er ekki önnur ástæða færð fyrir því í aths. við frv. en sú, að engin ástæða þyki til þess að halda þessu skilyrði, heldur játa veitingarvaldið skilyrðislaust vera í höndum æðsta framkvæmdarvaldsins.

Það hefði þó sannarlega ekki verið úr vegi að gera a. m. k. tilraun til þess að rökstyðja að einhverju leyti jafnþýðingarmikla breyt. og hér er um að ræða. Þegar hæstaréttarlögin voru samin og sett, voru allir þm. sammála um nauðsyn ákvæðis þessa, og mér er spurn: Hvað hefir síðan gerzt, er afsanni nauðsynina á því að gera hæstaréttardómarana sem óháðasta framkvæmdarvaldinu? Ég fullyrði, að ekkert slíkt hafi gerzt, heldur sé nauðsynin nú orðin enn augljósari og meir aðkallandi en þá var.

Þá er því bætt við í aths. við fimmtardómsfrv., að það sé í samræmi við skipulag flestra æðstu dómstiganna í nágrannalöndunum að láta veitingarvaldið skilmálalaust vera í höndum framkvæmdarvaldsins, en þessi firra er rækilega hrakin í álitsskjali hæstaréttar um frv. (nál. meiri hl., þskj. 374, bls. 10), og þar er sýnt fram á, að í nálega öllum siðmenningarlöndum utan einræðisstjórnarlandanna er réttur framkvæmdarvaldsins til skipunar dómenda í úrslitadómsstiginu takmarkaður á líkan hátt og nú á sér stað hér á landi, og skal vísað til þess hér.

Í sömu átt gengur ákvæði niðurlags 21. gr. frv. um það, að dómsmrh. geti æskt ákveðins sækjanda í opinberu máli. Því þá ekki eins verjanda?

Eftir núgildandi lögum skipar hæstiréttur sækjanda og verjanda í opinberum málum án allrar íhlutunar af hálfu framkvæmdarvaldsins, og er því framkvæmdarvaldið hér enn að seilast inn á valdssvið það, er nú heyrir undir úrslitadómstólinn.

Í ákvæðum frv. um málaflutningsmennina við fimmtardóminn eru og ýms nýmæli, er auka vald framkvæmdarvaldsins yfir málaflutningsmönnunum og félagsskap þeirra, en rýra vald dómsins. Eftir 20. gr. hæstaréttarlaganna er t. a. m. dómsmrh. gert að skyldu að svipta hæstaréttarmálafærslumann leyfi til málaflutnings, ef hæstiréttur leggur það til og rétturinn hefir þrisvar sinnum sektað hann fyrir óhæfilegan drátt á opinberu máli, vísvitandi ósannindi í sókn eða vörn eða önnur stórkostleg skyldubrot. Í 24. gr. frv. er þessari skyldu dómsmrh. breytt í heimild.

Í frv. er svo ákveðið, að auk hinna föstu þriggja dómenda í fimmtardómi skuli tveir af lagaprófessorum háskólans dæma margbrotin, umsvifamikil eða vandasöm mál. Mun þetta vera talinn annar aðalkosturinn fram yfir núverandi ástand.

Við þessa fjölgun dómendanna er þó það að athuga, að þessir aukadómarar njóta eigi sama sjálfstæðis gagnvart framkvæmdarvaldinu og föstu dómendurnir. Umboðsleg störf eru aðalstörf þeirra, og þeir eru skipaðir í embætti sín með allt annað starf fyrir augum en dómarastarfið, sem verður hjáverk þeirra.

Nú tekur 57. gr. stjskr. ekki til annara dómenda en þeirra, sem ekki hafa að auki umboðsstörf á hendi. Aukadómendunum verður því vikið úr embætti af umboðsvaldinu án dóms, og þeir geta átt á hættu að verða fluttir í annað embætti án vilja þeirra. Fimmtardómur sem heild verður því eftir frv. ekki nærri því eins óháður framkvæmdárvaldinu og hæstiréttur er nú.

Þegar á þetta er litið, mættu það vera meira en litlir kostir, aðrir en dómendafjölgunin, sem frv. fæli í sér fram yfir núverandi ástand, ef til mála ætti að geta komið að samþykkja það, þótt ekki væru aðrir gallar á frv. en nú hafa verið nefndir; en því miður hefir mér ekki tekizt að finna þá kosti. Það er að vísu kostur á frv., að launakjör hinna föstu dómenda eru bætt að verulegum mun. En til þess að ná þeim kosti þurfti alls ekki að setja á stofn nýjan dómstól, eða einu sinni að breyta nafni hæstaréttar eða hreyfa við hæstaréttarlögunum. Vandinn er ekki annar en að breyta 10. gr. launalaganna, nr. 71 1919, enda finnst mér eðlilegra, að ákvæðin um laun dómara í úrslitadómsstiginu sé að finna í launalögunum heldur en í lögunum um dóminn sjálfan.

Mér virðist það orka tvímælis sem kostur á frv., að núverandi starfi hæstaréttarritara á eftir frv. að breyta í nýtt sérstakt embætti með talsvert háum launum eftir því, sem hér gerist. Ég veit ekki betur en að starfið hafi verið rækt sæmilega sem aukastarf síðan hæstaréttarritaraembættið var lagt niður 1924, og árin 1923 og 1924 áleit hæstv. dómsmrh. óþarft að halda við hæstaréttarritaraembættinu, eins og vikið er að í nál. á þskj. 381.

Ég játa hinsvegar, að það kemur vel heim við stefnu núverandi hæstv. stj. og þingmeirihluta í embættafjölgunarmálinu, að hið niðurlagða hæstaréttarritaraembætti verði endurreist.

Það ættu þá að vera ákvæði frv. um opinbera atkvgr. dómendanna, sem ættu að vera svo þýðingarmikil, að vegna þeirra væri gerlegt að taka hinn fyrirhugaða fimmtardóm, þrátt fyrir ósjálfstæði hans gagnvart framkvæmdarvaldinu, fram yfir núverandi hæstarétt.

En eins og frá er skýrt í áliti hæstaréttar, er enn mjög um það deilt, hvort opinber atkvgr., sérstaklega í fámennum dómstólum, sé heppilegri en leynileg, og þrátt fyrir reynsluna í Noregi eru Danir enn ekki búnir að taka upp opinbera atkvgr. í hæstarétti, og heldur eigi hinar aðrar Norðurlandaþjóðir. En þótt svo væri, að nauðsynlegt þætti að lögbjóða opinbera atkvgr. í úrslitadómstiginu hér á landi, væri engin nauðsyn á að setja á stofn nýjan úrslitadómstól til þess. Því mætti koma á með lítilli breyt. á hæstaréttarlögunum.

Ég fyrir mitt leyti er þeirrar skoðunar, að miklu meira gagn myndi verða að því að lögbjóða birtingu ágreiningsatkvæða í úrslitadómstiginu, ef um ágreining væri að ræða, en að fyrirskipa opinbera atkvgr. Ágreiningsatkvæðin yrðu þá birt í dómasafni réttarins og mundu verða öllum landslýð kunn. Hin opinbera atkvgr. myndi hinsvegar verða fáum kunn, a. m. k. meðan áheyrendarúmið í réttinum er ekki stærra en nú er það, og gleymast fljótt, nema atkvgr. í heild sinni væri birt í dómasafninu, en sú birting myndi lengja dómasafnið mjög og auka kostnaðinn við útgáfu þess.

Ég fæ því ekki séð, að þessi ákvæði frv. séu svo þýðingarmikil, að þau á nokkurn hátt geti vegið upp á móti þeirri rýrnun á réttarörygginu, er leiða myndi af því, hve mjög hinn nýi úrslitadómstóll yrði háðari hinu pólitíska framkvæmdarvaldi en hæstiréttur er nú.

Um mál þetta hefir verið leitað umsagnar hæstaréttar, Málaflutningsmannafélags Íslands og lagadeildar háskólans. Álit hæstaréttar er prentað á þskj. 374, en Málaflutningsmannafélagsins á þskj. 381. Álit lagadeildarinnar er ókomið enn, en einn af lagaprófessorunum skýrði mér frá því í gær, að álit lagadeildarinnar mundi koma í dag eða á morgun.

Bæði hæstiréttur og Málaflutningsmannafélagið leggja eindregið á móti því, að frv. þetta sé látið ná fram að ganga, og gagnrýna stefnu frv. og einstök ákvæði þess. Sérstaklega er álit hæstaréttar mjög ítarlegt. Ég hefi tekið það fram á þskj. 381, að ég sé sammála andmælum álita þessara um stefnu frv. og í einstökum atriðum þess, og ætla því ekki hér að fara að endurtaka þau andmæli.

Ég býst við, að þessi andmæli verði nokkuð þung á metunum hjá hv. þdm., enda sé ég þess nokkurn vott á þskj. 374 og 416, enda ætti svo að vera, því að það virðist mjög fjarri lægi að skella skollaeyrum við þessum greinargerðum, einkanlega ef álit lagadeildar færi í sömu átt, en það er mér ekki grunlaust um, að svo muni verða.

Hvað viðvíkur áliti hv. meiri hl., þá er um það að segja, að það virðist mjög lítt athugað, því að ég fæ ekki séð, að þær umbætur, sem af frv. leiðir, vegi upp á móti þeim göllum, sem frv. eru samfara, eins og hæstaréttardómararnir hafa bent á.

Þá segir hv. meiri hl., að hæstiréttur hafi sýnt dómsmrh. megna ókurteisi í þessu áliti sínu, en ég verð nú að játa, að ég hefi ekki getað fundið neina ókurteisi í áliti réttarins, enda gerir hv. meiri hl. enga grein fyrir, í hverju sú ókurteisi ætti að vera falin. Það eitt er hinsvegar víst, að hæstiréttur hefir ekki sýnt hæstv. dómsmrh. meiri ókurteisi en dómsmrh. honum.

Þá vill hv. meiri hl. gefa það í skyn, að Framsókn og jafnaðarmenn hafi staðið á bak við þær árásir, sem Tíminn og Alþýðubl. hafa gert hvað eftir annað á hæstarétt, en ég get ekki trúað slíkum dylgjum, enda virðist mér sem tveir hv. þm. úr Framsóknarflokknum hafi afsannað þessi ummæli með brtt. á þskj. 416.

Þá vill hv. meiri hl. láta skína í gegnum álit sitt, að meiri hl. landsmanna hafi vantraust á hæstarétti, en það er auðvitað magnaðasta vitleysa. Það kann vel að vera, að einstaka menn beri nokkurn kala til hæstaréttar, og þá einkum þeir, sem orðið hafa undir í málum, eins og hv. 3. landsk. tók fram við 1. umr. þessa máls, en að óánægjan sé almenn, er alveg rangt. Þá segir hv. meiri hl., að málaflutningsmennirnir hafi sama álit á honum, en ég læt mér nægja með að vísa til álits þeirra til að afsanna slík ummæli.

Þá hefir hv. meiri hl. haldið því fram, að hæstiréttur hafi fellt gagnólíka dóma í málum, sem hafi verið eins, en þetta er auðvitað misskilningur, sem stafar af ókunnugleika, því að ef um ólíka dóma hefir verið að ræða í samkynja málum, þá stafar það af því, að einhver atriði í málunum hafa ekki verið hin sömu, og það hefir auðvitað haft áhrif á úrslitin.

Þá vill hv. meiri hl. halda því fram, að orðið „atferli“ sé mjög niðrandi orð, en ég vil benda honum á það, að þótt hann fletti upp í öllum íslenzkum orðabókum, þá geta þeir aldrei fundið annað en að „atferli“ þýðir nákvæmlega hið sama og „framferði“, hvort sem það er nú illt eða gott, og ef hv. 2. þm. S.-M. veit þetta ekki, vil ég t. d. ráða honum til að fletta upp í orðabók Sigfúsar Blöndals, og mun hann þá geta gengið úr skugga um þetta.

Þá vill meiri hl. halda því fram, að hér sé ekki um annað að ræða en t. d. þegar yfirrétturinn var lagður niður og hæstiréttur stofnaður. Ég fæ ekki skilið, hvernig í ósköpunum mennirnir geta haldið slíku fram, því að þegar yfirrétturinn var lagður niður 1919, var æðsti dómstóllinn fluttur inn í landið, en hér er ekki um neitt slíkt að ræða, enda ekkert millidómstig lagt niður.

Þá segir hv. meiri hl., að hæstiréttur fari niðrandi ummælum um prófessorana, þegar hann segist eiga að fá þá að láni. Þetta er auðvitað misskilningur, því að þessi ummæli eru ekki prófessorunum til hnjóðs, heldur lýsa þau gremju dómaranna yfir því, að föstu dómurunum skuli ekki vera fjölgað, því að það hefir jafnan verið vilji þeirra. Hinsvegar má auðvitað búast við því, að þetta ákvæði muni mjög seinka fyrir því, að föstu dómurunum við réttinn verði fjölgað, og er því ekki að búast við, að þetta ákvæði verði vel séð.

Ég er þeirrar skoðunar, að það ætti ekki að dragast lengur, að dómurunum verði fjölgað í réttinum, því að þótt ekki sé hægt að neita því, að 7 manna dómstóll sé betri en 5 manna, er þó enginn efi á því, að 5 menn eiga hægar með að vinna verkið en 3. Fækkunin, sem gerð var á dómurunum 1924, orsakaðist af því, að þá voru erfiðir tímar og fjárhagurinn mjög þröngur, og því ekki að furða, þótt stj. reyndi að spara á sem flestum sviðum. Nú aftur á móti erum við komnir yfir erfiðasta hjallann, þannig að enginn mundi hafa undrazt yfir því, þótt föstum dómendum hefði verið fjölgað við réttinn og hæstv. stj. hefði borið fram frv., er gengi í þá átt. Um niðurfelling dómprófsins hefi ég áður talað, og mun ekki bæta þar neinu við frá því, sem ég hefi áður sagt, en um það verður hv. meiri hl. skrafdrjúgt, en ég læt mér nægja með að vísa til álits hæstaréttar um það efni.

Um það, að frv. þetta eins og það nú liggur fyrir brjóti í bága við stjskr., held ég að ekki geti verið mikill efi á, og jafnvel með brtt. hv. meiri hl. kemur það enn í bága við 57. gr., nema því aðeins, að fyrri brtt. á þskj. 374 verði samþ. Það er enginn efi á því, að með því að ákveða, að engum þeim, sem séu orðnir 65 ára, skuli vera heimilt að gegna dómarastöðu, er gengið svo á rétt þeirra, að það brýtur fyllilega í bág við 57. gr. stjskr.

57. gr. stjskr. bannar löggjafarvaldinu að setja nokkur ákvæði um aldur dómara, og þeim, sem ekki fara með umboðsstörf, verður ekki vikið úr embætti nema með dómi, en heimilt er hinsvegar að veita þeim lausn, þegar þeir hafa náð 65 ára aldri, og skulu þeir þá ekki missa neins í af launum sínum. Hinsvegar er ekki hægt að víkja þeim úr embætti, þótt þeir séu orðnir 65 ára, og því er brtt. á þskj. 416 nauðsynleg til að koma í veg fyrir brot á stjskr.

Mér virðist hv. meiri hluti vera nokkuð viss í sinni sök, af ólöglærðum mönnum að vera, er hann segir á bls. 5: „Vegna þess, hve forsendur dómaranna eru víða hæpnar, verður einnig að telja niðurstöðu þeirra um það, að frv. veiki dómsvaldið og auki áhrif pólitíska valdsins á það, jafnvel þvert ofan í stjórnarskrána, vera rakalausa“. Ég verð að álíta, að þessi klausa sé í rauninni svo móðgandi fyrir hæstarétt, að ekki sé annað gerandi við hana en vísa henni heim til föðurhúsanna, og geri ég það því hér með.

Þá segja þeir á bls. 6, að þingið geti, ef það vilji, látið dómara fara frá embætti þegar hann er orðinn 65 ára að aldri, og að þetta brjóti engan veginn í bág við 57. gr. stjskr.

Þetta er alls ekki rétt, eins og ég tók fram áðan, því að það kæmi auðvitað í bága við stjskr. Hinvegar getur þingið samþ. þáltill., þar sem það heimilar hæstv. stj. að veita einhverjum manni lausn frá embætti með fullum launum, án þess að það brjóti í bága við almennu regluna.

Ég hefi nú athugað frv. þetta allítarlega, en fyrir utan þá galla, sem ég hefi bent á, eru margir aðrir. M. a. hefi ég bent hv. frsm. meiri hl. á það, að brtt. við 22. gr. þurfi að orða um, og sama er að segja um 27. gr. frv., sem talar um, að stjórn málaflutningsmannafélagsins geti dæmt félaga í allt að 300 kr. sekt. Þetta er auðvitað ekki rétt orðað, því að auðsýnilega á að standa, að stjórn félagsins geti úrskurðað félagsmenn í 300 kr. sekt, enda sést þetta líka á því, að síðar er talað um, að félagar geti áfrýjað sektarúrskurði.

Það er efalaust fjölmargt fleira, sem þörf væri á að athuga, en ég býst við, að þetta þyki nóg í bili og læt því hér staðar numið.